SKÝRSLAN: Allt eftir bókinni hjá Val gegn Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Valsmenn eru á pappír með sterkara lið en Grindavík og það sýndi sig í dag. Þeir þurftu ekkert að sýna sparihliðar sínar heldur sigldu þessu nokkuð örugglega í höfn. Grindavík gaf þeim þó ágætis leik og getur tekið ýmislegt jákvætt með sér úr leiknum.
Bestu leikmenn
1. Hólmar Örn Eyjólfsson
Stóð fyrir sínu í miðri vörn Vals í dag og komust Grindvíkingar ekkert upp í gegnum miðju vallarsins. Hólmar steig upp eftir vonbrigði í síðasta deildarleik og leiddi lið sitt vel.
2. Marius Lundemo
Réttur maður á réttum stað og skorar. Grindvíkingar réðu auk þess illa við hæð hans og styrk á miðjum vellinum þann klukkutíma sem hann lék.
Atvikið
Svo sem engin stór augnablik til að tala um. Jöfnunarmark Grindavíkur rétt fyrir hálfleik kemur upp í fljótu bragði. Viðurkenni að maður hugsaði alveg hversu týpískt það væri fyrir gengi Vals í upphafi Bestu deildarinnar.
Hvað þýða úrslitin?
Valur er í pottinum þegar dregið er í 16 liða úrslit en Grindavík er það ekki.
Vondur dagur
Valur vann leikinn en mér finnst eitthvað vanta. Tryggvi Hrafn Haraldsson fann ekki markaskóna í dag og aðrir leikmenn liðsins eiga sömuleiðis inni tölvuvert marga gíra að mér finnst. Vissulega 3-1 sigur en eflaust eru væntingar mínar til liðs Vals helst til miklar.
Dómarinn - 8
Jóhann Ingi og hans teymi var lítt áberandi á vellinum í dag. Ekki erfiðasti leikurinn sem hann hefur dæmt svo sem en hann gerði sitt vel.


