Andronikos Kakoulli
Valdimar með skelfilega sendingu til baka sem Kakoulli kemst inn í, sólar Ingvar og skorar í autt markið.Alioum Saidou
Spænir upp hálfan völlinn og setur hann framhjá Ingvari. Ingvar á þó að verja þetta að mínu mati.Saidou nýkominn inn á og skorar.
Andronikos Kakoulli
Ingvar slær skot út í teiginn á Kakoulli sem stýrir boltanum í opið markið.Ansi erfitt fyrir Víkinga að snúa leiknum við úr þessu.
Hefur hæfileika sem eru ekki keyptir í Prís.
Senou Coulibaly (stoðsending: Charalampos Charalampous)
Omonoia fær horn Coulibaly stekkur manna hæst í teignum og stangar boltann í netið.Veljko Simic
Simic fer í bókina góðu eftir brot á Djuric.Arnar outcoachar þennan í síðari hálfleik. pic.twitter.com/r0rBtVYPVd
— Hjálmar Örn Jóhannsson (@hjammi) October 3, 2024
59% - Með bolta - 41%
3 - Skot - 4
0 - Skot á mark - 3
2 - Hornspyrnur - 3
Sander van der Eijk flautar til hálfleiks. Víkingar frábærir framan af fyrri hálfleik en leikur liðsins dalaði aðeins eftir meiðsli Tarik.
Oliver Ekroth liggur nú niðri, yrði áfall fyrir Víkinga að missa hann líka. Ekroth stendur upp og haltrar mikið en heldur leik áfram.
Simic með fyrirgjöf sem Ingvar kýlir frá.
Loizou með skot úr teignum sem fer í Davíð Örn.
Davíð Örn Atlason
Davíð ekki lengi að næla sér í spjald. Spjaldaður fyrir peysutog.Sýnist Ekroth hafa sparkað í andlitið á Tarik.
ÁFRAM VÍKINGUR... KOMA SVOOOO pic.twitter.com/KxXdAm8y6x
— Víkingur (@vikingurfc) October 3, 2024
Fyrstu marktilraunir Omonoia.
Þarna munaði litlu.
Omonoia skalla hornspyrnuna frá.
Aron stendur upp og getur haldið leik áfram.
Gæsahúð! @vikingurfc pic.twitter.com/IfodmiwXi9
— Sverrir Geirdal (@Sverdal) October 3, 2024
Söguleg stund. Arnar Gunnlaugsson hefur valið fyrsta byrjunarlið okkar Víkinga í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu. ?????? pic.twitter.com/L6ACvdpd4E
— Víkingur (@vikingurfc) October 3, 2024
Kæru Víkingar. Til hamingju með daginn! Það er viðeigandi að tilkynna formlega um að strákarnir munu spila í sérstakri Evróputreyju í Sambandsdeild Evrópu og í kvöld fáið þið að sjá búninginn í leik í fyrsta sinn.
— Víkingur (@vikingurfc) October 3, 2024
Smelltu hér til að kaupa : https://t.co/c5EOTniYAK pic.twitter.com/HGYhoH6etx
Kári gekk til liðs við Omonoia árið 2017 í janúarglugganum. Hann lék þó aðeins átta leiki með liðinu.
Kári hélt svo til Aberdeen í sumarglugganum 2017 eftir dvöl sína í Kýpur.

Omonoia var í þriðja styrkleikaflokki í drættinum og Víkingur í þeim sjötta. Hvert lið mætir einu liði úr hverjum styrkleikaflokki.
Efstu átta liðin fara beint í 16-liða úrslit og liðin í 9.-24. sæti fara í umspilið um hin átta sætin. 12 neðstu liðin í deildinni falla úr leik.
Hollenskt teymi
Sander van der Eijk dæmir leikinn á fimmtudaginn, Sander og dómarateymið í heild sinni er frá Hollandi. Van der Eijk dæmir í hollensku Eredivisie.

Liðið og starfsteymið flugu frá Keflavík til Manchester og biðu þar í nokkra klukkutíma. Frá Manchester flugu þeir til Larnaca á Kýpur. Í kjölfarið tók við rútuferð til Nicosia sem er í tæplega klukkutíma fjarlægð frá Larnaca.
Víkingar voru komnir til Nicosia um klukkan 1 að nóttu á staðartíma en þriggja tíma mismunur er á Íslandi og Kýpur.
#CyprusVikes eru lentir eftir langt ferðalag. ?????? pic.twitter.com/RwS0eXiiGv
— Víkingur (@vikingurfc) October 1, 2024
Jovetic gerði garðinn frægan með Manchester City en hann lék einnig með Inter Milan og Sevilla.
„Það er leikmenn frá löndum sem menn kannski þekkja ekki mikið til. Í þessum löndum geta dúkkað upp helvíti góðir leikmenn, félagið er með mikið fjármagn og voru sem dæmi að taka inn Stevan Jovetic sem er fyrrum leikmaður Manchester City. Hann er ekki á íslenskum launum, ég get lofað þér því. Sem betur fer er hann ekki að spila á morgun," sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga í samtali við Fótbolta.net.

Omonoia hefur unnið deildina í Kýpur 21 sinni og hafa alls spilað 173 Evrópuleiki.
Omonoia var í þriðja styrkleikaflokki í drættinum og Víkingur í þeim sjötta.
Heimavöllur liðsins, GSP völlurinn tekur tæplega 23 þúsund manns.
Á síðasta tímabili enduðu Omonoia í þriðja sæti deildarinnar á Kýpur. Omonoia eru nú í öðru sæti deildarinnar eftir fimm umferðir.
Hér fyrir neðan má sjá blaðamannafund Omonoia fyrir leikinn gegn Víkingum. Fundurinn fer fram á ensku.
Andstæðingar Víkings eru Omonoia frá Kýpur. Leikið verður á GSP vellinum sem er staðsettur í Nikósíu, höfuðborg Kýpur.








Skýrsla og viðtal við Arnar væntanlegt seinna í kvöld.