Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild kvenna
Boginn
Þór/KA
Þór/KA
2 - 1
Tindastóll
Tindastóll
0 - 15' Makala WoodsKaren María Sigurgeirsdóttir 52'1 - 1Bríet Jóhannsdóttir 88'2 - 1
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson

SKÝRSLAN: Þór/KA refsar í Boganum

Hvað réði úrslitum?

Ekki sannfærandi frammistaða hjá Þór/KA sem hefur haft gott tak á Tindastóli. Tindastóll fékk marga góða sénsa til að bæta við mörkum en boltinn vildi ekki inn í markið.

Bestu leikmenn

1. Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)

Hún var líflegust í sóknarleik Þór/KA og skoraði laglegt mark.

2. Margrét Árnadóttir (Þór/KA)

Var flott á miðjunni og skapaði fyrir Þór/KA liðið.

Atvikið

Kostulegt sigurmark Þórs/KA þar sem Bríet Jóhannsdóttir sendi boltann fyrir en hann rúllaði alla leið í fjærhornið undir lok leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Þór/KA á toppnum eins og er með sex stig eftir tvær umferðir en Tindastóll með þrjú stig eftir sigur á FHL í fyrstu umferð.

Vondur dagur

Makala Woods skoraði mark Tindastóls snemma leiks. Hún komst í margar góðar stöður en síðasta sendingin og færanýtingin ekki góð. Hún hefði getað komið Tindastóli í 2-0 rétt áður en Þór/KA jafnaði en hún skaut framhjá úr dauðafæri. Þá virtiist vera mikið óöryggi í leikmönnum Þórs/KA sem áttu í stökustu vandræðum með að ná sendingum á milli sín lengi vel sem olli þeim miklum vandræðum.

Dómarinn - 7

Flottur leikur hjá teyminu í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.