Bayern setur meiri kraft í viðræður við Musiala - Newcastle fylgist með Sane - Barcelona vill Kimmich
Besta-deild karla
Fylkir
19:15 0
0
Víkingur R.
Besta-deild karla
Valur
19:15 0
0
KR
Þróttur R.
2
3
Leiknir R.
0-1 Omar Sowe '22
0-2 Omar Sowe '26
0-3 Róbert Hauksson '28
Birkir Björnsson '80 1-3
Kári Kristjánsson '85 2-3
08.09.2024  -  14:00
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Allt í lagi-Ekki gott. Allavega þurrt
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Maður leiksins: Omar Sowe (Leiknir R.)
Byrjunarlið:
12. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal (f)
4. Njörður Þórhallsson
5. Jorgen Pettersen
6. Emil Skúli Einarsson ('46)
20. Viktor Steinarsson ('46)
22. Kári Kristjánsson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason
33. Unnar Steinn Ingvarsson
99. Kostiantyn Iaroshenko ('46)

Varamenn:
1. Sveinn Óli Guðnason (m)
3. Stefán Þórður Stefánsson
7. Sigurður Steinar Björnsson ('46)
9. Viktor Andri Hafþórsson ('46)
14. Birkir Björnsson ('46)
24. Björn Darri Oddgeirsson
30. Kolbeinn Nói Guðbergsson

Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Þórkatla María Halldórsdóttir
Baldur Hannes Stefánsson
Angelos Barmpas
Branislav Radakovic
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknir vinnur 2-3 sigur í kaflaskiptum leik. Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í dag. Þá er það komið á hreint að Þróttur fer ekki í umspilið umtalaða og bæði þessi lið munu leika í Lengjudeildinni að ári.
90. mín
Viktor skorar aftur - OG AFTUR RANGSTAÐA Þróttarar héldu að þeir væru að jafna djúpt í uppbótartíma en rangstaða dæmd.
90. mín
+4 mínútur lágmarks uppbótartími Fáum við mark í uppbótartíma frá öðru hvoru liði?
89. mín
Hamra Þróttur járnið meðan það er heitt? 1 mínúta eftir af venjulegum leiktíma. Tekst Þrótti að snúa taflinu við?
87. mín
Inn:Davíð Júlían Jónsson (Leiknir R.) Út:Róbert Quental Árnason (Leiknir R.)
85. mín MARK!
Kári Kristjánsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Aron Snær Ingason
ÞRÓTTARAR AÐ KVEIKJA Í ÞESSUM LEIK Þróttarar mikið mun öflugri aðilinn í leiknum síðustu mínútur og ná með herkjum að keyra inn á teig Leiknis. Aron með fyrirgjöf sem fer af Leiknismanni og Kári stýrir honum í netið!
Við erum komin með leik dömur mínar og herrar!
82. mín
SKOT Í STÖNG! Þróttarar vakna! Skot sem Viktor ver í stöng og aftur út í teiginn en Þróttur gerir ekki meira í þessari sókn.
80. mín MARK!
Birkir Björnsson (Þróttur R.)
Stoðsending: Njörður Þórhallsson
Er spenna í þessu? Grótta búnir að minnka muninn gegn ÍR og Þróttur minnka muninn í 1-3. Orrahríð að marki Leiknis þar sem Viktor Freyr ver og menn henda sér fyrir áður en boltinn berst á Birki Björns sem setur hann í markið áður en Viktor Freyr nær að standa upp.
77. mín
Inn:Aron Einarsson (Leiknir R.) Út:Arnór Daði Aðalsteinsson (Leiknir R.)
77. mín
Inn:Egill Helgi Guðjónsson (Leiknir R.) Út:Sindri Björnsson (Leiknir R.)
76. mín
MARK - Eða ekki Viktor Andri hélt þarna að hann væri búinn að tvöfalda markafjöldann sinn í sumar þegar hann skoraði eftir fyrirgjöf en hann var rangstæður.
71. mín
Glæsileg varsla!! Omar Sowe sendir boltann út til hægri á Róbert Quental í teig Þróttar. Róbert einn á Þórhall sem gjörsamlega étur hann og ver glæsilega. Þróttur upp hinu megin og fá horn sem ekkert verður úr.
70. mín
Inn:Kári Steinn Hlífarsson (Leiknir R.) Út:Róbert Hauksson (Leiknir R.)
Róbert búinn að vera góður Róbert Hauks fer af velli fyrir Kára Stein. Róbert búinn að skila góðu dagsverki. Mark og stoðsending.
67. mín
Hendi - Aukaspyrna Jorgen fær boltann í höndina og Leiknir fær aukaspyrnu sem mér sýnist Shkelzen ætla að taka. Æfingabolti fyrir Þórhall Ísak í marki Þróttar
65. mín
Klafs Þróttarar búnir að vera aðeins meira í boltanum á meðan Leiknismenn reyna einna helst að koma Omar Sowe í gegn, sem gengur eiginlega ekkert.
Þróttarar í klafsi í teignum en ná ekki almennilega skoti á markið.
61. mín
Ekkert gerist Hornið skelfilegt og lengst yfir pakkann. Engin hætta.
59. mín
Þróttarar í sókn Þróttur keyrir upp hægri og fær horn!
55. mín
Þróttarar að gera sig líklega Aron Snær skallar boltann niður á Kára sem nær skoti í átt að marki sem Daði Bærings hendir sér fyrir.
51. mín
Aron Snær með klippu yfir Eiki Blö með fyrirgjöf inn á teiginn sem Aron Snær klippir fallega yfir mark Leiknismanna. Þróttarar byrja seinni hálfleikinn af ágætis krafti.
46. mín
Farið af stað aftur Leikurinn kominn í gang aftur. Spurning hvort Þróttarar nái að snúa taflinu við í seinni hálfleik.
46. mín
Inn:Birkir Björnsson (Þróttur R.) Út:Viktor Steinarsson (Þróttur R.)
Bræður munu berjast Þreföld skipting hjá Venna í hálfleik. Birkir Björns er einmitt bróðir Sindra Björnssonar, miðjumanns Leiknis.
46. mín
Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.) Út:Emil Skúli Einarsson (Þróttur R.)
Bræður munu berjast Þreföld skipting hjá Venna í hálfleik. Birkir Björns er einmitt bróðir Sindra Björnssonar, miðjumanns Leiknis.
46. mín
Inn:Sigurður Steinar Björnsson (Þróttur R.) Út:Kostiantyn Iaroshenko (Þróttur R.)
Bræður munu berjast Þreföld skipting hjá Venna í hálfleik. Birkir Björns er einmitt bróðir Sindra Björnssonar, miðjumanns Leiknis.
45. mín
Hálfleikur
+1 mínúta í uppbót en ekkert breytist Hálfleikur.
0-3 fyrir Leikni í hálfleik.
Þróttarar byrjuðu fyrri hálfleikinn betur en eftir að Leiknir komst yfir voru öll ljós kveikt og enginn heima hjá Þrótti.
45. mín
Fyrirgjöf og skalli framhjá Unnar Steinn með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn sem fer alla leið á fjærstöngina þar sem Aron Snær mætir á fjær og skallar framhjá markinu.
40. mín
Lítið að frétta Liðin ekkert rosalega mikið að skemmta okkur blaðamönnum sem og áhorfendum þessa stundina. Ofboðslega rólegt yfir öllu á vellinum og hvorugt lið að skapa sér neitt.
35. mín
Róbert Hauks kemst einn í gegn Róbert kemst vinstra megin inn á teig Þróttar og kemur sér beint inn á hægri fótinn en skotið afleitt og nokkra metra framhjá markinu.
31. mín Gult spjald: Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
Brot og spjald Daði brýtur á Unnari Steini og fær síðan gult spjald frá Ívari Erni. Annað hvort uppsafnað eða fyrir kjaftbrúk.
28. mín MARK!
Róbert Hauksson (Leiknir R.)
Stoðsending: Róbert Quental Árnason
Þegar það rignir þá hellirignir Þróttarar hafa ákveðið að leggja árar í bát og Róbert fær bara að athafna sig auðveldlega inni á teig Þróttar og setur boltann fast á markið niðri sem Þórhallur Ísak missir undir sig og í markið lekur boltinn. Þetta stefnir í rúst!
26. mín MARK!
Omar Sowe (Leiknir R.)
Stoðsending: Shkelzen Veseli
Leiknismenn ganga á lagið! Þróttarar hættu eiginlega bara að spila eftir að þeir fengu fyrsta markið á sig. Róbert Hauks, Shkelzen Vesali og Omar Sowe gera grín að vörn Þróttar og komast í 0-2.
25. mín
Þróttarar slegnir Það hefur ekki verið um auðugan garð að gresja í færum hjá Þrótti eftir að þeir fengu þetta mark á sig fyrir 3 mínútum.
22. mín MARK!
Omar Sowe (Leiknir R.)
Stoðsending: Róbert Hauksson
0-1 Heyrðu!! Undirritaður hafði varla lokið orðinu við Elvar Geir, ritstjóra Fótbolta.net, um það hvort að hans menn ætluðu ekki að vera með í leiknum, þegar Róbert gefur þessa fínu fyrirgjöf inn á teiginn sem Omar Sowe skallar listilega í nærhornið.
19. mín
Léleg skot Lítið af góðum færum eða skotum það sem af er. Kostiantyn með frekar lélegt skot í átt að marki sem Viktor tók upp. Hálfri mínútu síðar tekur Aron Snær ömurlegt skot lengst framhjá.
17. mín
Leikurinn stopp-Leikur hafinn Vesali virðist hafa fengið högg og þarf aðhlynningu. Leikurinn fer síðan aftur í gang og Vesali kemur inn að nýju.
12. mín
Þróttur betri Smá atgangur inni í teig Leiknis sem endar með innkasti sem Leiknir fær, alveg upp við hornfánann. Leiknir nær að lokum að koma boltanum frá, en tapa honum jafn harðan.
8. mín
Þróttarar meira með boltann Omar Sowe brýtur á Jorgen Pettersen rétt fyrir utan teig. Hvað gerir Kostiantyn við aukaspyrnuna? Boltinn framhjá að lokum. Engin hætta fyrir Leikni.
5. mín
Skalli! Framhjá.. Kári spilar stutt inn á teiginn og fær hann aftur áður en hann nær stuttri fyrirgjöf á Njörð sem skallar framhjá.
4. mín
Hornspyrna! Kári Kristjáns með fínt skot með vinstri sem Viktor Freyr ver í horn. Hvað gerist hérna?
3. mín
Þróttur með skalla á mark! Bolti frá hægri kanti inn á teyginn og Njörður með skalla í átt að marki sem var aldrei vesen fyrir Viktor Frey í marki Leiknis.
1. mín
Leikur hafinn
Ívar flautar leikinn á og það er Shkelzen Veseli sem sparkar gestunum í gang. Leiknir sækir í átt að Grand Hótel og Þróttarar sækja í átt að Skautahöll Reykjavíkur. Vonumst eftir góðum leik!
Fyrir leik
Ívar Orri leiðir menn inn á völlinn Þá gengur Ívar Orri út á völlinn, ásamt aðstoðardómurum sínum og leikmönnum beggja liða. Allir þeir 200+- áhorfendur sem mættir eru standa og hylla sína menn.
Fyrir leik
Þetta fer að bresta á Þá eru leikmenn, þjálfarar og dómarar farnir til búningsherbergja og þetta fer alveg að bresta á.
Hagkaup býður frítt á leikinn!
Fyrir leik
Staðan í deildinni Keflavík og Njarðvík eru búin með sinn leik í umferðinni og eftir það er staðan í deildinni svona.

