Fotbolti.net
Besta deildin
@utanvallarSævar Þór Sveinsson
Sævar Þór Sveinsson
FH
FH
Besta-deild kvenna
Kaplakrikavöllur
0 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 135' Birta Georgsdóttir0 - 250' Karitas Tómasdóttir0 - 364' Katrín Ásbjörnsdóttir (víti)0 - 492' Katrín Ásbjörnsdóttir
Dómari: Bríet Bragadóttir

SKÝRSLAN: Breiðablik á toppnum í landsleikjapásunni

Hvað réði úrslitum?

FH missti hreinlega dampinn í seinni hálfleik. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn og opinn. Eins og Guðni benti á í viðtali eftir leik þá köstuðu hreinlega sumir leikmenn hvíta handklæðinu eftir annað mark Breiðabliks og þá var á brattan að sækja gegn Blikum sem spiluðu vel.

Bestu leikmenn

1. Katrín Ásbjörnsdóttir

Skoraði tvö mörk og átti stóran þátt í fyrsta markinu. Hélt vel í boltann og var góður uppspilspunktur fyrir liðið.

2. Karitas Tómasdóttir

Átti góða frammistöðu á miðjunni og skoraði mark í þokkabót.

Atvikið

Annað mark Breiðabliks var vendipunktur leiksins og það syrti í álinn fyrir FH það sem eftir lifði leiks.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar halda sér í efsta sæti deildarinnar með aðeins betri markatölu en Valur. Tapið hefur ekki mikil áhrif á FH þar sem Víkingur tapaði einnig í dag og sitja þær því ennþá í fjórða sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Vandræðagangur í vörn FH í fyrstu tveimur mörkunum, eitthvað sem þú vilt ekki þegar þú spilar á móti Breiðablik. Síðan vildi ég fá meira frá Andreu Rán sem er, að mínu mati, besti leikmaður FH. Þegar þú mætir svona góðu liði eins og Breiðablik þá viltu að svona leikmaður eigi stórleik en það gerðist ekki í dag.

Dómarinn - 8

Góð frammistaða hjá Bríeti og hennar teymi í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.