Fotbolti.net
Besta deildin
@kjartanleifursKjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
Víkingsvöllur
Blíðskaparveður
1 - 4
Þór/KA
Þór/​KA
0 - 133' Bríet Fjóla Bjarnadóttir0 - 238' Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir0 - 352' Karen María Sigurgeirsdóttir Bergdís Sveinsdóttir 70'1 - 31 - 487' Hildur Anna Birgisdóttir
Dómari: Bríet Bragadóttir
Leik lokið!
Sanngjarn sigur Þór/KA staðreynd. Víkingar áttu fínan kafla hérna seinustu tuttugu mínúturnar og hefðu getað gert leik úr þessu en það gekk ekki upp.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
Þór/KA
87. mín
Ótrúlegt mark!

Hildur Anna Birgisdóttir

Margrét Árnadóttir með skot eða eiginlega bara hreinsun af einhverjum 40 metrum. Boltinn smellur í innanverðri stönginni og Hildur klárar í autt markið. Game over!
Víkingur R.
85. mín
InnArna Ísold Stefánsdóttir
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
80. mín
Víkingar eru að þjarma að Þór/KA. Gæti verið skemmtilegar lokamínutur framundan ef þeim tekst að skora fljótlega.
80. mín
Karen María með skot langt framhjá.
Víkingur R.
79. mín
Gult spjald

Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Fyrir brot á Agnesi.
75. mín
Dauðafæri
Þórdís Hrönn verður að nýta þetta, ein gegn Jessica en lætur hana verja frá sér.
Þór/KA
71. mín
InnAmalía Árnadóttir
ÚtBríet Fjóla Bjarnadóttir
Bríet að fara af velli eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark í efstu deild.
Víkingur R.
70. mín
Erum við með leik?

Bergdís Sveinsdóttir (stoðsending: Linda Líf Boama)

LInda með fyrirgjöf frá hægri kanti sem Bergdís skallar inn á nærstönginni
69. mín
Áslaug Dóra skallar framhjá hér í kjölfar hornsins.
69. mín
Fín sókn hjá Víkingum sem sækja horn.
64. mín
Sandra María með skot hér sem fer rétt yfir
Víkingur R.
61. mín
Gult spjald

Bergþóra Sól Ásmundsdóttir

Harkaleg tækling á Karen Maríu, réttur dómur.
Víkingur R.
59. mín
InnÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
ÚtGígja Valgerður Harðardóttir
Þór/KA
57. mín
InnHildur Anna Birgisdóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Hulda átt frábæran leik
55. mín
Linda Líf leggur boltann fyrir Bergdísi sem á skot framhjá af stuttu færi. Betra frá Víkingum
Þór/KA
52. mín
Þær eru að ganga frá heimakonum!

Karen María Sigurgeirsdóttir

Karen fær boltann frá Söndru, snýr á Birtu og lætur vaða lengst fyrir utan teig. Boltinn er erfiður viðureignar fyrir Kötlu þarna í markinu sem kemur engum vörnum við.
51. mín
Lítið markvert gerst hér í upphafi seinni hálfleiksins.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þór/KA hefur leikinn að nýju.
Víkingur R.
46. mín
InnFreyja Stefánsdóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
45. mín
Þór/KA tveimur mörkum yfir í hálfleik. Verður að segjast að það er afar sanngjarnt í ljósi þess hvernig leikurinn hefur spilast. Víkingar þurfa að sýna sitt rétt andlit í seinni hálfleik ef ekki á illa að fara. Fáum okkur kaffi og snúum svo aftur eftir korter!
45. mín
Bergdís tekur spyrnuna sem fer framhjá veggnum en Jessica vel á verði í markinu og grípur þetta.
45. mín
Víkingar fá hér aukaspyrnu á frábærum stað. Yrði sterkt að ná inn marki núna eftir afleitan fyrri hálfleik af þeirra hálfu.
45. mín
Þremur mínútum bætt við fyrri hálfleikinn
Þór/KA
38. mín
Akureyringar með öll völd á vellinum!

Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir (stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir )

Hulda með fyrirgjöf sem að Kimberley skallar í autt markið. Víkingskonur þurfa að fara mæta til leiks.
35. mín
Margrét Árna með skot lengst utan af velli sem Katla grípur.
35. mín
Þetta er fyrsta mark Bríetar í Meistaraflokksbolta. Minni á að hún er fædd á því herrans ári 2010.
Þór/KA
33. mín
Sanngjörn forysta!

Bríet Fjóla Bjarnadóttir (stoðsending: Hulda Ósk Jónsdóttir )

Hulda Ósk með fyrirgjöf sem að Katla í markinu misreiknar. Boltinn fer af slánni og dettur fyrir Bríeti sem skorar í autt markið. Bríet Fjóla, sem fædd er 2010, er komin á blað í Bestu!
Þór/KA
27. mín
InnKolfinna Eik Elínardóttir
ÚtEva Rut Ásþórsdóttir
Óskum Evu góðs bata!
25. mín
Eva Rut hefur verið borin af velli en engin er komin inná í hennar stað enn sem komið er.
24. mín
Eva Rut liggur hér eftir og börurnar eru komnar inn á. Virðist hafa meiðst illa á hné hér því miður.
19. mín
Þór/KA fá hér aukaspyrnu á flottum stað fyrir fyrirgjöf en Víkingar skalla frá.
18. mín
Akureyringar betri þessa stundina
Bríet Fjóla með flotta fyrirgjöf, Hulda kemst í boltann en rétt framhjá.
15. mín
Þar skall hurð nærri hælum!
Boltinn í gegn á Söndru Maríu sem er í fínni stöðu vinstra meginn, Katla rennur til í markinu og Sandra reynir að lyfta knettinum yfir hana en boltinn í hliðarnetið.
12. mín
Karen María tekur spyrnuna, smá þvaga myndast í kjölfarið en Víkingar leysa úr þessu.
11. mín
Norðankonur fá hér fyrsta horn leiksins
10. mín
Róleg byrjun
Lítið um að vera hér í upphafi leiks.
4. mín
Jóhanna Elín með fyrsta skot leiksins en það fer langt framhjá.
1. mín
Heimakonur byrja með boltann
Fyrir leik
Gengið inn á völlinn
Liðin ganga nú til vallar og styttist því í upphafsflaut Bríetar.
Fyrir leik
Fimmta sætið
Þór/KA er spáð fimmta sæti í deildinni af sérfræðingum Fótbolta.net, sæti neðar en í fyrra. Komnar: Eva Rut Ásþórsdóttir frá Fylki Jessica Berlin frá Írlandi Farnar: Ísfold Marý Sigtryggsdóttir í Víking Bryndís Eiríksdóttir í Val (var á láni) Lidija Kulis til S.a.f. Lara Ivanusa til S.a.f. Samningslausar: Shelby Money (1997) Eva S. Dolina-Sokolowska (2008)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáð þriðja sæti
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Víkingar endi í þriðja sæti í deildinni, annað árið í röð. Komnar: Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir frá Svíþjóð Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir frá Val Ísfold Marý Sigtryggsdóttir frá Þór/KA Jóhanna Elín Halldórsdóttir frá Selfossi Tara Jónsdóttir frá Gróttu (var á láni) Eva Ýr Helgadóttir frá Smára Farnar: Shaina Ashouri til Kanada Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir til Svíþjóðar Hafdís Bára Höskuldsdóttir til Svíþjóðar Hulda Ösp Ágústsdóttir í Gróttu Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir í Gróttu (á láni) Samningslausar: Rachel Diodati (2000) Halla Hrund Ólafsdóttir (2004) Dagbjört Ingvarsdóttir (1996)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáir Víkingssigri
Íslandsmeistarinn Ásta Eir Árnadóttir spáir í leikina í fyrstu umferðinni. Ásta lagði skóna á hilluna eftir að hafa unnið titilinn með Breiðabliki í fyrra. Víkingur R. 2 - 1 Þór/KA (18:00 á morgun) Held þetta verið skemmtilegasti leikur umferðarinnar. Mikið um færi og læti. Linda Líf kemur Víking yfir og Sandra María jafnar, mjög óvæntur markaskorari. Bergþóra Sól skorar svo í blálokin eftir klafs í teignum og hún potar honum inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkominn í Víkina
Góðan og blessaðan daginn, hér fer fram bein textalýsing frá leik Víkings og Þór/KA í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.