SKÝRSLAN: Alvöru kveðjuleikur hjá Stjörnunni
Hvað réði úrslitum?
Það var lítið í gangi í leiknum, þangað til að Stjarnan skoraði fyrsta markið. FH svaraði með jöfnunarmarki á stuttum tíma. Svo skorar Stjarnan aftur aðeins mínútu seinna sem FH svarar með jöfnunarmarki rétt fyrir lok fyrri hálfleik. Baldur Kári setur svo boltann í eigið net í lokakafla leiksins og Stjarnan tekur öll þrjú stigin eftir dramatískan leik.
Bestu leikmenn
1. Hilmar Árni Halldórsson
Spilaði sinn seinasta leik á ferlinum og endar því með marki. Ekki hægt betra. Mjög flottur leikkur hjá honum.
2. Óli Valur Ómarsson
Var mjög sprækur í þessum leik og skapaði mikið fyrir Stjörnuna. Átti stoðsendingu í fyrsta marki Stjörnuna
Atvikið
Það var lítið sem ekkert í gangi í leiknum þangað til að Stjarnan skorar sitt fyrsta mark. Eftir það koma fjögur mörk á 13 mínútum, það var lítið í leiknum sem sagði til að það myndi gerast. Að auki var mjög falleg kveðjustund fyrir Daníel Laxdal, Hilmari Árna og Þórarin Inga þar sem spilað var langt myndband til heiðurs þessa leikmanna sem voru að spila sinn seinasta leik, sem var mjög fallegt að sjá.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan kláraði sitt með að sigra gegn FH hér í dag, en þurfti að vonast til þess að ÍA unni Val til þess að ná Evrópasæti, en það gekk ekki upp þar sem ÍA tapaði 6-1 gegn Val. FH liggja í neðsta sæti efri hlutans og söfnuðu þeir aðeins 1 stig eftir skiptingu deildarinnar.
Vondur dagur
FHingar voru farnir að bakka aðeins of mikið í seinni háflleik og náðu ekki að skapa eins mikið af tækifærum og Stjarnan var. Þetta var mjög opin leikur í stöðunni 2-2 og var Stjarnan alltaf líklegri í að skora mark. Baldur Kári, ungi FH leikmaðurinn, vill sem helst gleyma þessum mikilvægu mistök hans þegar hann skorar sjálfsmark sem er lokamark leiksins. Vonandi brýtur þetta ekki á sjálfstraustið honum sem var að byrja sinn 4 leik og hans fyrsti 90. mínútna leikur á þessu tímabili.
Dómarinn - 9
Nánast fullkomlega dæmdur leikur hjá Erlendi og teymninu hanns. Það var ekki mikið athyglisvert sem fór fram í þessum leik, en það sem hann dæmdi var mjög flott.




