0. mín
Verið hjartanlega velkomin í Árbæinn.
Hér munu Fylkismenn etja kappi við Víkinga kl 17 í kvöld og að sjálfsögðu verður fotbolti.net með fréttaritara á staðnum sem mun keppast við að skrásetja viðburði dagsins.
Byrjunarlið beggja liða munu innan skamms birtast hér á síðunni, beggja vegna. Þangað til er kaffibolli ágætis hugmynd.
0. mín
Fylkismenn sigla lygnan sjó um miðja deild en Víkingar eru í tómu tjóni á botni deildarinnar, hafa aðeins unnið einn leik í sumar.
1. mín
Leikurinn er hafinn.
9. mín
Það eru Fylkismenn sem hafa verið meira með boltann hér í upphafi en hafa þó ekki náð að skapa sér nein markverð færi.
19. mín
Leikurinn hefur verið afar tíðindalítill fram að þessu. Það er vonandi að það fari eitthvað spennandi að gerast, við auglýsum eftir mörkum.
22. mín
Tómas Þorsteinsson átti hér frábæra tæklingu inn í vítateig Fylkismanna. Magnús Páll Gunnarsson var við það að sleppa inn fyrir vörn Fylkis en Tómas renndi sér fyrir og bjargaði því sem bjargað var.
24. mín
Colin Marshall tók aukaspyrnu en boltinn fór rétt yfir. Björgólfur Takefusa sótti aukaspyrnuna og gerði vel þegar hann sneri Þóri Hannesson af sér.
27. mín
InnDavíð Þór Ásbjörnsson
ÚtKristján Valdimarsson
Fyrirliði Fylkis fer hér meiddur af leikvelli en hann hefur átt við meiðsli að stríða.
28. mín
Víti! Aron Elís átti fantafínan sprett og gaf boltann á Björgólf sem var felldur í teignum. Víti staðreynd.
29. mín
Fjalar Þorgeirsson gerði sér lítið fyrir og varði lélegt víti Björgólfs.
37. mín
Eftir vítið hefur leikurinn aftur róast.
45. mín
Þóroddur Hjaltalín Jr. flautar hér til hálfleiks. Vonandi fáum við sprækari leik í seinni hálfleik.
45. mín
Þóroddur Hjaltalín Jr. flautar hér til hálfleiks. Vonandi fáum við sprækari leik í seinni hálfleik.
45. mín
Þá er leikurinn hafinn að nýju eftir eitt lengsta leikhlé sem sögur fara af.
50. mín
Baldur Bett var nærri því koma Fylki yfir með föstu skoti fyrir utan vítateig en boltinn fór rétt framhjá.
54. mín
Víkingar aðgangsharðir í vítateig Fylkismanna en gengur illa að koma boltanum á markið.
58. mín
Gult spjald
Kristinn J. Magnússon
Fyrir kjaftbrúk eftir að dómarinn dæmdi ansi tæpa aukaspyrnu á miðjum vellinum.58. mín
InnHelgi Sigurðsson
ÚtKarel Sigurðsson
Gamla brýnið komið inn á og Víkingar setja meiri kraft í sóknina.
62. mín
Albert Brynjar Ingason var nærri því að koma boltanum í netið eftir fínt spil hans og Rúriks Andra Þorfinnssonar. Albert setti hins vegar knöttinn himinhátt yfir af stuttu færi.
63. mín
InnHalldór Smári Sigurðsson
ÚtKristinn J. Magnússon
66. mín
InnStyrmir Erlendsson
ÚtRúrik Andri Þorfinnsson
Rúrik Andri hefur verið sprækur í seinni hálfleik og var rétt í þessu kominn í álitlegt færi en enn og aftur fór boltinn himinhátt yfir.
Rúrik var síðan tekinn af leikvelli.
69. mín
Ólafur Þórðarson sýndi tilþrif leiksins þegar hann tók fasta sendingu Colin Marshall á bringuna og uppskar lófatak úr stúkunni. Sá gamli kann þetta ennþá.
80. mín
Gult spjald
Davíð Þór Ásbjörnsson
Fyrir að reyna stöðva sókn Víkinga, dómarinn lét leikinn halda áfram þar sem Baldur Ingimar Aðalsteinsson var kominn í fínt færi en Þórir Hannesson komst í veg fyrir skot hans.81. mín
InnViktor Jónsson
ÚtKári Sveinsson (m)
82. mín
MAAAARK!
Viktor Jónsson
Hann var að koma inn á, fékk fína sendingu inn fyrir vörn Fylkis og kláraði færið vel, setti boltann framhjá Fjalari í markinu. Viktor hafði verið inn á í um 17 sekúndur þegar hann skoraði.83. mín
InnElís Rafn Björnsson
ÚtMagnús Þórir Matthíasson
85. mín
MAAAARK!
Hinrik Atli Smárason
Skoraði fínt mark eftir flotta sókna þar sem Tómas Joð átti fast skot í stöngina en Hjörtur Hermannsson, fæddur 1995, fylgdi vel eftir.89. mín
Albert Brynjar í ákjósanlegu færi eftir góða sendingu frá Styrmi Gunnarssyni en Mark Rutgers gerði vel og komst á milli.
Það hefur færst fjör í leikinn og áhorfendur meira að segja farnir að taka við sér.
90. mín
Gult spjald
Kristinn Jens Bjartmarsson
91. mín
Albert Brynjar aftur í fínu færi en skotið naumlega framhjá.
93. mín
MAAAARK!
Ásgeir Örn Arnþórsson
Ásgeir Örn tryggir Fylki sigur úr síðustu spyrnu leiksins.93. mín
Leiknum er lokið með 2-1 sigri Fylkis. Viðtöl og frekari umfjöllun hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.



