SKÝRSLAN: Jafntefli niðurstaðan í sannkölluðum sumarleik
Hvað réði úrslitum?
Jafntefli var á endanum sanngjörn niðurstaða. Víkingur mikið betri í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta mörg færin sem gáfust. Heimamenn komu tvíefldir inn í seinni hálfleikinn og ná þar skora tvö góð mörk.
Bestu leikmenn
1. Örvar Eggertsson
Þvílíkur íþróttamaður. Hann gerði frábærlega þegar hann skoraði og reyndist erfiður allan leikinn.
2. Stígur Diljan Þórðarson
Það þarf að velja einn úr Víkingi. Stígur Diljan reyndist Stjörnumönnum gríðarlega erfiður viðureignar. Óheppinn að komast ekki á blað.
Atvikið
Atvik leiksins var þegar Örvar Eggerts reis upp eins og haförn og kom Stjörnumönnum í forystu. Frábærlega afgreitt og að einhverju leyti gegn gangi leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Með þessu jafntefli falla Víkingar niður í annað sætið tveimur stigum á eftir Breiðabliki. Stjarnan kemur sér hins vegar í fimmta sætið en fyrir leik sátu þeir í því áttunda.
Vondur dagur
Sveinn Gísli Þorkelsson lenti í brasi í fyrsta marki Stjörnunnar, þegar Guðmundur Baldvin tók af honum boltann og renndi honum til Emils Atlasonar, sem kláraði færið.
Dómarinn - 7
Mér fannst ÞÞÞ standa sig vel í kvöld og leyfði leiknum að fljóta. Spurning með hornspyrnudóminn í fyrsta markinu.



