SKÝRSLAN: Falldraugurinn kvaddur á Þórsvelli
Hvað réði úrslitum?
Dalvíkingar fengu líklega betri færin í þessum leik, milli þess sem að þeir vörðust og gerðu Þórsurum erfitt fyrir. En umdeildur vítaspyrnudómur Erlends og góð innkoma Rafael Victor gerðu gæfumuninn fyrir Þór.
Bestu leikmenn
1. Aron Einar Gunnarsson (Þór)
Stýrði umferðinni á meðan að hann var inná. Öskraði nokkrum sinnum eftir meira tempói og var ávallt réttur maður á réttum stað. Svo tók hann helvíti laglegt víti líka!
2. Amin Guerrero Touiki (Dalvík/Reynir)
Var lang hættulegasti leikmaður Dalvíkinga í dag. Átti stangarskot og hefði líklega átt að gera betur þegar hann slapp einn í gegn Aroni Birki í fyrri hálfleik. Á að spila í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn. Eftir að hafa séð myndbandsupptöku af þessu atviki að þá verður bara að viðurkennast að um algert smáræði er að ræða. Matheus Bissi hoppar yfir Ingimar og snertir hann eitthvað, en þetta er bara engan veginn nóg til þess að hreinlega velta því fyrir sér að benda á punktinn.
Hvað þýða úrslitin?
Það er endanlega staðfest að Þórsarar spila í Lengjudeildinni á næsta ári. Grótta leikur í 2. deild á næstu leiktíð, en Þórsarar fara einmitt á Seltjarnarnesið í lokaumferðinni og spila við gula og bláa Gróttumenn. Dalvík/Reynir var fallið fyrir leikinn og fara sömu leið og Grótta.
Vondur dagur
Erlendur Eiríksson fær þennan stimpil í dag.
Dómarinn - 3
Lélegt flæði í leiknum, skrítið samræmi í dómgæslunni og vítaspyrnudómurinn var kolrangur að mínu mati.



