Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
FH
FH
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Sól og sumar! Allt upp á 10
3 - 1
HK
HK
Ísak Óli Ólafsson 12'1 - 01 - 133' Birnir Breki BurknasonBjarni Guðjón Brynjólfsson 79'2 - 1Sigurður Bjartur Hallsson 85'3 - 1
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Leik lokið!
FH fara með sigur hérna á heimavelli í kvöld. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
92. mín
Kjartan Kári að sleppa í gegn en setur boltann yfir markið!
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
88. mín
Karl Ágúst með skalla að marki sem Sindri Kristinn tekur.
FH
85. mín
FH AÐ GANGA FRÁ ÞESSU!

Sigurður Bjartur Hallsson (stoðsending: Vuk Oskar Dimitrijevic)

Frábærlega gert hjá FH! Vuk Oskar með flottan sprett og kemur boltanum milli hafsenta HK og til Sigurðar Bjarts sem leggur hann svo innanfótar í fjærhornið!
FH
84. mín
Gult spjald

Jóhann Ægir Arnarsson

Réttilega gult fyrir NFL tæklingu á Karl Ágúst.
HK
82. mín
Gult spjald

Ómar Ingi Guðmundsson

FH
79. mín
ÞETTA VAR SKOT!!

Bjarni Guðjón Brynjólfsson

FH með hornspyrnu sem dettur fyrir utan teig til Bjarna Guðjóns sem tekur snertingu og leggur hann fyrir sig áður en hann þrumar boltanum svo upp í samskeytin!! Þetta var alvöru mark!!
78. mín
Smá samskiptaleysi í öftustu línu HK og Kristján Snær næstum búin að skalla boltann framhjá Arnari Freyr í markinu en Arnar Freyr nær að teygja sig tilbaka og handsama boltann.
77. mín
FH búnir að ýta liðin sínu vel upp völlinn.
76. mín
Gyrðir og Kjartan Kári í flottum færum með stuttu millibili en ná ekki að koma boltanum á markið.
75. mín
Stuttu fyrir skiptingu vildu HK fá víti þegar Brynjar Snær reyndi að koma með fyrirgjöf en Ívar Orri fljótur að veifa höndum um að ekkert væri í þessu.
FH
75. mín
InnVuk Oskar Dimitrijevic
ÚtArnór Borg Guðjohnsen
HK
74. mín
InnViktor Helgi Benediktsson
ÚtÍvar Örn Jónsson
73. mín
Karl Ágúst með skot sem Sindri Kristinn slær til hliðar.
72. mín
Böðvar með hornspyrnu sem fellur niður í teignum hjá HK en HK-ingar ná að koma boltanum burt.
FH
70. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtBjörn Daníel Sverrisson
FH
70. mín
InnBjarni Guðjón Brynjólfsson
ÚtÓlafur Guðmundsson
HK
68. mín
Gult spjald

Brynjar Snær Pálsson

Lét FH ekki fá boltann eftir að búið var að flauta.
HK
67. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtAtli Hrafn Andrason
HK
67. mín
InnAtli Arnarson
ÚtGeorge Johannes Nunn
65. mín
Kjartan Kári tekur aukaspyrnuna en hún er ekkert sérstök og fer framhjá markinu.
HK
64. mín
Gult spjald

Atli Hrafn Andrason

Dregur Björn Daníel niður rétt fyrir utan teig.
HK
63. mín
Gult spjald

Birkir Valur Jónsson

Brýtur á Sigurði Bjart sem er að fara keyra upp í skyndisókn.
62. mín
Bæði lið að reyna komast á bakvið varnirnar en gengur erfiðlega.
59. mín
HK með flotta pressu og Sindri Kristinn sparkar í horn.
56. mín
Grétar Snær með skot sem Arnar Freyr ver.
52. mín
Afskaplega lítil hætta sem skapaðist úr þessu horni.
52. mín
HK fær sitt fyrsta horn í leiknum.
FH
51. mín
Gult spjald

Arnór Borg Guðjohnsen

50. mín
Kjartan Kári kemur inn á vítateig og nær skoti á markið sem Arnar Freyr slær út í teig.
49. mín
Ísak Óli ekki langt frá því að endurtaka leikinn frá því í fyrri hálfleik og skora eftir horn en boltinn yfir markið.
48. mín
FH ekki lengi að vinna sínu fyrstu hornspyrnu í síðari hálfleik.
46. mín
FH sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Liðin fara jöfn til búningsklega. FH réði lögum og lofum hérna í upphafi leiks en svo eftir því sem líða tók á leikinn kom smá sjálfstraust í HK og þeir náðu inn jöfnunarmarki. Verið mun jafnara síðan þá. Tökum okkur stutta pásu.
45. mín
+4 Allt annað að sjá til HK liðsins núna miðað við í upphafi leiks.
45. mín
+1 Kraftur í Atla Þór sem lætur Ólaf Guðmunds finna fyrir sér. Aðeins meiri grimmd í HK núna miðað við byrjun leiks.
45. mín
Fimm mínútum bætt við.
45. mín
Atli Hrafn með skot yfir markið.
FH
44. mín
InnJóhann Ægir Arnarsson
ÚtÁstbjörn Þórðarson
Sá ekki hvað hefur komið fyrir Ástbjörn en hann hefur líklega eitthvað meiðst því hann hefur verið flottur upp vænginn hjá FH.
44. mín
Það er smá bras í öftustu línu FH en Sindri Kristinn kemur vel út og tæklar boltann útaf.
40. mín
FH að næla sér í enn eina hornspyrnuna.
36. mín
FH hótar öðru marki en HK ná að henda sér fyrir! Ísak Óli fær boltann rétt fyrir utan teig og nær flottu skoti sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.
HK
33. mín
HK JAFNA!!!

Birnir Breki Burknason

JAHÉRNA HÉR!!! FH tekur hornspyrnu sem HK nær að koma frá til George Nunn sem sér Atla Þór keyra upp miðjuna einan og sendir hann í gegn. Ástbjörn nær að hlaupa hann uppi og nær frábærri tæklingu á ögurstundu en Sindri Kristinn er þegar kominn út til að loka og boltinn berst út þar sem Birnir Breki mætir í seinni bylgunni og setur hann í gegnum smá pakka fyrir framan sig og í autt netið! HK JAFNA!
31. mín
George Nunn tekur aukaspyrnuna og setur hana undir vegginn en Sindri Kristinn ver þetta vel! Flottur kafli frá HK hérna.
30. mín
Óli Guðmunds í allskonar brasi aftast og missir boltann. HK kemur boltanum yfir á George Nunn sem nær föstu skoti á markið en Sindri Kristinn ver þetta vel og FH brýtur svo rétt fyrir utan teig!
27. mín
HK með sjaldséðan bolta fram yfir miðju en sendingin upp í horn slök og út fyrir endalínu.
25. mín
Flott spilamennska hjá FH og fyrirgjöf sem endar með skalla frá Sigurði Bjart rétt framhjá.
HK
20. mín
InnAtli Þór Jónasson
ÚtHákon Ingi Jónsson
Engir sénsar teknir.
18. mín
Grétar Snær fer í gegnum Hákon Inga þegar hann hreinsar bolann og Hákon Ingi steinliggur. Ómar kallar á varamenn sona en sýnist Hákon Ingi ætla að harka áfram.
16. mín
FH verið yfir í allri baráttu þessar fyrstu mínútur.
FH
12. mín
FH TEKUR FORYSTU!

Ísak Óli Ólafsson (stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson)

