Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
Í BEINNI
Meistaradeild kvenna - forkeppni
Breiðablik
LL 0
2
Sporting
ÍR
3
0
Grindavík
1-0 Dennis Nieblas '47 , sjálfsmark
Renato Punyed Dubon '54 2-0
Bragi Karl Bjarkason '79 3-0
12.07.2024  -  19:15
ÍR-völlur
Lengjudeild karla
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Maður leiksins: Renato Punyed
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
4. Jordian G S Farahani ('62)
6. Kristján Atli Marteinsson
9. Bergvin Fannar Helgason
11. Bragi Karl Bjarkason ('82)
13. Marc Mcausland (f)
14. Guðjón Máni Magnússon ('73)
17. Óliver Elís Hlynsson
18. Róbert Elís Hlynsson ('82)
25. Arnór Gauti Úlfarsson
30. Renato Punyed Dubon ('73)

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
5. Hrafn Hallgrímsson
8. Alexander Kostic ('73)
19. Hákon Dagur Matthíasson ('73)
22. Sæþór Ívan Viðarsson ('82)
23. Ágúst Unnar Kristinsson ('62)
77. Marteinn Theodórsson ('82)

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Halldór Arnarsson
Helgi Freyr Þorsteinsson
Andri Magnús Eysteinsson
Sindri Rafn Arnarsson
Sigmann Þórðarson

Gul spjöld:
Jordian G S Farahani ('61)
Arnór Gauti Úlfarsson ('81)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Frábær sigur hjá ÍR sem eru á stórkostlegu skriði.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.

90. mín
Tveimur mínútum bætt við.
89. mín
Bergvin leggur hér upp mark fyrir Bergvin. Rangstæða þó.
88. mín Gult spjald: Kwame Quee (Grindavík)
Fyrir ollara á Ágúst
87. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Grindavík) Út:Kristófer Konráðsson (Grindavík)
85. mín
Einar Karl fær skot eftir hornið sem er langt yfir.
84. mín
Grindavík fær horn.
82. mín
Inn:Marteinn Theodórsson (ÍR) Út:Róbert Elís Hlynsson (ÍR)
Tveir uppaldnir ÍR-ingar af velli eftir frábært dagsverk.
82. mín
Inn:Sæþór Ívan Viðarsson (ÍR) Út:Bragi Karl Bjarkason (ÍR)
Tveir uppaldnir ÍR-ingar af velli eftir frábært dagsverk.
81. mín Gult spjald: Arnór Gauti Úlfarsson (ÍR)
Fyrir að kasta boltanum.
79. mín MARK!
Bragi Karl Bjarkason (ÍR)
Stoðsending: Alexander Kostic
Hann er orðinn einn markahæstur í þessari deild! Alli Alli Kostic, so good they named him twice, þræði boltann í gegn á Braga sem skorar af miklu öryggi!
75. mín
ÍR fær horn númer 13 strax í kjölfarið en ekkert verður úr því. ´
75. mín
Bergvin skýtur í varnarmann og aftur fyrir.
73. mín
Inn:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR) Út:Guðjón Máni Magnússon (ÍR)
73. mín
Inn:Alexander Kostic (ÍR) Út:Renato Punyed Dubon (ÍR)
70. mín
Inn:Kwame Quee (Grindavík) Út:Josip Krznaric (Grindavík)
70. mín
Inn:Marinó Axel Helgason (Grindavík) Út:Matevz Turkus (Grindavík)
68. mín
Langur bolti inn á teig og skyndilega er bara Renato aleinn en setur hann yfir.
67. mín
Bragi gerir frábærlega hér og keyrir í átt að marki áður en hann skýtur rétt framhjá, inni þar sem ég sit.
66. mín
Róbert ELís sækir enn eitt horn ÍR, EKki með töluna á þessu en hún er ansi há. Ekkert varð þó úr þessu.
64. mín
Grindavík vill víti. Lítið í þessu.
62. mín
Inn:Ágúst Unnar Kristinsson (ÍR) Út:Jordian G S Farahani (ÍR)
61. mín Gult spjald: Jordian G S Farahani (ÍR)
Leiktöf, Missir af næsta leik vegna leikbanns.
60. mín
Grindavík kemur þessu í burt.
59. mín
Christian nálægt því að skora sjálfsmark en endar með horni.
58. mín
Bragi sækir enn annað hornið.
57. mín
Óliver bara nálægt því að skora beint úr horninu. Aron slæmir hönd í þetta.
56. mín
ÍR með öll völd, Guðjón sækir horn.
54. mín MARK!
Renato Punyed Dubon (ÍR)
ÍR að tvöfalda! Bragi Karl tekur aukaspyrnuna sem Bergvin sótti og Aron Dagur ver út í teiginn þar sem Renato er mættur og setur hann í stöngina og inn.

ÍR eru óstöðvandi þessa dagana!
53. mín Gult spjald: Christian Bjarmi Alexandersson (Grindavík)
Brýtur á Bergvin rétt fyrir utan teig.
50. mín
Kristófer Konráðsson með hörkuskot sem fer rétt yfir!

FLottur snúningur á þessu.
47. mín SJÁLFSMARK!
Dennis Nieblas (Grindavík)
MARK!!!!! Óliver Elís með horn sem Dennis skallar inn!

