Leik lokið!
Breki flautar leikinn af og Breiðablik vinnur 1-0.
Viðtöl og skýrsla í kvöld.
92. mín
Karitas á hérna gott skot á markið en Tinna ver vel.
90. mín
+5 í uppbótartíma
86. mín
InnMikaela Nótt Pétursdóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
82. mín
Vigdís á skot rétt fyrir utan teig en það fer framhjá.
80. mín
Heiða tekur spyrnuna en hún fer yfir allan pakkann.
79. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
Vigdís vinnur boltann af Ernu og er ein á móti markmanni. Hún skýtur á markið en Tinna sér við henni og ver í hornspyrnu.
75. mín
InnEdith Kristín Kristjánsdóttir
ÚtÍrena Héðinsdóttir Gonzalez
74. mín
Marija vinnur boltann af Ásta, keyrir í átt að teignum og lætur vaða og boltinn fer rétt framhjá stönginni.
74. mín
Mætingin
207 mættir hérna í kvöld.
69. mín
Þóra með skot fyrir utan teig en það fer beint á Telmu.
68. mín
Vigdís með skot fyrir utan teig sem fer framhjá marki.
67. mín
InnÞóra Kristín Hreggviðsdóttir
ÚtKolfinna Baldursdóttir
67. mín
InnKlara Mist Karlsdóttir
ÚtEva Rut Ásþórsdóttir
63. mín
InnKaritas Tómasdóttir
ÚtMargrét Lea Gísladóttir
63. mín
InnKatrín Ásbjörnsdóttir
ÚtBirta Georgsdóttir
62. mín
Gult spjald
Eva Rut Ásþórsdóttir
Reyndi að stoppa skyndisókn en Breki beitti hagnaði.60. mín
InnMarija Radojicic
ÚtGuðrún Karítas Sigurðardóttir
58. mín
Mjög lítið að frétta síðustu mínúturnar. Blikum gengur ágætlega að komast inn í teig Fylkis en ákvörðunartakan á síðasta þriðjungi er ekki búin að vera góð og því ná þær varla góðu skoti á markið. Fylki gengur síðan brösulega að komast upp völlinn.
48. mín
Jakobína með skot utan teigs sem fer beint á Tinnu.
47. mín
Birta með fyrirgjöf fyrir markið en Erna nær að hreinsa boltann. Hefði annars ratað á Vigdísi sem var í mjög góðri stöðu.
46. mín
InnÞórhildur Þórhallsdóttir
ÚtHelga Guðrún Kristinsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Það er Vigdís sem sparkar okkur af stað. Vonandi fáum við aðeins meiri skemmtun í þessum seinni hálfleik.
45. mín
Breiðablik verið meira með boltann í fyrri hálfleik en ekki náð að skapa sér nógu mörg góð færi. Fylkir komst varla á síðasta þriðjung fyrir utan síðustu 5 mínútur fyrri hálfleiks.
43. mín
Abigail tekur spyrnuna en Breiðablik nær að lokum að hreinsa boltann úr teignum.
41. mín
Fylkir fær hornspyrnu
38. mín
Írena tekur spyrnuna en boltinn endar í fanginu á Tinnu.
38. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
32. mín
Heiða reynir skot af 25 metra færi en boltinn fer beint á Tinnu.
32. mín
Írena tekur spyrnuna sem er léleg og Guðrún hreinsar boltann.
31. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
Írena reynir fyrirgjöf en Abigail kemst í boltann.
28. mín
Vigdís er við vítateig Fylkis og þræðir boltann skemmtilega inn fyrir vörnina á Írenu sem reynir skot en það fer framhjá markinu.
27. mín
Abigail tekur spyrnuna stutt á Kolfinnu sem sendir boltinn inn í teig en Kayla gerist brotleg í teignum.
27. mín
Fylkir fær hornspyrnu
25. mín
Írena tekur spyrnuna en Eva skallar þetta í innkast.
24. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
Hrafnhildir sækir þessa hornspyrnu.
19. mín
Írena tekur spyrnuna en ekkert kemur út úr þessari hornspyrnu.
18. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
Írena reynir fyrirgjöf sem Eva kemur í veg fyrir.
18. mín
Írena tekur spyrnuna en Tinna handsamar boltann að lokum.
17. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
Birta á skot sem fer í Signýju.
15. mín
Írena tekur spyrnuna en Fylkir nær að hreinsa þetta í innkast.
15. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
12. mín
Heiða á skot af löngu færi en aldrei hætta í þessu skoti.
11. mín
Abigail tekur spyrnuna en boltinn fer í gegnum allan pakkann.
10. mín
Fylkir fær hornspyrnu
8. mín
MAAAARK!
Ásta Eir Árnadóttir (stoðsending: Írena Héðinsdóttir Gonzalez)
Írena tekur spyrnuna og boltinn ratar til Ástu sem sparkar í átt að netinu. Boltinn fer í Signýju og breytir aðeins um stefnu sem truflar Tinnu í markinu.
7. mín
Breiðablik fær hornspyrnu
Signý nær að komast í fyrirgjöf hjá Hrafnhildi.
4. mín
Abigail tekur spyrnuna sem ratar beint í fangið á Telmu.
4. mín
Fylkir fær hornspyrnu
1. mín
Fylkir byrjar með boltann og þær sækja í átt að Fífunni. Það er Guðrún Karítas sem sparkar okkur af stað.
Fyrir leik
Liðin ganga inn á völl
Breiðablik í grænu og hvítu og Fylkir í appelsínugulu og svörtu.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá sigrinum gegn Stjörnunni í síðustu umferð. Anna Nurmi, Vigdís Lilja Kristinsdóttir, Írena Héðinsdóttir Gonzalez og Margrét Lea Gísladóttir koma inn í byrjunarliðið. Katrín Ásbjörnsdóttir og Karitas Tómasdóttir taka sér sæti á bekknum í þeirra stað, Andrea Rut Bjarnadóttir tekur út leikbann vegna uppsafnaðra áminninga og Barbára Sól Gísladóttir er utan hóps.
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Fylkis, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá sigrinum gegn Tindastóli í síðustu umferð. Mist Funadóttir og Viktoría Diljá Halldórsdóttir koma inn í byrjunarliðið í stað Þórhildar Þórhallsdóttur, sem er á bekknum, og Írisar Unu Þórðardóttur sem er utan hóps.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar
Magnús Haukur Harðarson þjálfari kvennaliðs Fjölnis sem spilar í 2. deild kvenna er spámaður umferðarinnar.
Breiðablik 4 - 0 Fylkir
Nik fór í heimahagana á Seyðisfirði til að sækja sér orku en orkan þar er mögnuð og verður þetta auðveldur leikur fyrir vikið. Katrín Ásbjörnsdóttir skorar þrennu og Ásta Eir skorar líka og fagnar því að hætti hússins

Fyrir leik
Félagsskiptaglugginn
Á dögunum gekk Elfa Karen Magnúsdóttir til liðs við Fylki frá Keflavík. Hún er kantmaður fædd árið 2005 og hefur spilað 36 leiki í efstu deild.
Lítið er að frétta hjá Breiðabliki í þessum málum. Edith Kristín Kristjánsdóttir skipti yfir til Blika frá venslaliðinu Augnablik og fékk nokkrar mínútur gegn Stjörnunni í síðasta leik. Undirritaður spurði Nik Chamberlain eftir síðasta leik hvort hann myndi aðhafast eitthvað á félagsskiptamarkaðnum en Nik hélt þétt að sér spilunum þegar hann svaraði þeirri spurningu.

Fyrir leik
Dómarateymið í dag
Breki Sigurðsson er með flautuna í dag. Honum til halds og trausts á hliðarlínunum eru þau Eydís Ragna Einarsdóttir og Kári Mímisson. Atli Haukur Arnarsson er varadómari og eftirlitsmaður er Jón Sveinsson.
Fyrir leik
Velkomin!
Komið sæl kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá 14. umferð í Bestu deild kvenna þar sem Breiðablik tekur á móti Fylki á Kópavogsvelli.





