Leik lokið!
Þvlílíkur leikur sem við fengum í Garðabænum
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma.
89. mín
ÞETTA SLÁARSKOT VÁ
Jóhanna Elín fær boltann út til hægri og á fyrirgjöf við vítateigslínuna, fastur bolti meðfram grasinu inn á hættusvæðið. Birgitta Rún mætir á ferðinni og hamrar boltanum í slánna og niður.
Þetta var fast maður lifandi!
Þetta var fast maður lifandi!
87. mín
InnBirgitta Rún Yngvadóttir
ÚtBergdís Sveinsdóttir
87. mín
InnSelma Dögg Björgvinsdóttir
ÚtGígja Valgerður Harðardóttir
82. mín
ÞRENNA TAKK
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
Bergdís Sveinsdóttir með aukaspyrnu frá hliðarlínunni hægra megin og lyftir boltanum á fjær þar sem Áslaug er alein og nær að setja boltann í netið.80. mín
Þetta mark kom upp úr engu í rauninni en fyrir þetta höfðu heimastúlkur ekki skapað sér neitt, ekki einusinni hálffæri.
Stjarnan að laga stöðuna
Jessica Ayers
Jessica Ayers fær boltann fyrir utan teig og á skot sem fer í stöngina og inn.Þetta mark kom upp úr engu í rauninni en fyrir þetta höfðu heimastúlkur ekki skapað sér neitt, ekki einusinni hálffæri.
75. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtÞórdís Hrönn Sigfúsdóttir
75. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtFreyja Stefánsdóttir
74. mín
Leikurinn er að fjara hægt og rólega út
Lítið að gerast inn á vellinum þessa stundina.
72. mín
InnHenríetta Ágústsdóttir
ÚtHrefna Jónsdóttir
65. mín
InnJana Sól Valdimarsdóttir
ÚtGyða Kristín Gunnarsdóttir
64. mín
Þetta er endanlega komið. Það er alveg óhætt að segja að það er verk að vinna á æfingasvæðinu framundan hjá Jóhannesi Karli til að skrúfa fyrir þennan leka en liðið hefur fengið á sig 11 mörk í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar.
Víkingar að ganga frá leiknum hér
Erna Guðrún Magnúsdóttir (stoðsending: Bergdís Sveinsdóttir)
Bergdísi Sveinsdóttir með hornspyrnu frá vinstri beint á hausinn á Ernu Guðrúnu sem stýrir boltanum í fjærhornið.Þetta er endanlega komið. Það er alveg óhætt að segja að það er verk að vinna á æfingasvæðinu framundan hjá Jóhannesi Karli til að skrúfa fyrir þennan leka en liðið hefur fengið á sig 11 mörk í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar.
63. mín
Víkingur fær hornspyrnu
Hornspyrnan er tekin stutt og gestirnir vinna strax aðra.
61. mín
Langur bolti upp á Emmu Steinsen sem er í kapphlaupi við Betsy og Emma hefur betur í því kapphlaupi og nær fyrirgjöf en Vera Varis grípur.
58. mín
InnÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
ÚtLinda Líf Boama
58. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
58. mín
InnIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
ÚtBirna Jóhannsdóttir
58. mín
Linda Líf gerir vel úti hægra megin og á fyrirgjöf sem Vera nær að grípa.
50. mín
Ekki byrjunin á síðari hálfleik sem heimastúlkur óskuðu eftir.
Þetta var ótrúlegt!!
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
Andrea Mist tapar boltanum klaufalega og Víkingar keyra upp. Linda Líf fær boltann og leggur hann til hliðar á Þórdísi sem á skot sem fer af varnarmanni og yfir Veru í marki Stjörnunnar.Ekki byrjunin á síðari hálfleik sem heimastúlkur óskuðu eftir.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað
Víkingar vinna strax hornspyrnu.
45. mín
InnBetsy Doon Hassett
ÚtSandra Hauksdóttir
45. mín
Hálfleikur
Frábær fyrri hálfleikur
Brynjar Þór flautar til hálfleriks. Gestirnir í Víking leiða inn í hálfleikinn. Virkilega fjörugur fyrri hálfeikur en þetta hefur verið fram og til baka, bara eins og í alvöru borðtennisleik!
Tökum okkur pásu og komum svo með síðari hálfleikinn í beinni frá Samsungsvellinum.
Tökum okkur pásu og komum svo með síðari hálfleikinn í beinni frá Samsungsvellinum.
45. mín
Uppbótartími
Uppbótartími fyrri hálfleiks er að lágmarki ein mínúta.
38. mín
Víkingur fær hornspyrnu
35. mín
Andrea Mist fær boltann fyrir utan og á skot á markið en Sigurborg ekki í vandræðum og grípur boltann.
34. mín
Víkingar skora en brot dæmt
Boltanum er lyft inn á teig Stjörnunnar og Víkingar ná að setja boltann í netið en Brynjar sér eitthvað þarna inn á teig Stjörnunnar og dæmir brot.
32. mín
Arna Dís fær boltann á miðjum vallarhelming Víkinga og í staðin fyrir að lyfta boltanum inn á teiginn þá reynir Arna Dís þversendingu sem rúllar bara út fyrir hliðarlínu og Víkingar fá innkast.
Þessi sókn fór hálfpartinn í vaskinn hjá Stjörnunni.
Þessi sókn fór hálfpartinn í vaskinn hjá Stjörnunni.
28. mín
Ótrúlegur fyrsti hálftími hér á Samsungvellinum.
ÉG SKAL SEGJA YKKUR ÞAÐ
Hrefna Jónsdóttir
Slök hornspyrna hjá Víkingum og Stjarnan keyrir upp í skyndisókn. Jessica kemst upp að endalínu og á fyrirgjöf sem Hrefna nær að stýra í netið.Ótrúlegur fyrsti hálftími hér á Samsungvellinum.
25. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
Bergdís með frábæra aukaspyrnu frá hægri beint á Áslaugu Dóru sem á skalla sem fer í netið. Varis var kominn niður og boltinn endar í netinu. Þetta var skrítið.23. mín
Víkingar nálægt því að bæta við
Þórdís Hrönn með fyrirgjöf frá vinstri og boltinn dettur á Lindu sem tekur vel við honum og lætur vaða en boltinn réttframhjá.
Það er heldur betur líf í þessu.
Það er heldur betur líf í þessu.
21. mín
SIGURBORG VÁÁ
Gyða fær boltann við vítateiginn en Sigurborg ver boltann frábærlega í hornspyrnu
Sigurborg er bara að verja allt sem kemur að marki gestanna þessa stundina
Sigurborg er bara að verja allt sem kemur að marki gestanna þessa stundina
20. mín
Stjarnan nálægt því að minnka muninn
Boltinn dettur inn á Hrefnu sem á frábært skot, boltinn er á leiðinni í nærhornið en Sigurborg ver frábærlega í hornspyrnu.
19. mín
Erfið byrjun fyrir heimstúlkur en frábær fyrir gestina í Fossvoginum.
Gestirnir eru að tvöfalda
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
Þórdís Hrönn með hornspyrnu frá hægri og Vera fer í algjört skógarhlaup og missir klaufalega af boltanum. Linda Líf á skot sem Garðbæingar verja á línu en boltinn fer svo af Áslaugu Dóru og lekur í netið!Erfið byrjun fyrir heimstúlkur en frábær fyrir gestina í Fossvoginum.
18. mín
Þetta mark er að gefa gestunum aukna orku
Vinna strax hornspyrnu.
14. mín
Þú ert ekkert að fara verja hann þarna. 0-1 !
Gestirnir eru komnir yfir!!
Linda Líf Boama
Linda Líf fær boltann við D-Bogann og snýr frábærlega á varnarmann áður en hún þrumar boltanum upp í samskeytin nær.Þú ert ekkert að fara verja hann þarna. 0-1 !
11. mín
Víkingur vinnur hornspyrnu
Bergþóra færir boltann upp á Þórdísi sem á fyrirgjöf en Stjörnustúlkur hreinsa boltann í hornspyrnu.
Bergdís tekur hornspyrnuna en boltinn afturfyrir og markspyrna frá marki Stjörnunnar.
Bergdís tekur hornspyrnuna en boltinn afturfyrir og markspyrna frá marki Stjörnunnar.
8. mín
Stjarnan nálægt því að komast yfir
Boltinn dettur inn á Jessicu sem á skot sem Sigurborg ver vel út í teiginn og boltinn hrekkur á Hrefnu sem reynir að setja boltann í netið en Sigurborg ver frábærlega.
Þetta var færi!!
Þetta var færi!!
6. mín
Stjarnan vinnur hornspyrnu
Birna Jóhansdóttir gerir vel með boltann við teiginn vinstramegin og vinnur hornspyrnu sem Víkingar koma í burtu.
5. mín
Linda Líf fær boltann við miðjuna og keyrir bara með boltann upp að endarmörkum og reynir að kokma boltanum fyrir en boltinn er innarlega og fer beint í hendurnar á Veru.
Sú er snögg!!!
Sú er snögg!!!
3. mín
Áslaug Dóra með langan bolta inn fyrir vörn Stjörnunnar á Þórdísi sem sleppur aleins í gegn en Vera kemur út á móti og nær að loka vel á skotvínkil Þórdísar.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað
Brynjar Þór flautar til leiks. Stjörnustúlkur hefja leik.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks og bestu deildar stefið er komið á, liðin heilsast og núna fer allt að verða til reiðu fyrir upphafsflautið.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús
Jóhannes Karl gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Breiðablik í síðustu umferð Gyða Kristín Gunnarsdóttir kemur inn fyrir Huldu Hrund sem er í liðstjórn Stjörnunnar í kvöld.
John Henry Andrews gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Þór/KA í fyrstu umferð. Freyja Stefánsdóttir kemur inn og Jóhann Elín Halldórsdóttir fær sér sæti á tréverkinu.

Gyða Kristín kemur inn í Stjörnuliðið.

Freyja Stefánsdóttir kemur inn í lið Víkings R.
John Henry Andrews gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn Þór/KA í fyrstu umferð. Freyja Stefánsdóttir kemur inn og Jóhann Elín Halldórsdóttir fær sér sæti á tréverkinu.

Gyða Kristín kemur inn í Stjörnuliðið.

Freyja Stefánsdóttir kemur inn í lið Víkings R.
Fyrir leik
Dómarinn
Brynjar Þór Elvarsson verður á flautunni í Garðabænum í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Rögnvaldur Þ Höskuldsson og Óliver Thanh Tung Vú.
Varadómari í kvöld er Nour Natan Ninir.
Varadómari í kvöld er Nour Natan Ninir.
Fyrir leik
,,Úff hvað þessum liðum langar að gleyma fyrstu umferðinni”
Mist Rúnarsdóttir, hinn mikli sérfræðingur, spáir í aðra umferðina sem fór af stað í gær en það er spurning hvort hún geri betur en kollegi sinn, Ásta Eir Árnadóttir, sem var með tvo rétta í fyrstu umferð deildarinnar.
Stjarnan 1 - 2 Víkingur R. (18:00 í dag)
Úff hvað þessum liðum langar til að gleyma fyrstu umferðinni. Það hefur verið einbeiting á æfingasvæðinu síðustu daga og það mun sjást á töluvert skarpari frammistöðum beggja liða. Tilfinningin hjá mér er Víkingsmegin og ég ætla að skjóta á 1-2 útisigur í nokkuð jöfnum fótboltaleik. Andrea Mist kemur Stjörnunni yfir en mörk frá Lindu Líf og Bergdísi Sveins tryggja Víkingum þrjú stig í pokann.

Stjarnan 1 - 2 Víkingur R. (18:00 í dag)
Úff hvað þessum liðum langar til að gleyma fyrstu umferðinni. Það hefur verið einbeiting á æfingasvæðinu síðustu daga og það mun sjást á töluvert skarpari frammistöðum beggja liða. Tilfinningin hjá mér er Víkingsmegin og ég ætla að skjóta á 1-2 útisigur í nokkuð jöfnum fótboltaleik. Andrea Mist kemur Stjörnunni yfir en mörk frá Lindu Líf og Bergdísi Sveins tryggja Víkingum þrjú stig í pokann.

Fyrir leik
Bæði liðin fengu skell í fyrstu umferðinni
Bæði Stjarnan og Víkingur töpuðu í fyrstu umferðinni nokkuð stórt og vilja bæði liðin svara fyrir það strax í þessari annari umferð.
Breiðablik 6 - 1 Stjarnan
1-0 Samantha Rose Smith ('3 )
2-0 Samantha Rose Smith ('15 )
3-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('20 )
4-0 Agla María Albertsdóttir ('26 )
5-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('33 )
5-1 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('38 )
6-1 Karitas Tómasdóttir ('77 )
Víkingur R. 1 - 4 Þór/KA
0-1 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('33 )
0-2 Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('38 )
0-3 Karen María Sigurgeirsdóttir ('52 )
1-3 Bergdís Sveinsdóttir ('70 )
1-4 Hildur Anna Birgisdóttir ('87 )

Úlfa Dís skoraði mark Stjörnunnar í Kópavoginum.

Bergdís skoraði mark Víkings gegn Þór/KA í fyrstu umferðinni.
Breiðablik 6 - 1 Stjarnan
1-0 Samantha Rose Smith ('3 )
2-0 Samantha Rose Smith ('15 )
3-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('20 )
4-0 Agla María Albertsdóttir ('26 )
5-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('33 )
5-1 Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('38 )
6-1 Karitas Tómasdóttir ('77 )
Víkingur R. 1 - 4 Þór/KA
0-1 Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('33 )
0-2 Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('38 )
0-3 Karen María Sigurgeirsdóttir ('52 )
1-3 Bergdís Sveinsdóttir ('70 )
1-4 Hildur Anna Birgisdóttir ('87 )

Úlfa Dís skoraði mark Stjörnunnar í Kópavoginum.

Bergdís skoraði mark Víkings gegn Þór/KA í fyrstu umferðinni.
Fyrir leik
Samsungvöllur heilsar
Góðan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur í þessa beina textalýsingu frá Samsungvellinum í Garðabæ þar sem Stjarnan og Víkingur Reykjavík mætast í 2.umferð Bestu deildar kvenna.
Flautað verður til leiks klukkan 18:00

Flautað verður til leiks klukkan 18:00






Þakka fyrir mig í kvöld. Viðtöl og skýrsla væntanleg síðar í kvöld.