Leik lokið!
Þessu er lokið hér í Víkinni. Færin komu en ekki mörkin í dag.
Nánari umfjöllun síðar í kvöld.
94. mín
Hulda Ösp vinnur horn fyrir Víkinga.
92. mín
Bergdís
Með frábært skot úr D-boganum sem stefnir í hornið en Mollee með enn betri vörslu og boltinn í horn.
90. mín
Uppbótartími er að lágmarki fjórar mínútur
89. mín
Botninn á Ernu bjargar Víkingum
Kristrún Rut í hörkufæri í teignum og með fínt skot en Erna Guðrún setur rassinn í boltann og kemur honum í horn.
86. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtBergþóra Sól Ásmundsdóttir
86. mín
InnHulda Ösp Ágústsdóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
84. mín
Að Víkingur sé ekki búið að skora!
Þvílíkur kraftur í Selmu sem böðlast í gegn með boltann í gegnum þetta vörn Þróttar. Finnur Lindu Líf vinstra megin við sig sem keyrir inn á teiginn og táar boltann yfir markið úr frábæru færi.
81. mín
María Eva bjargar Þrótti
Freyja með gjörsamlega sturlaðann sprett upp hægri vænginn. Gerir lítið úr vörn Þróttar og keyrir upp völlinn. Leggur boltann fyrir markið þar sem María Eva er millimetrum á undan Selmu í boltann og skilar honum í horn.
76. mín
Linda Líf að vinna sig í hörkufæri en Jelena nær að stíga hana út og Mollee kemst í boltann. Jelena verið frábær varnarlega í dag.
74. mín
Gult spjald
Álfhildur Rósa Kjartansdóttir
Fyrir brot á Selmu70. mín
Hvað er AD 2 að gera?
Freyja Karin að sleppa ein í gegn en flaggið fer á loft. Galið að lyfta flaggi enda tveir varnarmenn Víkinga fyrir innan Freyju.
69. mín
Kristrún Rut hársbreidd frá því að setja boltann í netið af stuttu færi eftir aukaspyrnu frá hægri. Boltinn meira fer í hana og hrekkur í átt að marki en Sigurborg Katla vel á verði og grípur.
67. mín
María Eva Eyjólfsdóttir með skot að marki eftir horn Þróttar en boltinn framhjá.
66. mín
InnFreyja Karín Þorvarðardóttir
ÚtMelissa Alison Garcia
65. mín
InnBergdís Sveinsdóttir
ÚtShaina Faiena Ashouri
65. mín
InnLinda Líf Boama
ÚtHafdís Bára Höskuldsdóttir
62. mín
Bergþóra Sól!
Fær boltann innfyrir frá Selmu, er bara sterkari en Jelena og vinnur sig framfyrir hana. Mollee mætir út en Bergþóra leikur á hana en setur boltann hárfínt framhjá tómu markinu.
61. mín
InnKristrún Rut Antonsdóttir
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
61. mín
InnLeah Maryann Pais
ÚtBrynja Rán Knudsen
60. mín
Selma Dögg!
Í algjöru dauðafæri ein á markteig eftir fyrirgjöf Emmu en skallar boltann yfir markið.
52. mín
Mikil orka í Víkingum hér í byrjun. Pressa hátt líkt og í upphafi fyrri hálfleik. Vantar bara færin.
46. mín
Mollee í allskonar veseni með fyrirgjöf frá Emmu Steinsen en kemst upp með. Þróttur hreinsar í innkast.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
45. mín
Flautað til hálfleiks hér. Eftir ákveðna byrjun Víkinga hafa gestirnir unnið sig inn í leikinn og allt hér í járnum.
Komum aftur að vörmu spori með síðari hálfleik.
45. mín
Gult spjald
Sigríður Theód. Guðmundsdóttir
Reynir að rífa Freyju úr treyjunni í skyndisókn.43. mín
Víkingar heppnir
Að því er virðist hættulaus bolti inn á teiginn fer í Gígju og breytir þar með um stefnu. Sigurborg Katla sem var klár í að grípa þarf því að vera fljót að hugsa og skutla sér til að verja í horn.
Ekkert verður úr horninu.
42. mín
Sigríður óheppinn fyrir Þróttara, fær boltann í teig Víkinga en hann skoppar í hendi hennar og Guðmundur Páll flautar leikbrot.
39. mín
Gígja Valgerður í hörkufæri
Boltinn fellur fyrir hana í teignum eftir hornið og nær hún kraftmiklu skoti. Boltinn því miður fyrir hana yfir markið.
38. mín
Freyja með skot fyrir Víkinga, af varnarmanni og í horn.
32. mín
Freyja fer vel með boltann úti til hægri, keyrir inn á völlinn og finnur Birtu Birgis fyrir utan teig Þróttara, hún reynir skotið en boltinn framhjá markinu.
29. mín
Orðið heldur hægt
Hægst verulega á leiknum frá því sem var í upphafi. Bæði lið eiginlega komin í skotgrafirnar og gefa fá færi á sér.
Þróttur vinnur aukaspyrnu á vallarhelmingi Víkinga.
Boltinn af höfði Birtu i átt að eigin marki en Sigurborg í markinu með þetta í teskeið.
22. mín
Leikurinn jafnast
Lið Þróttar unnið sig betur inn í leikinn. Barátta á miðjunni einkennandi þessar mínútur.
15. mín
Gestirnir að vakna
Sigríður með skot að marki eftir fínasta sprett en boltinn framhjá markinu.
13. mín
Þá ógnaði Þróttur
Caroline Murray með skot af talsverðu færi eftir að Þróttur vann boltann hátt á vellinum.
Skotið yfir markið.
12. mín
Eitt lið á vellinum.
Allt Víkingur hér sem þrýsta liði Þróttar neðar og neðar á völlinn, heyrir til undantekninga að lið Þróttar fari fram yfir miðju.
9. mín
Frábær skipting hjá Shaina f´ra vinstri til hægri yfir á Freyju, Freyja leikur aðeins inn á völlinn og býr sér til svæði fyrir skot en varnarmenn komast fyrir skot hennar. Sóley María vel staðsett.
7. mín
Lið Víkinga talsvert ákveðnara hér á fyrstu mínútunum. Færin þó ekki látið sjá sig.
4. mín
Góð sending innfyrir vörn Þróttar fyrir Hafdísi að elta, hún fljótari en Jelena Tinna. Sér Bergþóru mæta í hlaup en nær ekki að finna hana með sendingu og varnarmenn komast fyrir.
1. mín
Þetta er farið af stað í Vikinni, Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Magnús Haukur Harðarson, þjálfari Fjölnis, spáir í leiki umferðarinnar. Um leikinn í Víkinni sagði hann.
Víkingur R. 3 - 2 Þróttur R.
Þessi mun hafa það allt. Óli K er í stuði eftir sigur á FH en John verður í ennþá meira stuði eftir sigurinn á Akureyri og verður þetta algjör borðtennisleikur. Leah skorar fyrsta mark leiksins en Bergþóra og Selma svara með tveimur mörkum, Melissa kemur aftur inn af bekknum og jafnar leikinn með mögnuðu marki en á 90+ kemur sigurmarkið frá Huldu Ösp sem er vanmetnasti leikmaður deildarinnar að mínu mati og John fer syngjandi inn í helgina.

Fyrir leik
Dómari
Guðmundur Páll Friðbertsson er með flautuna í hamingjunni í kvöld. Honum til aðstoðar eru Sigurður Schram og Ásbjörn Sigþór Snorrason. Steinar Stephensen er svo fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er Ólafur Ingi Guðmundsson.

Fyrir leik
Víkingur
Er hægt að tala um þær sem spútniklið deildarinnar eða vissu allir að þær yrðu á þessu róli? Fjórða sætið er þeirra sem stendur og fátt sem bendir til annars en að liðið verði í efri helmingnum þegar skipt verður.
Liðið er samt nokkuð ólíkindatól og hefur átt misjafna leiki þetta sumarið. John Andrews er á því máli sem eðlilegt er að engin leikur í þessari deild sé auðveldur, það er þó himin og haf á milli frammistöðu liðsins í t.d tapi á móti Keflavík á heimavelli og sigri á liði Breiðabliks á sama velli. Finni liðið stöðugleika í sinni frammistöðu á næsta tímabili verður spennandi að sjá hvar lið Víkinga mun standa þá.

Fyrir leik
Þróttur
Eftir mjög hæga byrjun á mótinu hefur lið Þróttar óðum verið að ná sér á strik í undanförnum leikjum. Þrír sigrar í síðustu fimm leikjum hafa breytt stöðu liðsins úr því að sitja á botninum yfir í það að vera í harðri baráttu við Stjörnuna um sæti í efri hluta deildarinnar eftir skiptingu hennar.

Fyrir leik
Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Víkings og Þróttar í Bestu deild kvenna.
Flautað verður til leiks í Víkinni klukkan 18:00




