Man Utd reynir við Mbeumo - Arsenal og City hafa áhuga á Rodrygo - Real Madrid horfir til leikmanna í ensku deildinni
Breiðablik
3
3
KR
Tobias Thomsen '53 1-0
Tobias Thomsen '60 2-0
2-1 Eiður Gauti Sæbjörnsson '67
2-2 Jóhannes Kristinn Bjarnason '71
2-3 Finnur Tómas Pálmason '81
Kristófer Ingi Kristinsson '92 3-3
05.05.2025  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Tíu stiga hiti og skýjað
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 1728
Maður leiksins: Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason ('88)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson ('81)
9. Óli Valur Ómarsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson ('76)
17. Valgeir Valgeirsson ('81)
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman
77. Tobias Thomsen
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Daniel Obbekjær
6. Arnór Gauti Jónsson ('81)
10. Kristinn Steindórsson ('81)
11. Aron Bjarnason ('76)
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('88)
24. Viktor Elmar Gautason
29. Gabríel Snær Hallsson
31. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Marinó Önundarson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Dagur Elís Gíslason

Gul spjöld:
Ásgeir Helgi Orrason ('13)
Höskuldur Gunnlaugsson ('45)
Valgeir Valgeirsson ('75)
Aron Bjarnason ('78)

Rauð spjöld:
@gummi_aa Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skýrslan: Gjörsamlega sturlaður fótboltaleikur
Hvað réði úrslitum?
Ég veit ekki í raun hvað skal segja. Þetta var fram og til baka eins og körfuboltaleikur. Einhver besti fótboltaleikur sem ég hef séð, ég held ég geti alveg sagt það. Þó staðan hafi verið 0-0 í hálfleik þá skemmti maður sér konunglega. KR-ingar tóku augnablikið gjörsamlega eftir að hafa lent 2-0 undir og voru við það að taka sigurinn, en Blikar náðu að pota inn jöfnunarmarkinu í lokin. KR-ingar er búnir að brenna skipin og núna verður ekki aftur snúið.
Bestu leikmenn
1. Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Mér fannst varnarmenn Breiðabliks vera í bölvuðu brasi með Eið Gauta allan leikinn og sérstaklega í seinni hálfleik. Hann skoraði fyrsta mark KR og átti risastóran þátt í endurkomunni.
2. Júlíus Mar Júlíusson (KR)
Þó KR hafi fengið á sig þrjú mörk, þá fannst mér Júlli frábær í leiknum og átti margar góðar tæklingar. Var með fyrirliðabandið og það var ekkert of stórt fyrir hann. Hrikalega spennandi leikmaður. Tobias Thomsen og Anton Logi voru bestu leikmenn Blika í dag.
Atvikið
Það er fyrsta markið sem KR gerir að mínu mati. Leikurinn hafði verið sturlaður fyrir það og hann var enn sturlaðari eftir það mark. Þetta var bara algjör veisla sem við fengum á Kópavogsvelli í dag.
Hvað þýða úrslitin?
KR er enn taplaust en hefur gert fjögur jafntefli í fyrstu fimm leikjunum. Blikar eru í þriðja sæti með jafnmörg stig og Vestri og Víkingur.
Vondur dagur
Óli Valur Ómarsson fannst mér geta gert betur. Hann hefur hraða á við fáa leikmenn í deildinni og það hefði átt að koma meira úr honum í þessum leik. Fann sig ekki alveg. Varnarmenn Blika skulfu á beinunum í stöðunni 2-1 og voru bara hræddir. Þeir voru litlir og litu ekki út eins og Íslandsmeistararnir sem þeir eru.
Dómarinn - 7
Mér fannst Jóhann Ingi dæma leikinn bara nokkuð vel. Lét hann fljóta mikið og sleppti nokkrum brotum hér og þar. Það var ekkert rosalega mikið um stór atvik í leiknum en hann kom sér vel frá þessu ásamt sínu teymi.
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
3. Júlíus Mar Júlíusson (f)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
16. Matthias Præst
17. Luke Rae
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
27. Róbert Elís Hlynsson ('61)
29. Aron Þórður Albertsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
6. Alexander Helgi Sigurðarson ('61)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Óliver Dagur Thorlacius
20. Atli Hrafn Andrason
24. Kristófer Orri Pétursson
28. Hjalti Sigurðsson
33. Skarphéðinn Gauti Ingimarsson
37. Auðunn Gunnarsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Theodór Elmar Bjarnason
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Jón Birgir Kristjánsson
Guðmundur Óskar Pálsson
Björn Valdimarsson
Lúðvík Júlíus Jónsson

Gul spjöld:
Finnur Tómas Pálmason ('25)
Júlíus Mar Júlíusson ('60)

Rauð spjöld: