SKÝRSLAN: KR-ingar sjálfum sér verstir
Hvað réði úrslitum?
Valsarar voru mun betra liðið í fyrri hálfleik og leiddu sanngjarnt 2-0 í hálfleik. KR-ingar byrjuðu síðari hálfleikinn þó mun betur og minnkuðu muninn snemma. KR ógnuðu mikið og voru líklegra liðið að skora fjórða markið. Þá gáfu KR-ingar Völsurum gjöf er Finnur Tómas og Birgir Steinn skullu saman og Pedersen refsaði. KR-ingar sjálfum sér verstir.
Bestu leikmenn
1. Lúkas Logi Heimisson
Lúkas með tvö frábær mörk í dag, hótaði þrennunni en lét tvö mörk duga.
2. Patrick Pedersen
Patrick skoraði gott mark og var óheppinn að mörkin urðu ekki fleiri.
Atvikið
Mikið af skemmtilegum atvikum í dag hér eru þrjú.
1. Graham Potter í stúkunni
Fyrrverandi stjóri Chelsea og Brighton, Graham Potter var í stúkunni merktur KSÍ fatnaði. Potter hélt fyrirlestur á þjálfaranámskeiði KSÍ á dögunum.
2. Klaufalegir KR-ingar.
Finnur Tómas og Birgir Steinn skullu saman og hleyptu Pedersen einum í gegn.
3. Tækling Ástbjarnar á Gylfa.
Ástbjörn fór harkalega í Gylfa og allt sauð upp úr. Leikmenn Vals hópuðust að Ástbirni en Túfa, þjálfari Vals skýldi Ástbirni frá leikmönnum sínum.
Hvað þýða úrslitin?
Valsarar eru með fjögurra stiga forskot á ÍA sem eru í 4. sæti.
KR eru í 9. sæti aðeins þremur stigum frá fallsæti.
Vondur dagur
Finnur Tómas hefur átt betri daga í vörninni. Af mörgum leikmönnum KR fannst mér Finnur slakastur.
Dómarinn - 8
Jóhann Ingi og félagar stóðu sig með prýði, engin stór atvik sem klikkuðu hjá tríóinu svo ég muni eftir.