ÍR leiðir í Mjóddinni.
47. mín
VÁ! Guðjón Máni með skot sem er frábært og á leið uppi í smaskeytin en Aron ver í horn.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Við fáum mörk í þessum seinni hálfleik, því lofa ég.
45. mín
Hálfleikur
ÍR töluvert betra liðið í þessum fyrri hálfleik en ekki náð að skora, hættulegasta færið fékk Bragi í upphafi leiks.
45. mín
Renato með hættulegt skot sem Aron ver vel.
45. mín
Ekkert varð úr þessu horni heldur.
45. mín
Gulir fá horn.
44. mín Gult spjald: Matevz Turkus (Grindavík)
Brýtur á Guðjóni út við hliðarlínu.
40. mín
ÍR ekki að ná að nýta hornin
39. mín
Óliver með flottan bolta fyrir og ÍR fær annað horn.
38. mín
Bergvin gerir frábærlega og snýr vel og ÍR mætir í 3 gegn 2, Bergvin leggur hann út á Renato sem sækir horn. Ekkert varð svo úr því.
30. mín
Guðjón Máni með arfaslakt skot beint á Aron.
28. mín
Bragi með fína takta og leggur hann út á Róbert sem á skot hátt yfir.
25. mín
Renato heldur leik áfram, Mið-amerískur stríðsmaður.
23. mín
Renato kominn á fætur og kominn með vafning um hausinn, virðist hafa fossblætt.
21. mín
Renato liggur enn eftir þetta höfuðhögg, spurning hvort hann geti haldið leik áfram.
19. mín
Renato liggur eftir samstuð og fær aðhlynningu, vonandi í lagi með hann.
17. mín
Horn! Fyrirgjöf fyrir sem Óliver er hársbreidd frá því að skalla í eigið net og þeir gulu fá horn en brot dæmt inn í teig.
14. mín
ÚFFFF Josip Krznaric nálægt því að skora en rétt framhjá!

Sá þennan inni.
13. mín
ÍR kemur þessu í burt að lokum.
12. mín
Grindavík fær horn.
9. mín
Aron Dagur í smá basli! Renato leikur með boltann á skot beint á Aron sem slær hann illa og beint á Róbert sem á líka skot beint á Aron sem ver aftur.
7. mín
Kristján Atli með lúmskt skot sem Aron er í vandræðum með. Varið í horn.
4. mín
Bjargað á línu! Róbert kemur með flottan bolta fyrir þar sem Bragi er mættur en bjargað á línu.
3. mín
Guðjón Máni með fyrstu marktilraun leiksins, skalli sem er laus og beint á Aron.
1. mín
Óliver Elís hér með misheppaðann bolta sem fer í markspyrnu.
1. mín
Leikur hafinn
Grindvíkingar byrja! Sækja í átt að nýrri verslun Garðheima.
Fyrir leik
Styttist í þetta Liðin eru að rölta til vallar og styttist í upphafsflautið.
Fyrir leik
Við hverju má búast? Liðin hafa ekki mæst oft í gegnum tíðina og sjaldan verið saman í deild, seinast gerðist það árið 1998 er bæði lið voru í efstu deild en þá sótti ÍR fjögur stig í tveimur viðureignum þeirra. Alls hafa þau mæst sextán sinnum, ÍR hefur unnið fimm sinnum, þrisvar sinnum hafa liðin skilið jöfn og átta sinnum hefur Grindavík unnið.

Fyrri leikur liðanna í ár lauk með 1-1 jafntefli en þá jafnaði ÍR undir lokin með marki frá Braga Karli Bjarkasyni. Einn eftirminnilegasti leikur liðanna er líklega bikarleikur liðanna árið 2022 í 32-liða úrslitum en þar fór ÍR með sigur úr býtum en lesa má um leikinn hér

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
ÍR ÍR-ingar eru eitt af spútnikliðum deildarinnar til þessa en nýliðarnir sitja nú í 5. sæti og eru búnir að hala inn sextán stigum sem er betra en margir bjuggust við, þó að undirritaður sé nú vissulega ekki með hökuna í gólfinu. Liðið er á góðu skriði og er búið að sækja tíu stig í seinustu fjórum en seinast sigraði liðið Aftureldingu, 3-0, þar sem Bragi Karl Bjarkason, markahæsti maður deildarinnar, skoraði sitt sjöunda mark í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík Eftir nokkuð hæga byrjun sem endaði með því að Brynjar Björn Gunnarsson var vikið úr starfi án sigurs hafa Grindvíkingar sótt í sig veðrið og sitja í dag í fjórða sæti deildarinnar með stigi meira en heimamenn. Halli Hróðmars hefur farið vel af stað með liðið og ætlar sér klárlega að halda því áfram með því að sækja önnur þrjú stig hér í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Velkominn í Mjóddina! Komiði sæl og blessuð og verið velkominn í Suður Mjódd, hér fer fram textalýsing frá sex stiga slag ÍR og Grindavíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
Dennis Nieblas
7. Kristófer Konráðsson ('87)
8. Josip Krznaric ('70)
9. Adam Árni Róbertsson
10. Einar Karl Ingvarsson (f)
18. Christian Bjarmi Alexandersson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
23. Matevz Turkus ('70)
26. Sigurjón Rúnarsson
30. Ion Perelló

Varamenn:
11. Símon Logi Thasaphong ('87)
17. Hassan Jalloh
21. Marinó Axel Helgason ('70)
22. Lárus Orri Ólafsson
24. Ingólfur Hávarðarson
77. Kwame Quee ('70)
95. Sölvi Snær Ásgeirsson

Liðsstjórn:
Haraldur Árni Hróðmarsson (Þ)
Marko Valdimar Stefánsson
Hávarður Gunnarsson
Beka Kaichanidis
Jón Aðalgeir Ólafsson
Karim Ayyoub Hernández

Gul spjöld:
Matevz Turkus ('44)
Christian Bjarmi Alexandersson ('53)
Kwame Quee ('88)

Rauð spjöld: