SKÝRSLAN: Króksarar unnu nýliðana
Hvað réði úrslitum?
Þetta var frekar jafnt í fyrri hálfleik þar sem bæði lið buðu upp á stór varnarmistök en hvorugt liðið gat nýtt sér það. Tindastóll kom svo töluvert skarpari út í seinni hálfleikinn og þær skoruðu sitt mark. Eftir það tókst þeim að stjórna leiknum þannig að þær gátu siglt sigrinum heim.
Bestu leikmenn
1. Makala Woods (Tindastóll)
Bjó til markið og var almennt séð allt í öllu sóknarlega hjá Tindastól. Hefði mögulega átt að skora sjálf.
2. Elísa Bríet Björnsdóttir (Tindastóll)
Elísa var mjög öflug í dag, alvöru orka í pressuni og gerði mjög vel í stjörnun á leiknum.
Atvikið
Á 2. mínútu leiksins kemur Keelan Terrell út úr markinu og virðist tækla Makala Woods. Með því rænir hún henni upplögðu marktækifæri og hefði þá átt að fá rautt. Spurningin er hvort hún taki boltan eða ekki, ég er ekki búinn að sjá nógu margar endursýningar til að vera viss en mér fannst Terrell verulega heppin að sleppa við dóminn þarna.
Hvað þýða úrslitin?
Tindastóll byrjar tímabilið vel með þrjú stig gegn liði sem þær eru líklegar til að berjast við um stöðu í töflunni þegar líður á tímabil. FHL hefur spilað sinn fyrsta leik í efstu deild en eru enn í leit af stigum.
Vondur dagur
Hope Santaniello sóknarmaður FHL komst oft í mjög fínar stöður en gerði voða lítið með þær. Slök skot sem voru ýmist laus og framhjá markinu. FHL hefði líkast til átt að skora allavega eitt mark i þessum leik og það hefði líkast til átt að vera Hope.
Dómarinn - 5
Eins og er þá held ég að Þorfinnur hafi gert mistök strax í byrjun leiks og ef FHL hefði fengið rautt á markmanninn sinn strax í byrjun þá hefði það heldur betur breytt leiknum. Tindastóll vann hinsvegar leikinn þannig þeim er líkast til sama núna.




