Fotbolti.net
Besta deildin
Kjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
BONGÓ!
Þróttur R.
Þróttur R.
2 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 126' Birta Georgsdóttir0 - 245' Karitas TómasdóttirMelissa Alison Garcia 51'1 - 21 - 354' Vigdís Lilja Kristjánsdóttir1 - 470' Samantha Rose SmithCaroline Murray 79'2 - 4
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Öruggur sigur Blika staðreynd hér í dag, Sigurinn síst of stór.

Viðtöl og skýrsla koma inn hér seinna í kvöld.
90. mín
Þremur mínútúm bætt við hérna í dag.
Breiðablik
86. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtHeiða Ragney Viðarsdóttir
Breiðablik
86. mín
InnMikaela Nótt Pétursdóttir
ÚtSamantha Rose Smith
Þróttur R.
81. mín
InnLea Björt Kristjánsdóttir
ÚtSóley María Steinarsdóttir
Þróttur R.
79. mín
Er þetta séns?

Caroline Murray (stoðsending: Freyja Karín Þorvarðardóttir)

Slakur varnarleikur hjá Blikum.

Freyja grimmari en Telma í markinu sem grípur í tómt. Hún leggur boltann út í teiginn á Caroline sem skorar.
78. mín
Hrafnhildur Ása hér sneggri en allir á vellinum og sloppinn ein í gegn en Mollee ver vel.
Breiðablik
74. mín
InnKatrín Ásbjörnsdóttir
ÚtKaritas Tómasdóttir
Breiðablik
74. mín
InnAgla María Albertsdóttir
ÚtBirta Georgsdóttir
Þróttur R.
71. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtÍsabella Anna Húbertsdóttir
Þróttur R.
71. mín
InnFreyja Karín Þorvarðardóttir
ÚtMelissa Alison Garcia
Breiðablik
70. mín
Blikar gera út um þetta!

Samantha Rose Smith (stoðsending: Birta Georgsdóttir)

Samantha á þetta mark svo sannarlega skilið, hún hefur verið langbest á vellinum hérna í dag.

Birta leggur boltann á Samönthu sem keyrir að marki og hamrar boltanum í netið.
Breiðablik
65. mín
InnHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
ÚtAndrea Rut Bjarnadóttir
64. mín
Samantha með skot en í þetta sinn handsamar Mollee knöttinn.
61. mín
Darraðadans og dauðafæri!
Þróttur nálægt því að minnka muninn, darraðadans í teignum og endar með því að Melissa virðist vera með opið mark en þær kasta sér fyrir þetta.
59. mín
Barbára með glæsilegan bolta í gegn á Samönthu sem setur hann rétt framhjá.
Breiðablik
54. mín
Mollee... Úff

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir

Samantha kemur með skot sem fer bara beint á Mollee, skotið laust og með jörðinni en á einhvern ótrúlegan hátt missir hún boltann fyrir fætur Vigdísar sem skorar í autt markið.

Dýrkeypt, Mollee ekki litið vel út í seinustu tveimur mörkum.
Þróttur R.
51. mín
Við erum allt í einu með leik.

Melissa Alison Garcia (stoðsending: Sæunn Björnsdóttir)

Sæunn tekur hornið og Melissa nær að koma fæti á boltann sem fer inn.

49. mín
Þróttur fær horn.
48. mín
Birta Georgs hérna í flottu færi en Mollee gerir vel að verja þetta.
Þróttur R.
46. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtElísabet Freyja Þorvaldsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn.
45. mín
Blikar fara vægast sagt verðskuldað með tveggja marka forystu til búningsklefa.
Breiðablik
45. mín
Tvöfalda rétt fyrir hálfleik.

Karitas Tómasdóttir (stoðsending: Samantha Rose Smith)

Samantha með fyrirgjöf sem var ekki mjög ógnandi en Mollee missir af þessu og Karitas skallar í autt markið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
38. mín
Stöngin!
Samantha keyrir inn á teiginn hægra meginn og kemur með boltann fyrir sem Mollee slær út í teiginn, þar er Andrea mætt og setur hann í stöngina.
28. mín
Vigdís aftur í flottu færi hérna vinstra meginn en skýtur rétt framhjá, Vigdís ansi lífleg hérna en vantar lokahnykkinn í þetta hjá henni.
Breiðablik
26. mín
Loksins skora Blikar!

Birta Georgsdóttir (stoðsending: Samantha Rose Smith)

Samantha gerir þetta listilega vel úti hægra meginn áður en hún leggur boltann út á Birtu sem leggur boltann listilega vel í fjærhornið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

25. mín
Eftir rosalega fjörugar mínutur hér í upphafi er aðeins meiri ró yfir þessu núna.
20. mín
Hvernig skoraru ekki?
Kristín Dís með fullkomna fyrirgjöf fyrir þar sem Samantha vinnur skallann og leggur hann fyrir Vigdísi sem skýtur yfir í dauðafæri á markteignum.

Verður allavega að hitta á rammann.
14. mín
Kristín Dís með fína fyrirgjöf fyrir þar sem Samantha er ein á fjær en enn og aftur ver Mollee.
12. mín
Samantha með skot utan af velli sem Mollee grípur.
11. mín
Andrea Rut með fast skot sem Mollee ver virkilega vel.
8. mín
Dauðafæri!
Vigdís Lilja gerir frábærlega úti hægra meginn og leggur hann fyrir á Birtu sem er með opið mark eftir hún fer framhjá Mollee en María Eva gerir frábærlega í að kasta sér fyrir skotið hennar og Karitas setur svo frákastið hátt yfir!
7. mín
Vigdís Lilja gerir vel úti hægra megin, endar á því að taka skot í varnarmann og í hendurnar á Mollee.
2. mín
Þróttur í fínni stöðu endar á því að Ísabella leggur hann út á Sæunni sem fer illa með góða stöðu.
1. mín
Blikar hefja leik.
Fyrir leik
Mikilvægur leikur
Þróttur er í harðri baráttu að lenda í efri hlutanum en er einu stigi á eftir Stjörnunni eins og staðan er núna og með mun slakari markatölu, Þróttur mætir Stjörnunni í lokaumferðinni og mun Þróttur því vilja fara inn í þá umferð í betri stöðu en Stjarnan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Svekktar Blikakonur
Blikakonur koma eflaust ansi svekktar inn í þennan leik en seinasta föstudag töpuðu þær 2-1 gegn Val í úrslitaleik Mjólkurbikarsins en þetta er í þriðja sinn í röð sem liðið tapar úrslitaleiknum. Mark Blikakvenna skoraði Karitas Tómasdóttir.

Blikar fara nú inn í seinustu tvo leikina og munu vilja gera vel áður en að mótinu verður skipt í tvennt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkominn!
Hér fer fram bein textalýsing frá Avis vellinum af leik Þróttar og Breiðabliks í Bestu deild kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.