SKÝRSLAN: Afturelding 1-4 Leah
Hvað réði úrslitum?
Eftir frekar rólegan og bara leiðinlegan fyrri hálfleik leiddu gestirnir í hálfleik eftir afar umdeilda vítaspyrnu sem Leah sótti og skoraði úr. En um leið og Leah skoraði annað mark leiksins fljótlega í seinni hálfleik var engin leið til baka fyrir Aftureldingu. Þróttarar sýndu gæfumuninn í seinni hálfleik og tóku þetta örugglega á endanum.
Bestu leikmenn
1. Leah Maryann Pais
Frekar auðvelt mat fyrir mig. Var allt í ölltu í sóknarleik gestanna og setti fernu. Mjög auðvelt val.
2. Leah Maryann Pais
Halló! Hún setti fernu og var sirka langbesti leikmaður vallarins. Best og næstbest í kvöld!
Atvikið
Klárlega vítaspyrnudómurinn í upphafi leiks. Leah fær langan bolta til sín inn á teig Aftureldingar og fer niður eftir snertingu. Frekar litla snertingu fannst mér og bara hreinlega spurning hvort þetta hafi verið réttur dómur að dæma víti.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttarar verða í pottinum þegar dregið verður í undanúrslit í Mjólkurbikarnum. Afturelding þurfa að setja alla einbeitingu á það að koma liðinu upp í Bestu deildina.
Vondur dagur
Kannski mjög leiðinlegt að segja þetta en ég vil bara velja varnarmenn Aftureldingar. Eliana í markinu varði ekkert eðlilega oft og var líklega bara maður leiksins í liði Aftureldingar. Varnarmenn Aftureldingar mjög langt frá mönnunum alltaf og lélegur varnarleikur heilt yfir.
Dómarinn - 7
Heilt yfir bara fínasti leikur hjá Ásmundi og teyminu. Mér fannst hins vegar vítaspyrnudómurinn í upphafi leiks ekki vera réttur við fyrstu sýn. Síðan var maður ósammála einum og einum brotum út á miðjum velli eins og gengur og gerist en annars var þetta bara mjög vel dæmdur leikur.



