Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
KA
KA
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
5° hiti og smá gola
3 - 2
FH
FH
Hrannar Björn Steingrímsson 13'1 - 01 - 129' Böðvar BöðvarssonGrétar Snær Gunnarsson (sjm) 63'2 - 12 - 283' Rodrigo Gomes Mateo (sjm)Bjarni Aðalsteinsson 84'3 - 2
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: KA skildi FH eftir á botninum

Hvað réði úrslitum?

FH-ingar voru steinsofandi eftir að hafa jafnað leikinn í 2-2 og því fór sem fór. Varnarleikur liðsins var glórulaus í sigurmarki Bjarna Aðalsteinssonar, sem að kláraði færi sitt glæsilega og fögnuður KA manna gríðarlegur.

Bestu leikmenn

1. Guðjón Ernir Hrafnkelsson (KA)

Var afar öflugur í hægri bakverðinum í dag. Upp og niður allan leikinn og öruggur í sínum aðgerðum.

2. Bjarni Aðalsteinsson (KA)

Skoraði sigurmark KA og var óþreytandi í hlaupum sínum í gegnu miðjuna og aftur fyrir vörn FH. Flottur í dag.

Atvikið

Á erfitt með að velja á milli sigurmarksins og fyrsta marks leiksins sem að Hrannar Björn skoraði. Gef Hrannari þetta þar sem að heil 6 ár eru liðin síðan að Húsvíkingurinn skoraði síðast deildarmark! Afar snyrtilegt mark hjá honum.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn eru komnir upp í 8. sætið, allavega tímabundið og eru þar með 4 stig. Þeir mæta ÍA á Skaganum í næsta leik. FH-ingar eru nú neðsta lið deildarinnar með 1 stig og eiga heimaleik gegn Val í næstu umferð.

Vondur dagur

Það er erfitt að henda þessu á einhvern. En Heimir Guðjónsson hugsar FH liði sínu sennilega þegjandi þörfina eftir þetta sigurmark Bjarna. Það er fátt meira niðurdrepandi en að vinna sig aftur inn í leik, einungis til þess að glutra því niður hálfri mínútu seinna.

Dómarinn - 8

Fannst Arnar góður í dag. Setti línu og fylgdi henni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.