SKÝRSLAN: Blikar eru ósigrandi
Hvað réði úrslitum?
Jafnræði var með liðunum i fyrri hálfleik og ef eitthvað er fannst manni Þróttarar vera að ná yfirhöndinni í lok hálfleiksins. Blikar mæta bara með allt annað hugarfar og ákefð inn í seinni hálfleikinn og nýta sér mistök sem Þróttarar gerðu.
Bestu leikmenn
1. Andrea Rut Bjarnadóttir
Ákaflega flottur leikur hjá Andreu. Brýtur isinn í dag og hefði getað skorað fleiri en hún átti dauðafæri í fyrri hálfleik.
2. Ásta Eir Árnadóttir
Ásta sem er fyrirliði Blika stóð fyrir sínu eins og vanalega og lagði upp þriðja mark Blika.
Atvikið
Fyrsta markið er það sem kom þessu af stað og braut ísinn. Klaufalegt mark en skotið frá Andreu fór af varnarmanni og í netið
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur er enn í neðsta sæti með fjögur stig, Blikar eru efstir með fullt hús!
Vondur dagur
Þróttarar litu illa ut sem í upphafi seinni hálfleiks og því ætti allt liðið skilið að vera hér. Jelena leit hræðilega út í bæði öðru og þriðja markinu og ég set hana því hér.
Dómarinn - 9
ÞÞÞ er að mínu mati einn besti dómari landsins og stóð sig með prýði að vana.




