SKÝRSLAN: Breiðablik einir á toppnum eftir úrslit kvöldsins
Hvað réði úrslitum?
Valur byrjar leikinn gríðarlega sterkt. Komast yfir snemma leiks og fengu tækifæri til að bæta við eftir það en Breiðablik tók má segja yfir restina af fyrri hálfleiknum og náðu inn sterku jöfnunrmarki. Breiðablik komu sterkir inn í eftir hlé og skoruðu annað markið. Valur reyndi og reyndi að jafna leikinn en það tókst ekki.
Bestu leikmenn
1. Ásgeir Helgi Orrason
Ásgeir Helgi take a bow - Fagnaði tvítugsafmæli sínu með stórleik og var frábær í vörn Breiðablik í kvöld. Patrick Pedersen sást ekki mikið í kvöld.
2. Andri Rafn Yeoman
Var virkilega flottur í bakverðinum hjá Blikum í dag og skoraði gríðarlega mikilvægt annað mark. Hjá Val voru Tryggvi Hrafn og Jónatan Ingi líflegastir hjá Val en það dró af þeim þegar líða tók á leikinn
Atvikið
Markið sem var dæmt af Val undir lokin. Rétt eða Rangt??? Adam Ægir lyfti boltanum inn á teiginn og boltinn datt fyrir fætur Hólmars sem setti boltann í netið en Arnar dæmdi brot inn á teignum í aðdragandanum.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik eru einir á toppi Bestu deildarinnar - Valur er í sjöunda sæti deildarinnar með 9.stig
Vondur dagur
Marius Lundemo fyrir að lenda í þessum meiðslum undir lok fyrri hálfleiks.
Dómarinn - 6
Arnar Þór og hans menn voru allt í lagi í kvöld. Átti Valur að fá víti undir lokin þegar Viktor Karl fékk boltann í hönd eftir skot frá Aroni Jó?




