Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
2 - 0
HK
HK
Örvar Eggertsson 21'1 - 0Óli Valur Ómarsson 60'2 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Stjarnan upp í efri hluta

Hvað réði úrslitum?

Stjörnumenn voru klínískari og nýttu sín færi. Leikurinn í sjálfu sér bauð ekki upp á mörg opin marktækifæri. Bæði lið spiluðu þokkalega en síðasti þriðjungur reyndist oft erfiður. Stjarnan náði inn marki snemma í leiknum og virkiðu bara með fulla stjórn á þessu eftir það og eftir annað markið varð þetta í raun aldrei spurning.

Bestu leikmenn

1. Óli Valur Ómarsson

Var frábær í liði Stjörnunnar og alltaf eitthvað um að vera þegar hann komst á boltann. Lagði upp fyrsta markið og skoraði svo seinna. Einn sá besti í þessari deild þegar hann hittir á daginn sinn.

2. Kjartan Már Kjartansson

Gríðarlega öflugur á miðjunni hja Stjörnunni í kvöld. Var fastur fyrir og gríðarlega öruggur. Hefur heldur betur fundið sig í þessari stöðu í sumar.

Atvikið

Atli Þór Jónasson fer niður í teignum um miðjan síðari hálfleik sem leit út fyrir að eiga vera klárt víti. Hefði gjörbreytt leikmyndinni ef HK hefði mögulega jafnað leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Stjörnumenn lyfta sér upp í efri hlutann en HK sitja enn fyrir neðan rauðu línuna.

Vondur dagur

Fannst þessi leikur ekki endilega verðskulda neinn í slæman dag. Fullt af ákvörðunum sóknarlega hjá báðum liðum sem hefðu mátt fara betur en enginn einstaklingur skar sig sérstaklega úr sem áberandi slæmur.

Dómarinn - 5

Mér fannst brotið á Atla Þór Jónassyni í síðari hálfleik en á eftir að sjá endursýningar af því. Stórt atvik sem mögulega hefði breytt framgangi leiksins. Ef það er tekið út fyrir sviga fannst mér Jóhann Ingi og hans teymi komast nokkuð vel frá þessu svo ég sleppi teyminu með fall.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.