Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
VÍS völlurinn
Þór
Þór
3 - 1
Grótta
Grótta
0 - 142' Pétur Theódór Árnason Ragnar Óli Ragnarsson 55'1 - 1Kristófer Kristjánsson 60'2 - 1Rafael Alexandre Romao Victor 95'3 - 1
Dómari: Guðgeir Einarsson

SKÝRSLAN: Þorparinn glaður

Hvað réði úrslitum?

Eftir ansi dapra frammistöðu í fyrri hálfleik komu Þórsarar sterkari í þann seinni. Erfitt að ráða við Ragnar Óla sem kom Þórsurum á bragðið. Gríðarlega sterkt fyrir Þórsara að fá Rafael Victor af stað aftur sem hefur ekki verið iðinn við kolann að undanförnu en hann skoraði aðeins sitt þriðja mark í Lengjudeildinni í kvöld.

Bestu leikmenn

1. Ragnar Óli Ragnarsson

Eins og klettur í vörninni og hóf endurkomu Þórs með góðu skallamarki.

2. Kristófer Kristjánsson

Kom Þórsurum yfir og átti mjög góðan leik.

Atvikið

Þór fékk fullt af hornspyrnum í síðari hálfleik og það skilaði sér þegar liðið skoraði úr tveimur slíkum með fimm mínútna millibili og snéri blaðinu við. Fáir sem vinna Ragnar Óla í loftinu en Rafal Stefán markvörður Gróttu taldi að brotið hafi verið á sér í seinna markinu sem Kristófer skoraði.

Hvað þýða úrslitin?

Þórsarar búnir að næla í sjö stig í síðustu þremur leikjum og eru komnir upp í 7. sæti. Liðið á leik inni gegn Grindavík á mánudaginn og getur stokkið upp í 5. sætið með sigri þar. Grótta hefur ekki unnið í sjö leikjum í röð og er stigi frá fallsæti.

Vondur dagur

Erfitt val, Gróttumenn átt erfitt uppdráttar undanfarið og voru ekki klárir í baráttuna hjá Þórsurum í seinni hálfleik.

Dómarinn - 7

Þetta var bara flottur dagur hjá honum
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.