Newcastle vill Kean - Arsenal og Liverpool hafa áhuga á Eze - Modric gæti farið til Katar
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 2
1
FH
Besta-deild karla
Víkingur R.
LL 2
0
ÍBV
Víkingur R.
2
0
ÍBV
Daníel Hafsteinsson '49 1-0
Gylfi Þór Sigurðsson '55
Gunnar Vatnhamar '79 2-0
07.04.2025  -  18:00
Víkingsvöllur
Besta-deild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson ('89)
8. Viktor Örlygur Andrason ('68)
11. Daníel Hafsteinsson ('68)
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson (f) ('45)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson ('89)
32. Gylfi Þór Sigurðsson

Varamenn:
16. Jochum Magnússon (m)
9. Helgi Guðjónsson ('45)
15. Róbert Orri Þorkelsson
17. Atli Þór Jónasson ('89)
19. Þorri Ingólfsson
24. Davíð Örn Atlason ('68)
27. Matthías Vilhjálmsson ('68)
31. Jóhann Kanfory Tjörvason
77. Stígur Diljan Þórðarson ('89)

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Viktor Örlygur Andrason ('33)
Daníel Hafsteinsson ('44)

Rauð spjöld:
Gylfi Þór Sigurðsson ('55)
Leik lokið!
Sigur Víkinga staðreynd.

Ekki jafn sannfærandi og margir bjuggust við en sigur fyrir því.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
93. mín
Eyjamenn reyna en ekkert gengur
Na upp álitlegri sókn, boltinn fyrir markið og Omar gerir sig líklegan í að ráðast á boltann. Ingvar á undan og rífur boltann til sín.
90. mín
Uppbótartími er að lágmarki sjö mínútur.
89. mín
Inn:Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.) Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
89. mín
Inn:Atli Þór Jónasson (Víkingur R.) Út:Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
86. mín
Þessi seinni hálfleikur verið hálf sérstakur. Rautt spjald og mörkin vissulega. En þess utan hefur lítið sem ekkert gerst.
83. mín
Inn:Sverrir Páll Hjaltested (ÍBV) Út:Hermann Þór Ragnarsson (ÍBV)
80. mín
Eyjamenn reyna.
Ná upp ágætis sókn sem endar með skoti frá Oliver úr hálf vonlausu færi sem fer víðsfjarri markinu.
79. mín MARK!
Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
Manni færri bæta þeir í! Hornspynan frá Helga góð inn á markteiginn þar sem Gunnar er einfaldlega sterkari en allir aðrir og hamrar boltann inn með höfðinu.
77. mín
Víkingar fá hornspyrnu,

Flýta sér hægt.
75. mín
Leikurinn í algjörum járnum og hvorugt lið að gefa nokkur færi á sér sem heita má.

Baráttan allsráðandi.
71. mín
Inn:Birgir Ómar Hlynsson (ÍBV) Út:Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV)
71. mín
Inn:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV) Út:Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
70. mín
Brotið á Sveini Gísla á miðjunni eftir kröftugt hlaup hans úr vörninni. Hörkutækling og Víkingar ósáttir en ekkert spjald á loft.
68. mín
Inn:Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.) Út:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
68. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
65. mín
Víkingar ögn að koma til baka og náð að halda boltanum síðustu mínútur.

Ekkert skapað sér þó.
63. mín
Inn:Omar Sowe (ÍBV) Út:Þorlákur Breki Þ. Baxter (ÍBV)
63. mín
Inn:Jorgen Pettersen (ÍBV) Út:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
62. mín
Eins og gefur að skilja hafa Eyjamenn allir eflst við þessi atburðarrás hér í Víkinni.

Ekki skapað sér færi til að tala um ennþá en halda boltanum mun betur og eru að stýra umferðinni.
58. mín
Það vantar ekki dramatísk augnablik í þessa umferð.
55. mín Rautt spjald: Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
Hvað gerist hér?
Fer í tæklingu á miðjum vellinum er ÍBV sækir. Kemur aftan að Bjarka Birni og teygir sig í hann.

Helgi var fljótur í vasann að rífa upp rauða spjaldið.
49. mín MARK!
Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Sveinn Gísli Þorkelsson
Ísinn er brotinn hjá Víkingum
Sveinn Gísli með góða fyrirgjöf frá vinstra vítateigshorni sem finnur glókollinn á Daníel Hafsteinssyni sem skallar hann örugglega í netið.

Þetta tók tíma fyrir Víkinga að brjóta niður baráttuglaða Eyjamenn.
47. mín
Fyrsta ógn síðari hálfleiks Eyjamanna.
Bjarki Björn með stórhættulega fyrirgjöf frá hægri en Hermann hálfu skrefi of seinn og nær ekki að stýra boltanum í netið úr teignum.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikur
+6 Flautað til hálfleiks hér í Víkinni.

Gestirnir ganga sáttir til búningshergbergja í markalausri stöðu en Víkingar hafa ekki verið sjálfum sér líkir í þessu fyrri hálfleik. Vantar töluvert upp á tempóið í þeirra leik sem og tímasetningar.
45. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
+2 Aron er þó á leið af velli
45. mín
+1 Aron Elís liggur og kveinkar sér.

Sýnist hann halda um hnéð.
Ekki alvarlegt í það minnsta og er Aron komin á fætur.
45. mín
Uppbótartími fyrri háfleiks er að minnsta kostir fjórar mínútur.
44. mín Gult spjald: Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)

Brot út á væng.
42. mín
Víkingar að skapa í nánast hverri sókn núna.
Góðar sendingar inn á teiginn trekk í trekk en Eyjamenn lifa þetta af ennþá.
40. mín
Fleiri myndir frá Hafliða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

38. mín
Aftur bjargar Marcel
Boltinn dettur fyrir Viktor Örlyg vinstra megin í teignum eftir þunga sókn Víkinga en Marcel vel á verði og ver skot hans.

Víkingar að herða skrúfurnar og hækka tempóið í leik sínum.
33. mín Gult spjald: Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
Brýtur af sér á vallarhelmingi ÍBV og uppsker gult spjald.
32. mín
Sveinn Gísli með frábært skot!
Smellhittir boltann sem virðist stefna beint í hornið vinstra megin á markinu. Marcel vel á verði og ver ekki síður glæsilega.
29. mín Gult spjald: Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)

Valdimar snýr á Alex sem sparkar hann niður. Helgi í vasann og rífur upp gula spjaldið.
28. mín
Víkingar að gefa Eyjamönnum eins og eitt horn með kæruleysi í öftustu línu.

Verður þeim refsað?
27. mín
VAR nefnd blaðamanna hefur kveðið upp úrskurð.
Rétt ákvörðun hjá Helga að flauta ekki. Virkar afskaplega lítið í endursýningum.
24. mín
Gylfi fer niður í teig ÍBV og hávær vítasköll heyrast frá Víkingum. Ég er ekki sannfærður. Þarf að sjá þetta aftur.
24. mín
Sveinn Gísli með fyrirgjöf. Aron Elís fyrstur á boltann en skalli hans af varnarmanni og afturfyrir.
22. mín
Arnór er í lagi og mættur aftur til leiks.
20. mín
Arnór Ingi liggur eftir í eigin teig eftir þessa hornspyrnu og kveinkar sér. Við fyrstu sýn er eins og hann hafi mögulega fengið spark í höfuðið.
19. mín
Frábær hornspyrna frá Gylfa ratar á kollinn á Gunnari Vatnhamar í teignum sem skallar boltann beint niður Upp hefst smá kraðak en boltinn að endingu í fang Marcel.
18. mín
Erlingur með fyrirgjöf frá hægri, of há fyrir Valdimar en Viktor er mættur á fjærstöng. Eyjamenn setja boltann afturfyrir.
17. mín
Eyjamenn ógna
Felix Örn með gott hlaup upp vænginn og hættulega fyrirgjöf. Oliver gerir sig líklegan en Ingvar fyrri til á boltann.
14. mín
Hafliði Breiðfjörð er mættur að vanda
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

9. mín
Víkingar stýra
Verið með boltann svona 70-80% á þessum upphafsmínútum en ekki fundið aðra opnun eftir þetta færi Gylfa áðan.
4. mín
Gylfi í færi
Vikingar sprengja upp vörn ÍBV með sendingu innfyrir á Svein Gísla. Hann kemur boltanum fyrir markið þar sem Gylfi mætir í hlaupið en setur boltann hárfínt framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka okkur af stað.
Fyrir leik
Víkingar heiðra Halldór Smára.
Halldór Smári Sigurðsson eða Herra Víkingur lagði skónna á hilluna frægu á dögunum. Hann er fyrir leik heiðraður af Víkingum með blómvendi og tilheyrandi.

Mynd: Víkingur

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár! Hjá Víkingi vekur athygli að nýr fyrirliði liðsins, Oliver Ekroth, er ekki í hópnum. Aron Elís Þrándarson er með bandið í fjarveru Svíans. Gylfi Þór Sigurðsson spilar sinn fyrsta deildarleik fyrir Víking í dag en hann kom frá Val í vetur. Sveinn Gísli Þorkelsson er við hlið Gunnars Vatnhamars í hjarta varnarinnar.

