Fotbolti.net
Besta deildin
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Besta-deild karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
Rok og rigning
Valur
Valur
4 - 1
KR
KR
Lúkas Logi Heimisson 14'1 - 0Lúkas Logi Heimisson 22'2 - 02 - 160' Aron SigurðarsonPatrick Pedersen 76'3 - 1Tryggvi Hrafn Haraldsson 91'4 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
Sterkur sigur Valsara staðreynd.
Viðtöl og skýrsla innan skams.
95. mín
Gyrðir Hrafn með skot rétt yfir mark Valsara.
Valur
91. mín
Valsarar gefa ekkert eftir

Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson)

Orri Hrafn þræðir Tryggva í gegn sem klárar fagmannlega. Valsarar að setja síðasta naglann í kistuna.
91. mín
Fimm mínútum bætt við
90. mín
Birgir Steinn með skalla á markið sem Ögmundur ver örugglega.
Valur
90. mín
InnOrri Hrafn Kjartansson
ÚtPatrick Pedersen
KR
85. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtAxel Óskar Andrésson
KR
85. mín
InnJón Arnar Sigurðsson
ÚtAron Þórður Albertsson
84. mín
KR-ingar fá hornspyrnu.
Valur
80. mín
InnSigurður Egill Lárusson
ÚtLúkas Logi Heimisson
Valur
76. mín
Klaufalegir KR-ingar

Patrick Pedersen

KR-ingarnir Finnur Tómas og Birgir Steinn skella saman og hleypa Pedersen einum í gegn sem tekur skotið sem fer í Axel Óskar og í netið.

Þetta er eins klaufalegt og það gerist.

14. mark Pedersen á tímabilinu.
75. mín
Baulað hressilega á Ástbjörn úr stúkunni eftir tæklinguna á Gylfa fyrr í leiknum.
Valur
73. mín
InnTryggvi Hrafn Haraldsson
ÚtAlbin Skoglund
KR
70. mín
InnAlex Þór Hauksson
ÚtTheodór Elmar Bjarnason
68. mín
KR-ingar ógna!
Aron Sig klobbar Orra Sigurð og er kominn í góða stöðu í teig Valsara og vippar boltanum rétt yfir mark heimamanna.
Þarna munaði mjóu.
65. mín
Axel Óskar með skalla rétt framhjá eftir hornspyrnu.
64. mín
Mikill meðbyr með KR-ingum þessa stundina.
KR
60. mín
Við fáum leik!

Aron Sigurðarson (stoðsending: Benoný Breki Andrésson)

Aron Sig með skot úr þröngri stöðu sem endar í netinu, set spurningamerki við markvörsluna þarna.
Greinilegt að við fáum alvöru spennu hérna á Hlíðarenda!
59. mín
Ömmi stálheppinn
Ögmundur hreinsar boltann frá marki en boltinn fer beint í Benóný sem pressar vel en boltinn dettur svo beint aftur í fangið á Ömma.
57. mín
Skoglund kominn í góða stöðu í teig KR en Birgir Steinn verst vel og kemur boltanum frá.
Valur
56. mín
Gult spjald

Kristinn Freyr Sigurðsson

Spjaldaveisla hér á Hlíðarenda eftir tæklingu Ástbjarnar.
Valur
56. mín
Gult spjald

Patrick Pedersen

KR
56. mín
Gult spjald

Aron Sigurðarson

KR
56. mín
Gult spjald

Ástbjörn Þórðarson

Rétt að mínu mati að gefa Ástbirni bara gult, hefði verið full mikið að gefa rautt á tæklinguna á Gylfa.
54. mín
Hiti kominn í leikinn
Ástbjörn þrumar Gylfa niður sem liggur óvígur eftir. Leikmenn Vals hópast að Ástbirni en Túfa, þjálfari Vals skýlir Ástbirni.
52. mín
KR-ingar halda betur í boltann en ógna lítið hér í upphafi seinni hálfleiks.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Gestirnir byrja með boltann.
KR
46. mín
InnBirgir Steinn Styrmisson
ÚtAtli Sigurjónsson
Óskar gerir breytingu í hálfleik.
Birgir kemur í hægri bakvörð og Jóhannes Kristinn fer upp á miðju.
45. mín
Hálfleikur
Jóhann Ingi flautar til hálfleiks, skemmtilegum fyrri hálfleik lokið þar sem Valsarar leiða sanngjarnt.
45. mín
Einni mínútu bætt við
44. mín
Skemmtileg tilraun!
Pedersen með lúmskt skot langt fyrir utan teig og reynir að lyfta boltanum yfir Guy Smit sem gerir vel og ver boltann í horn.
Þetta hefði verið eitt af mörkum tímabilsins.
44. mín
Benóný Breki með skalla að marki sem Ögmundur ver örugglega.
42. mín
Ekki mikið að frétta síðustu mínútur.
33. mín
Lúkas Logi aftur í færi
Fær boltann út í teiginn en á kraftlítið skot sem Smit ver örugglega.
KR
32. mín
Gult spjald