1. ÍBV - 35 stig
-------------------
2. Keflavík - 35
3. Fjölnir - 34
4. Afturelding - 33
5. Njarðvík - 32
--------------------
6. ÍR - 32
7. Þróttur - 27
8. Grindavík - 25
9. Leiknir - 24
10. Þór - 20
-------------------
11. Grótta - 16
12. Dalvík/Reynir - 13
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spámaðurinn Karl Friðleifur Gunnarsson leikmaður Víkings er spámaður umferðarinnar.

Hann býst við sigri gestaliðsins í dag.

Þróttur 1 - 3 Leiknir
Ósvald Jarl verður með sýningu fyrir okkur. Leggur upp 2 mörk og setur eitt mark úr efstu hillu.

Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Dómarateymið Ívar Orri Kristjánsson dæmir leikinn í dag. Hann er með þá Birki Sigurðarson og Ragnar Arelíus Sveinsson sér til aðstoðar á línunum. Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er svo eftirlitsmaður KSÍ.
Ívar Orri dæmir í dag. Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Breiðfjörð er eftirlistmaður KSÍ. Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
2 umferðir eftir Góðan og gleðilegan leikdag kæru lesendur og verið velkomin í þessa textalýsingu á leik Þróttar Reykjavíkur og Leiknis Reykjavíkur.

Liðin eru í 7. (Þróttur R.) og 9. sæti (Leiknir) með 27 og 24 stig og hafa bæði að ansi litlu að keppa.

Leiknir eru í raun fastir þar sem þeir geta hvorki fallið né náð upp í umspilið en Þróttur á ennþá tölfræðilega möguleika á að ná upp í umspilssæti, þótt það verði að teljast ansi ólíklegt.

Þessi leikur er því hér með titlaður, „Leikurinn um Reykjavíkur stoltið“. Þótt það séu ansi mörg lið sem bera nafn Reykjavíkurborgar í nafni félagsins.
Byrjunarlið:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
6. Andi Hoti
7. Róbert Quental Árnason ('87)
8. Sindri Björnsson ('77)
9. Róbert Hauksson ('70)
10. Shkelzen Veseli
16. Arnór Daði Aðalsteinsson ('77)
23. Arnór Ingi Kristinsson
25. Dusan Brkovic
67. Omar Sowe

Varamenn:
12. Bjarki Arnaldarson (m)
4. Patryk Hryniewicki
14. Davíð Júlían Jónsson ('87)
18. Marko Zivkovic
30. Egill Helgi Guðjónsson ('77)
43. Kári Steinn Hlífarsson ('70)
44. Aron Einarsson ('77)

Liðsstjórn:
Ólafur Hrannar Kristjánsson (Þ)
Ósvald Jarl Traustason
Gísli Friðrik Hauksson
Atli Jónasson
Guðbjartur Halldór Ólafsson
Nemanja Pjevic
Arnar Darri Pétursson

Gul spjöld:
Daði Bærings Halldórsson ('31)

Rauð spjöld: