Fotbolti.net
Besta deildin
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Besta-deild karla
Samsungvöllurinn
Skýjað, 4 m/s og 9 gráður
Stjarnan
Stjarnan
2 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 120' Omar Sowe0 - 232' Bjarki Björn GunnarssonSindri Þór Ingimarsson 36'1 - 21 - 377' Oliver HeiðarssonSindri Þór Ingimarsson 95'2 - 3
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson

SKÝRSLAN: Geta líka gert þetta í logni á rennisléttu gervigrasi

Hvað réði úrslitum?

Verðskuldaður sigur Eyjamanna sem hafa verið í flottum gír undanfarna leiki. Þetta var þriðji sigurleikur liðsins í röð með bikarnum. Liðið sem Láki setti saman er heldur betur að smella vel saman og er að sýna mun meira en fólk bjóst við. Flott fótboltalið.

Bestu leikmenn

1. Bjarki Björn Gunnarsson - ÍBV

Bjarki Björn Gunnarsson lék listir sínar og fór illa með Stjörnumenn. Vanmetinn leikmaður. Hefur sýnt að hann kann að skora glæsimörk og gerði eitt slíkt í kvöld.

2. Sigurður Arnar Magnússon - ÍBV

Oliver, Sowe og Arnór Ingi gerðu tilkall í að fara í þennan dálk en miðvörðurinn er valinn.

Atvikið

Eyjamenn komust verðskuldað í tveggja marka forystu en Stjörnumenn komust inn í leikinn eftir skelfileg mistök markvarðarins Marcel Zapytowski. Hann reis hinsvegar upp eins og fuglinn Felix og átti mikilvægar vörslur og andar heldur betur léttar eftir að stigin þrjú voru komin í hús.

Hvað þýða úrslitin?

Eftir að hafa byrjað mótið á tveimur sigrum hafa tveir ósigrar fylgt eftir hjá Stjörnunni. Jökull virðist ekki vera búinn að finna sitt besta lið og talaði um það eftir leikinn að menn hefðu verið of linir í dag og hreinlega ekki átt neitt skilið.

Vondur dagur

Það var ekki góður taktur í Stjörnuliðinu og ákvarðanatökurnar margar hverjar kolrangar. Örvar Logi lenti nokkrum sinnum í miklum vandræðum með besta mann vallarins.

Dómarinn - 7

Gunnar Freyr var á heildina mjög fínn í þessum leik. Sammála Láka með það að aukaspyrnan var ódýr og svo sleppti hann 1-2 augljósum spjöldum en ekkert alvarlegt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.