SKÝRSLAN: Copy/paste á VÍS vellinum
Hvað réði úrslitum?
Klassíski 'leikur tveggja hálfleika' leikurinn. Grindvíkingar náðu forystunni strax í upphafi leiks og voru sterkari aðilinn þar til Þórsarar gerðu þrefalda breytingu í hléinu. Þar ná heimamenn forystunni og eru tveimur mönnum fleiri en missa samt niður forystuna! Set stórt spurningamerki við Aron Birki í marki Þórs, skot á nær, á að taka það.
Bestu leikmenn
1. Rafael Victor
Rafael Victor verið sterkur undanfarið og hefur bætt mörkunum við í síðustu tveimur leikjum, vonandi fyrir Þórsara að hann sé kominn í gang.
2. Kristófer Konráðsson
Skapaði mikið fyrir gestina sem voru óheppnir að nýta það ekki betur.
Atvikið
Hellingur af atvikum í þessu. Verð að nefna hér bara jöfnunarmarkið. Dagur Ingi kemst í gegn á lokamínútur venjulegs leiktíma og tryggir níu leikmönnum Grindavíkur stig á erfiðum útivelli.
Hvað þýða úrslitin?
Grindavík í 4. sæti með 17 stig og Þór komið upp í 6. sæti með 14 stig en bæði lið verið á fínu skriði að undanförnu.
Vondur dagur
Menn voru svolítið að keppast um að vera í þessum lið, það poppuðu nokkrir upp í hausinn á mér í gegnum leikinn sem gætu verið nefndir hér. Þegar öllu er á botnin hvolft þá var þetta alls ekki gott hjá Þórsurunum. Annan leikinn í röð komast þeir ekki í gang fyrr en í seinni en það dugði ekki til í þetta sinn, tveimur fleiri fengu þeir á sig jöfnunarmarkið.
Dómarinn - 8.5
Frábær leikur hjá honum. Fullt af atvikum sem hægt er að ræða og hann tók vel á. Rauðu spjöldin algjör pjúra spjöld. Dýfa og gult, rétt.


