Man City leiðir baráttuna um Gibbs-White - Chelsea hefur áhuga á Gyökeres - Watkins til Liverpool?
Mjólkurbikar karla
KR
14:00 0
0
Mjólkurbikar karla
Grindavík
14:00 0
0
Valur
Stjarnan
5
3
Njarðvík
0-1 Oumar Diouck '2
Emil Atlason '25 1-1
Emil Atlason '36 2-1
2-2 Valdimar Jóhannsson '64
2-3 Tómas Bjarki Jónsson '67
Örvar Eggertsson '90 3-3
Sindri Þór Ingimarsson '94 4-3
Sigurjón Már Markússon '114
Örvar Eggertsson '114 5-3
Kjartan Már Kjartansson '118
5-3 Oumar Diouck '118 , misnotað víti
18.04.2025  -  16:00
Samsungvöllurinn
Mjólkurbikar karla
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Maður leiksins: Örvar Eggertsson
Byrjunarlið:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
6. Sindri Þór Ingimarsson
10. Samúel Kári Friðjónsson ('59)
11. Adolf Daði Birgisson ('59)
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason ('59)
22. Emil Atlason (f) ('59)
23. Benedikt V. Warén ('108)
24. Sigurður Gunnar Jónsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson ('86)
29. Alex Þór Hauksson
32. Örvar Logi Örvarsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
7. Örvar Eggertsson ('59)
14. Jón Hrafn Barkarson ('59)
17. Andri Adolphsson ('86)
19. Daníel Finns Matthíasson ('59)
30. Kjartan Már Kjartansson ('108)
37. Haukur Örn Brink
41. Alexander Máni Guðjónsson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('59)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Rajko Stanisic
Þór Sigurðsson
Egill Atlason
Guðmundur Kristjánsson
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Aleksandar Cvetic

Gul spjöld:
Örvar Eggertsson ('101)

Rauð spjöld:
Kjartan Már Kjartansson ('118)
@ Bogi Sigurbjörnsson
Skýrslan: Stjarnan slapp með skrekkinn á móti Njarðvík
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikur var aðeins lokaðri en sá seinni þrátt fyrir 3 mörk en Emil Atla gerði þar vel að vera alltaf rétti maður á réttum stað. Í seinni hálfleik komu Njarðvíkingar kol vitlausir út og voru mun betri, en það er bara fyrir mistök hjá Aroni Snæ að Stjarnan náði þessu í framlengingu. Í framlengingunni sást að Njarðvíkingar áttu ekki mikið eftir á tanknum og var það að lokum þeim að falli.
Bestu leikmenn
1. Örvar Eggertsson
Örvar byrjaði á bekknum sem reyndist góð ákvörðunn hjá Jökli, þreyttir Njarðvíkingar áttu ekki breik í hann og hann endaði leikinn með 2 mörk og eitt af þeim á lokasekúndum venjulegs leiktíma
2. Tómas Bjarki Jónsson
Tómas Bjarki fyrirliði gestanna var stórkostlegur í dag, hann var á hundrað allan leikinn og stjórnaði sínum mönnum á vellinum vel í dag og uppiskar hann með einu marki.
Atvikið
Atvikið í dag eru klárlega markið á lokasekúndu venjulegs leiktíma sem Örvar skoraði en þetta voru slæm mistök hjá Aroni, en það var samt nóg af skemmtilegum og áhugaverðum atvikum í dag.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Njarðvíkingar detta úr bikarinum og Stjarnan heldur áfram í 16 liða úrslit. Njarðvíkingar eru náttúrulega í deild fyrir neðan Stjörnuna og þeir geta labbað stoltir af borði eftir þessa frammistöðu, þeir eiga fyrsta leik í Lengjudeildinni 2. maí á móti sterku liði Fylkis. Stjarnan heldur næst í Kópavoginn þar sem Garðbæingar fara í hörkuleik á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Breiðabliks.
Vondur dagur
Aron Snær Friðriksson, markmaður Njarðvíkur, gerði tvö slæm mistök sem varð hans mönnum að falli, fyrst slær hann boltann aftur fyrir sig og beint á Örvar sem skoraði en gæti verið að sólin hafi verið eithvað að þvælast fyrir honum. Í fyrsta markinu í framlengingunni hefði hann líka átt að gera betur, boltinn kemur óvænt til hans en hann slær boltan laust fram fyrir sig og Sindri Þór skorar. En það er bara upp upp og áfram fyrir Aron.
Dómarinn - 6
Mér fannst hann heilt yfir mjög flottur fyrir utan þetta rauða spjald sem hann gaf Kjartani í vítinu, en annars var línan í leiknum fín og leikurinn fékk að ganga.
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson
3. Sigurjón Már Markússon
5. Arnar Helgi Magnússon
6. Arnleifur Hjörleifsson ('117)
7. Joao Ananias ('83)
9. Oumar Diouck
10. Valdimar Jóhannsson
11. Freysteinn Ingi Guðnason ('89)
14. Amin Cosic ('117)
16. Svavar Örn Þórðarson ('90)
19. Tómas Bjarki Jónsson (f)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Bartosz Matoga (m)
2. Davíð Helgi Aronsson ('117)
8. Kenneth Hogg ('83)
17. Símon Logi Thasaphong ('89)
18. Björn Aron Björnsson ('90)
20. Erlendur Guðnason ('117)
25. Ýmir Hjálmsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Arnar Freyr Smárason
Jón Orri Sigurgeirsson
Sigurður Már Birnisson
Jaizkibel Roa Argote
Gabríel Sindri Möller

Gul spjöld:
Oumar Diouck ('41)
Aron Snær Friðriksson ('90)
Tómas Bjarki Jónsson ('112)

Rauð spjöld:
Sigurjón Már Markússon ('114)