Luke Morgan Conrad Rae

Valur
28. mín
Gult spjald

Lúkas Logi Heimisson

Lúkas spjaldaður fyrir dýfu.
27. mín
23. mín
Albin Skoglund með fast skot á markið sem Smit ver vel.
Valur
22. mín
Sama uppskrift

Lúkas Logi Heimisson (stoðsending: Jónatan Ingi Jónsson)

Jónatan aftur með hælsendingu á Lúkas Loga sem neglir boltanum uppi í hornið fyrir utan teig, alvöru sleggja.
Valur
14. mín
Alvöru mark!

Lúkas Logi Heimisson (stoðsending: Jónatan Ingi Jónsson)

Lúkas og Jónatan spila frábærlega á milli sín. Jónatan hælar hann fyrir Lúkas sem neglir boltanum í fjærhornið fyrir utan teig, Guy Smit reynir ekki einu sinni við boltann!

6. mín
Benóný Breki með skot úr teignum sem fer í varnarmann, boltinn berst á Atla Sigurjóns sem tekur skotið en aftur fer boltinn í varnarmann.
6. mín
Birkir Már með skot fyrir utan teig sem Smit ver örugglega.
5. mín
Patrick Pedersen fellur við vítateigslínu og biður um vítaspyrnu, Jóhann Ingi dæmir ekkert.
4. mín
Valsarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar, mætingin hefur verið betri en slæmt veður fælir fólk eflaust frá.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Túfa gerir fimm breytingar á liði sínu frá síðasta leik.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Jakob Franz, Albin Skoglund, Hörður Ingi, Kristinn Freyr og Lúkas Logi.
Aron Jóhannson og Hólmar Örn eru báðir í leikbanni og eru því utan hóps.


KR mættu Víkingum síðastliðinn föstudag, leikurinn endaði með 0-3 tapi KR. Óskar Hrafn gerir 3 breytingar á liði sínu frá þeim leik.
Inn í liðið koma þeir Atli Sigurjónsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason og Finnur Tómas Pálmason.
Fyrir leik
Gary Martin spáir í spilin
Gary Martin fyrrverandi framherji beggja liða spáir jafntefli í hörkuleik.

Valur 2-2 KR

,,It won’t be like 2013 and 2019 when KR win the league at Valur but they put a serious dent in their chances with a a draw. The best squad in country is held to a draw by Atli Sig and his long golden hair with 2 screamers. The Danish goal machine Paddy P gets both goals for Valur."

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Graham Potter í stúkunni
Fyrrverandi stjóri Chelsea, Graham Potter verður á Hlíðarenda í kvöld samkvæmt heimildum Vísis.

Potter hélt fyrirlestur á UEFA Pro þjálfaranámskeiði í höfuðstöðvum KSÍ nú á dögunum.


Mynd: EPA

Fyrir leik
Gylfi klár í kvöld
Gylfi Þór Sigurðsson verður með Val gegn KR í Bestu deildinni í kvöld. Veikindin sem herjuðu á hann í landsliðsverkefninu hafa ekki haft frekari áhrif á hann.

„Hann er klár í slaginn og hefur æft alla daga með okkur síðan hann kom frá landsliðinu. Hann er alveg tilbúinn." Sagði Túfa, þjálfari Vals í hádegisfréttum Bylgjunnar.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Ólík verkefni
Fjórtán stig skilja liðin að, Valsarar eru í baráttu um Evrópusæti en KR-ingar er þremur stigum frá fallsæti.

Í síðustu fimm leikjum hefur Valur fengið 7 stig, gengi FH er svipað en þeir hafa fengið 6 stig í síðustu fimm leikjum.

Óhætt er að segja að tímabil beggja liða hafi verið mikil vonbrigði, enda einu liðin sem hafa haft þjálfaraskipti.


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fyrir leik
Reykjavíkurslagur!
Heilir og sælir lesendur góðir og veriði velkomin í beina textalýsingu frá Hlíðarenda, þar sem Valur tekur á móti KR.
Leikurinn er liður í 22. umferð Bestu-deildar karla sem er síðasta umferð fyrir tvískiptingu.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.