Fotbolti.net
@jakob_rnJakob Örn Heiðarsson
Mjólkurbikar karla
KR-völlur
KR
KR
11 - 0
KÁ
Aron Sigurðarson 6'1 - 0Guðmundur Andri Tryggvason 15'2 - 0Alexander Rafn Pálmason 32'3 - 0Alexander Rafn Pálmason 34'4 - 0Aron Sigurðarson 41'5 - 0Luke Morgan Conrad Rae 54'6 - 0Eiður Gauti Sæbjörnsson 57'7 - 0Róbert Elís Hlynsson 67'8 - 0Róbert Elís Hlynsson 73'9 - 0Alexander Rafn Pálmason 80'10 - 0Sigurður Breki Kárason 87'11 - 0
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

SKÝRSLAN: KR siglir örugglega áfram

Hvað réði úrslitum?

Það var greinarmunur á liðunum. KR er eitt af fimm bestu liðum landsins á meðan KÁ er varalið Hauka og spilar í fjórðu deildinni. Það kann að hljóma skrýtið, en það má samt hrósa KÁ mönnum fyrir að reyna. Þeir reyndu að spila sinn fótbolta og gáfust aldrei upp, þrátt fyrir að vera 10-0 undir á 80. mínútu. KR yfirspilaði þá í dag, átti frábæran leik og enginn leikmaður steig feilspor.

Bestu leikmenn

1. Alexander Rafn Pálmason

Var frábær á miðjunni í dag, mjög öruggur í sínum aðgerðum og skoraði eiginlega þrennu eða svona 2,5 mark, ef maður getur sagt það. Aðeins 15 ára gamall að spila sinn fyrsta keppnisleik, en það sást svo sannarlega ekki á honum inni á vellinum.

2. Aron Sigurðsson

Aron var frábær í dag með tvö mörk og að minnsta kosti tvær stoðsendingar. Hann er auðvitað einn besti leikmaður landsins, og þegar svoleiðis leikmaður fær pláss til að skapa og gera skemmtilega hluti á vellinum, þá lítur hann einfaldlega óstöðvandi út.

Atvikið

Aukaspyrnan hjá Aroni Sig var rock solid. Það var líka mikil ánægja hjá áhorfendum yfir mörkunum hjá Alexander Rafn og Sigurði Breka báðir aðeins 15 ára gamlir, en komust samt báðir á blað!

Hvað þýða úrslitin?

Bikarævintýri KÁ-manna er því miður lokið í ár í Mjólkurbikarnum, á meðan ævintýri KR-manna er rétt að byrja. KR tryggði sér farseðilinn í 16 liða úrslit og er væntanlega með augun á því að komast alla leið í stóra leikinn á Laugardalsvelli í haust.

Vondur dagur

Það er aldrei gaman að setja vondan dag á einhvern einn, því þetta var lið sem gaf allt sitt. Þó það hafi verið ljóst á pappír að KR væri sterkari aðilinn fyrifram. En ef eitthvað á að nefna, þá átti varnarlína KÁ erfitt uppdráttar. Þegar spilað er gegn jafn vel skipulögðu og hæfileikaríku liði og KR, þá kosta mistök dýrt og KR refsaði grimmilega fyrir þau. Það voru nokkur atriði sem hefðu mátt fara betur, en þetta eru líka strákar sem eru ekki vanir því að spila á þessu stigi og við svona hraða bolta. Með aðeins færri mistök hefði þetta getað orðið mun jafnari leikur. En ég hef fulla trú á því að KÁ muni gera góða hluti í sumar!

Dómarinn - 8

Ekkert út á dómarann að setja. Leikurinn var vissulega frekar auðveldur að dæma, en hann og teymið nelgdi samt allar ákvarðanir.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.