Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Stjarnan
Stjarnan
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Kalt og mikill blástur
2 - 1
ÍA
ÍA
Andri Rúnar Bjarnason 26'1 - 01 - 142' Steinar Þorsteinsson Guðmundur Baldvin Nökkvason 52'2 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Andri Rúnar blómstrar í Garðabænum

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn var mjög jafn og ef heimurinn væri sanngjarn hefði leikurinn eflaust endað sem jafntefli. Bæði lið fengu góðar stöður. Gæðin á síðasta þriðjung voru bara meiri hjá Stjörnunni og það skipti sköpum í dag.

Bestu leikmenn

1. Andri Rúnar Bjarnason

Andri frábær í dag. Skoraði gott mark og átti frábæra stoðsendingu. Andri hefur skorað í báðum leikjum Stjörnunnar það sem af er tímabils.

2. Guðmundur Baldvin Nökkvason

Guðmundur sömuleiðis skoraði og lagði upp, líkt og Andri. Flottur í dag og var mikið í boltanum.

Atvikið

Rúnar Már var hársbreidd frá því að jafna metin á síðustu sekúndum í uppbótartíma.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er í 2. sæti með fullt hús stiga eftir tvo leiki. ÍA er í 6. sæti með 3 stig.

Vondur dagur

Haukur Andri var eflaust einn besti leikmaður ÍA í leiknum. En fékk frekar klaufalegt rautt spjald undir lok leiks. Haukur fékk gult spjald fyrir mótmæli. Hann fékk svo seinna gula fyrir óþarfa tæklingu í uppbótartíma.

Dómarinn - 7

Heilt yfir flottir í dag. Rauða spjaldið á Hauk frekar soft að mínu mati en ákvörðunin ekkert galin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.