Fotbolti.net
Tryggvi Guðmundsson
Lengjudeild karla
Hásteinsvöllur
Bjartur og fagur dagur en vissulega rok!
ÍBV
ÍBV
2 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 124' Kaj Leo Í BartalstovuOliver Heiðarsson 79'1 - 1Oliver Heiðarsson 93'2 - 1
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Eyjamenn vinna þjóðhátíðarleikinn. Sanngjarn sigur.
ÍBV
95. mín
InnViggó Valgeirsson
ÚtOliver Heiðarsson
Markaskorarinn fer af velli.
ÍBV
93. mín
Eyjamenn að taka forystuna - Algjörlega ótrúlegt mark!!!

Oliver Heiðarsson

Skelfileg mistök hjá Aroni Snæ. Hann tekur markspyrnuna og hún er alveg hræðileg en hann virðist renna þegar hann sparkar í boltann. Boltinn dettur beint fyrir Oliver og hann gerir mjög vel og tekur hann bara viðstöðulaust frá miðjunni og boltinn í stöngina inn.
Njarðvík
90. mín
Gult spjald

Freysteinn Ingi Guðnason

Fyrir að sparka boltanum í burtu eftir að búið var að flauta.
ÍBV
87. mín
InnVíðir Þorvarðarson
ÚtHermann Þór Ragnarsson
85. mín
Tómas Bent með skalla rétt fram hjá eftir horn frá Vicente.
Njarðvík
82. mín
InnKári Vilberg Atlason
ÚtKaj Leo Í Bartalstovu
Njarðvík
82. mín
InnFreysteinn Ingi Guðnason
ÚtJoao Ananias Jordao Junior
ÍBV
79. mín
Eyjamenn jafna 1-1

Oliver Heiðarsson (stoðsending: Vicente Rafael Valor Martínez)

Vicente tekur hornið beint á hausinn á Oliver sem klárar vel.
78. mín
Oliver keyrir upp hægra megin og setur boltann fyrir markið og þar er Alex Freyr og virðist vera tekinn niður og Eyjamenn volja aftur frá víti. Boltinn dettur fyrir Hermann Þór sem kemur honum aftur fyrir markið á Vicente sem setur boltann fram hjá.
75. mín
Eyjamenn vilja fá víti
Tómas Bent reyndi að losa boltann á Eið Atla og er tekinn niður en Helgi dæmir ekki neitt.
70. mín
Björn Aron með fína fyrirgjöf en Eyjamenn ná að koma boltanum burt.
69. mín
Eyjamenn ná að spila sig upp völlinn og Sverrir fær hann inn fyrir og kemur boltanum fyrir markið en þar er enginn mættur.
68. mín
Alex freyr með fína tilburði og nær að koma sér í skotfæri en skotið er fram hjá.
65. mín
Dauðafæri!!
Alex Freyr setti boltann fyrir markið og Vicente nær að koma snertingu á boltann en tekur á sama tíma eiginlega færið af Oliver og þetta rennur út í sandinn.
ÍBV
63. mín
InnAlex Freyr Hilmarsson
ÚtNökkvi Már Nökkvason
ÍBV
63. mín
InnBjarki Björn Gunnarsson
ÚtSigurður Arnar Magnússon
61. mín
Ibra Camara keyrir upp vinstri vænginn og nær að koma boltanum á Kaj leo sem á skota rétt fram hjá.
ÍBV
55. mín
Gult spjald

Jón Ingason

Fyrir að taka Joao Ananias niður.
52. mín
Færi hjá Eyjamönnum
Guðjón Ernir gerir nokkuð vel og tekur einn tveir með Vicente inn á teig og nær skotinu en það er beint á Aron Snæ í marki Njarðvíkinga.
ÍBV
49. mín
Gult spjald

Sigurður Arnar Magnússon

Fyrir að sparka aftan í Ibra Camara.
46. mín
Sverrir Páll kemur boltanum út á Tómas Bent sem setur boltann rétt fyrir markið.
45. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Njarðvík Leiðir í hálfleik en Eyjamenn hafa verið að fá töluvert hættulegri færi og ættu líklega að vera búnir að skora.
45. mín
Færi!!
Vicente með frábæra sendingu í gegn á Oliver og hann er kominn aftur einn á móti markmanni en Aron Snær sér við honum.
40. mín
Mögulegt víti
Oliver er kominn í dauðafæri einn á móti markmanni. Hann er mjög lengi að skjóta og virðist hafa verið að bíða eftir snertingunni sem mér sýndist hann fá og hann fellur við, en Helgi dæmir ekkert víti.
34. mín
Dauðafæri!
Sverrir Páll í dauðafæri eftir sendingu frá Vicente en Njarðvíkingar með frábæra vörn og ná að hreinsa.
Njarðvík
24. mín
Kemur Njarðvík í 0-1

Kaj Leo Í Bartalstovu

Kaj Leo með frábært mark. Fær boltann rétt fyrir utan teiginn vinsta megin og setur hann laglega í fjærhornið.
22. mín
Njarðvík fá enn eitt hornið en þeir eru ekki að ná að nýta þau neitt sérstaklega.
Njarðvík
18. mín
Gult spjald

Björn Aron Björnsson

Tæklaði Hermann þór.
15. mín
Jón Ingason með skot hátt yfir markið.
14. mín
Góð sókn hjá Eyjamönnum. Oliver kemur boltanum í hlaupið á Sverri Pál og hann nær að vinna fyrsta hornið fyrir Eyjamenn.
12. mín
Vicente Valor með frábæra sendingu inn fyrir á Oliver en hann er flaggaður rangstæður.
10. mín
Enn eitt hornið hjá Njarðvíkingum. Gott horn en það lekur í gegnum allan pakka. Þarna hefði einhver geta potað í boltann.
9. mín
Annað horn hjá Njarðvík.
6. mín
Leikurinn í beinni á Youtube
5. mín
Dauðafæri!!!
Hjörvar Daði er allt of lengi að koma boltanum í burtu og Kenneth nær til boltans en Jón Ingason nær að koma sér fyrir boltann og þeir fá horn.
2. mín
Færi
Góð spyrna á fjær beint á Indriða Áka sem stýrir boltanum rétt fram hjá.
2. mín
Njarðvík fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Eyjamenn byrja með boltan og leika í átt að Týsvelli á móti vindinum.
Fyrir leik
Markalaust síðast
Liðin mættust 26. maí síðastliðinn á Rafholtsveginum í Njarvík. Þá fóru leikar 0 - 0 en frekar má lesa um þann leik hér.

Fyrir leik
Staðan í deildinni
Það má búast við hörkuleik í dag en liðin eru hnífjöfn í töflunni þegar 14 leikjum er lokið. Þetta er síðasti leikur 15. umferðar og ÍBV er í 2. sæti með 25 stig, eins og Njarðvík sem er í þriðja sætinu.

ÍBV er með 13 mörk í plús en Njarðvík er með átta mörk í plús.

1. Fjölnir - 32 stig
2. ÍBV - 25
3. Njarðvík - 25
4. Keflvavík - 24
5. ÍR - 23
6. Þróttur - 20
7. Afturelding - 20
8. Þór - 17
9. Grindavík - 17
10. Leiknir - 15
11. Grótta - 13
12. Dalvík/Reynir - 10
Fyrir leik
Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson dæmir leikinn í dag. Hann er með þá Egil Guðvarð Guðlaugsson og Guðmund Inga Bjarnason sér til aðstoðar á línunum. Ómar Smárason er eftirlitsmaður KSÍ.
Helgi Mikael dæmir í dag. | Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Þjóðhátíðarleikurinn
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign ÍBV og Njarvíkur í Lengjudeild karla.

Leiki er um Þjóðhátíð á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum klukkan 14:00 og því má búast við að það verði mikið um dýrðir.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.