Kjartan Kári tekur hornspyrnu fyrir FH og á flotta spyrnu fyrir markið þar sem Ísak Óli er frekastur og nær að koma knettinum í netið! Verðskuldað verður bara að segjast!
11. mín
Stöngin!
Þetta virkar alltof auðvelt fyrir FH. Þeir vinna boltann við vítateig HK og keyra inn á teig þar sem Böðvar kemur sendingu fyrir markið og Arnór Borg kemur tánni í boltann og Úlfur Ágúst hoppar yfir boltann til að láta hann fara og hann fer í stöngina!
7. mín
DAUÐAFÆRI!
FH að sundurspila sig í gegnum vörn HK en aftur er það Björn Daníel sem á skot sem fer framhjá markinu. Sigurður Bjartur með flottan bolta í gegnum vörn HK þar sem Björn Daníel tekur við honum og á bara eftir að sigra Arnar Freyr í marki HK en skotið framhjá.
6. mín
Grétar Snær með laglegan bolta yfir vörn HK til Böðvars sem sker boltann út í teig fyrir Björn Daníel en skotið dregst framhjá markinu. Flottur spilkafli hjá FH.
5. mín
Kjartan Kári fer illa með Þorstein Aron en er svo stöðvaður inni á teig.
4. mín
FH vinnur fyrsta horn leiksins. Ástbjörn gerir vel að sækja það.
3. mín
Fyrstu tvær mínúturnar liðnar og boltinn verið úr leik í svona eina og hálfa mín.
1. mín
George Nunn liggur í grasinu og HK sparkar boltanum útaf.
1. mín
Það eru gestirnir sem byrja með boltann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
FH gerir tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik. Grétar Snær Gunnarsson og Arnór Borg Guðjohnsen koma inn í liðið fyrir Vuk Oskar Dimitrijevic og Loga Hrafn Róbertsson. HK gera þá þrjár breytingar á sínu liði. Arnþór Ari Atlason, Ívar Örn Jónsson og Hákon Ingi Jónsson koma inn í liðið fyrir Leif Andra Leifsson, Magnús Arnar Pétursson og Atla Þór Jónasson.
Fyrir leik
Fyrri leikurinn í sumar
Fyrir leik
Þriðja liðið
Ívar Orri Kristjánsson fær það verkefni að dæma þennan leik í kvöld. Honum til aðstoðar verða Kristján Már Ólafs og Patrik Freyr Guðmundsson. Elías Ingi Árnason er fjórði dómari og sérlegur tækimaður á skiltinu. Jón Sigurjónsson sér svo um að allt fari rétt fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Vilja ekki hellast úr lestinni
FH hafa verið að tína stig hér og þar. Hafnfirðingarnir mættu KA í síðasta leik og misstu þann leik niður í jafntefli. Sú niðurstaða verður hinsvegar að teljast að einhverju leyti sanngjörn þegar öllu er á botnin hvolft. FH hafa sótt átta stig úr síðustu fimm leikjum sínum og aðeins tapað einum. FH hafa sótt sterka sigra gegn t.d. Breiðablik. FH eru í baráttu við ÍA um 4.sætið en með sigri í kvöld geta þeir sett pressu á Breiðablik sem yrði þá bara þremur stigum frá í 3.sætinu. Tapi FH stigum er hætta á að þeir hellist úr lestinni. Markaskorun hefur aðeins verið til vandræða og hafa FH af toppliðunum skorað minnst eða 23 mörk. Þeir hafa fengið á sig 22 mörk og eru því með plús einn í markatölu. Mörk FH hafa raðast niður á: Úlfur Ágúst Björnsson - 5 mörk Sigurður Bjartur Hallsson - 5 mörk Björn Daníel Sverrisson - 4 mörk Kjartan Kári Halldórsson - b>3 mörk Ástbjörn Þórðarson - 2 mörk Vuk Oskar Dimitrijevic - 2 mörk *Aðrir minna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikur sem þeir vilja gleyma
HK heimsóttu Skagamenn á Írskum dögum í síðustu umferð og fengu vægast sagt slæma útreið á Skipaskaga. HK-ingar töpuðu þar með átta mörkum gegn engu og vilja því eflaust gleyma þeim leik sem allra fyrst. Fyrir það höfðu þeir tapað fyrir KA með tveim mörkum gegn einu. HK hafa sótt 6 stig í síðustu fimm leikjum sínum. Markaskorun hefur verið hausverkur upp í Kórahverfi en HK hefur skorað fæst mörk allra liða í sumar eða 15 talsins. Þeir hafa fengið á sig 31 mark sem gerir mínus 16 í markatölu. Mörk HK hafa raðast niður á: Arnþór Ari Atlason - 5 mörk Atli Þór Jónasson - 3 mörk * Aðrir minna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Besta deildin
Síðustu tveir leikir 14.umferðar fara fram í kvöld. Umferðin byrjaði í lok maí þegar liðin í Evrópu mættust innbyrðis og hélt áfram á fimmtudaginn þegar Fram tóku á móti KR og í gær þegar Vestri og KA mættust. Umferðin hefur spilast svona: Valur 5-1 Stjarnan Breiðablik 1-1 Víkingur R. Fram 1-0 KR Vestri 0-2 KA FH-HK Fylkir-ÍA Stöðutaflan: 1.Víkingur R. - 33 stig 2.Valur - 28 stig 3.Breiðablik - 27 stig 4.ÍA - 23 stig 5.FH - 21 stig 6.Fram - 19 stig 7.Stjarnan - 17 stig 8.KA - 15 stig 9.KR - 14 stig 10.HK - 13 stig 11.Vestri - 11 stig 12.Fylkir - 8 stig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin á Kaplakrikavöll þar sem heimamenn í FH taka á móti HK í 14.umferð Bestu deild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.