Hjá ÍBV er Marcel Zapytowski í byrjunarliðinu en markmaðurinn gekk í raðir ÍBV í síðustu viku. Mattias Edeland er þá klár í slaginn en hann hefur verið talsver frá vegna meiðsla í vetur. Besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra, Oliver Heoðarsson, er í fremstu línu ásamt Breka Baxter en þeir Sverrir Páll Hjaltested, Arnar Breki Gunnarsson og Omar Sowe eru á bekknum.
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Gylfi Þór bestur í deildinni? Gylfi Þór Sigurðsson var á dögunum valinn besti leikmaður deildarinnar hér á Fótbolti.net, en það er spurning hvernig honum mun vegna í kvöld í fyrsta leik sínum í Bestu-deildinni fyrir Víkinga.

Í fréttinni segir: Gylfi er besti- og markahæsti leikmaður landsliðsins í sögunni. Hann hafði verið hjá Val í tæplega ár áður en hann vildi skipti yfir í Víking. Hans stóra markmið er að vinna Íslandsmeistaratitilinn áður en ferlinum lýkur.

Mynd: Víkingur

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
Dómari leiksins Dómarinn í Víkinni í dag er Helgi Mikael Jónasson.

Helga til aðstoðar verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Kristján Már Ólafs.

Þá verður Jón Magnús Guðjónsson eftirlitsmaður og Þórður Þorsteinn Þórðarson varadómari.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
Víkingi spáð 2. sætinu Víkingi Reykjavík er spáð 2. sæti deildarinnar í spá Fótbolta.net fyrir Bestu-deildina.

Eins og alþjóð veit þá skipti Gylfi Þór Sigurðsson frá Val yfir í Víking fyrr á þessu ári.

Lykilmenn: Oliver Ekroth og Gylfi Þór Sigurðsson

Nýr fyrirliði Víkinga er sænski varnarmaðurinn Oliver Ekroth Ekroth er 33 ára sænskur miðvörður sem hefur verið hjá Víkingi síðan 2022 og hjálpað liðinu að vinna titla undanfarin ár. Hann er án efa einn besti miðvörður Bestu deildarinnar. Gylfi er þá mættur í Víking og það þarf nú ekki að segja mikið um hann og þau gæði sem hann býr yfir. Verður eflaust frábær fyrir Víkinga í sumar.

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
ÍBV spáð neðsta sætinu Eyjamönnum er, í spá Fótbolta.net fyrir Bestu-deildina, spáð neðsta sætinu í deildinni.

Það mun mæða mikið á þeim Oliver Heiðarssyni og Sigurði Arnari að halda liðinu uppi í deild þeirra Bestu.

Lykilmenn: Oliver Heiðarsson og Sigurður Arnar Magnússon

Oliver var besti leikmaður Lengjudeildarinnar í fyrra og þurftu Eyjamenn að leggja mikið á sig til að halda honum. Hann hefur gæði og kraft til að gera frábæra hluti í Bestu deildinni. Sigurður Arnar er Eyjamaður í húð og hár sem hefur mikla reynslu úr Bestu deildinni. Hann er kominn heim eftir að hafa leikið afar vel í háskólaboltanum í Bandaríkjunum.

Hilmar Jökull Stefánsson
Fyrir leik
Velkomin í Víkina Góðan og gleðilegan daginn og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Víkingsvelli, þar sem Víkingur Reykjavík og ÍBV mæta til leiks í Bestu-deild karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Jökull Stefánsson
Byrjunarlið:
1. Marcel Zapytowski (m)
2. Sigurður Arnar Magnússon
5. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('63)
22. Oliver Heiðarsson
23. Arnór Ingi Kristinsson ('71)
24. Hermann Þór Ragnarsson ('83)
25. Alex Freyr Hilmarsson (f) ('71)
26. Felix Örn Friðriksson
45. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('63)

Varamenn:
31. Hjörvar Daði Arnarsson (m)
3. Alexander Örn Friðriksson
4. Nökkvi Már Nökkvason
7. Jorgen Pettersen ('63)
9. Viggó Valgeirsson
10. Sverrir Páll Hjaltested ('83)
14. Arnar Breki Gunnarsson ('71)
21. Birgir Ómar Hlynsson ('71)
67. Omar Sowe ('63)

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Óskar Elías Zoega Óskarsson
Jón Ingason
Elías J Friðriksson
Elías Árni Jónsson
Kristian Barbuscak

Gul spjöld:
Alex Freyr Hilmarsson ('29)

Rauð spjöld: