Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
2. deild karla
BIRTU völlurinn
12 gráður og smá rok
Haukar
Haukar
1 - 2
Selfoss
Selfoss
0 - 12' Gonzalo Zamorano Leon0 - 255' Gonzalo Zamorano Leon (víti)Theodór Ernir Geirsson 93'1 - 2
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Selfoss hænuskrefi frá því að tryggja sér upp í Lengjudeildinna eftir dramatískan sigur

Hvað réði úrslitum?

Selfoss komst yfir á fyrstu mínútu leiksins, en eftir markið tók Haukar nánast yfir leiknum. Þó náði Haukar aldrei að koma boltanum í netið, nema þegar það var orðið of seint.

Bestu leikmenn

1. Gonzalo Zamorano

Gonzalo með flotta takta í leiknum og skorar bæði mörk Selfyssinga í dag.

2. Robert Blakala

Var svakalegur í dag, hélt selfyssingum inn í þessum leik og átti nokkrar frábærar vörslur

Atvikið

Atvik leiksins var vítadómurinn sem átti aldrei að vera. Aron Fannar er kominn einn gegn Magnúsi í markinu. Aron dettur inn í teig, en það var létt að sjá að enginn snerting var þarna á milli Aron og Magnúsi . Haukamenn voru réttilega fúlir við þessum dómi.

Hvað þýða úrslitin?

Selfoss eru ótrúlega nálægt því að tryggja sér sæti beint aftur upp í Lengjudeildinna eftir þenna sigur í dag. Þeir eru í fyrsta sæti með 44 stig. Haukar sitja enn þá í 7. sæti deildarinnar eftir tapið í dag með 26 stig.

Vondur dagur

Magnús í markinu átti lélega tilraun þegar hann reynir að kýla boltanum úr teignum í fyrsta markinu, sem veldur því að Gonzalo fær boltann frá Magnúsi og kemur honum inn í netið. Annars vantaði betri nýtingu í þeim fjölmörgum færum sem Haukar fengu, sérstaklega í fyrri hálkfleik, þar sem boltinn endað oftast rétt framhjá eða í stöngina.

Dómarinn - 3

Alls ekki vel dæmdur leikur hjá Pétri og mönnunum hans. Það var ekki slétta línu á dómgæslunni í leiknum og svo til að toppa allt þá var þessi vítadómur alveg gal vitlaus.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.