Fotbolti.net
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
KA
KA
Mjólkurbikar karla
Greifavöllurinn
Bongóblíða!
2 - 4
Fram
Fram
Hallgrímur Mar Steingrímsson 8'1 - 01 - 121' Róbert Hauksson1 - 234' Róbert Hauksson1 - 343' Kyle Douglas Mc LaganBirgir Baldvinsson 53'2 - 32 - 458' Hans Viktor Guðmundsson (sjm)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Bikarvörn KA á enda

Hvað réði úrslitum?

Framarar stýrðu leiknum nánast allan tímann. Komust yfir sjokkið að klúðra víti snemma og að fá á sig algjört draumamark og sýndu bara afskaplega faglega frammistöðu. Að sama skapi voru KA menn í gjafastuði og varnarleikur liðsins hreint út sagt ömurlegur.

Bestu leikmenn

1. Viktor Freyr Sigurðsson (Fram)

Var ákaflega öruggur í öllum sínum aðgerðum og varði nokkrum sinnum glæsilega. Átti eina sérstaklega góða vörslu gegn Viðari Erni af örstuttu færi.

2. Már Ægisson (Fram)

Var mjög líflegur og var yfirleitt með í ráðum í öllum hættulegum sóknum Fram.

Atvikið

Hjólhestaspyrna Hallgríms. Hann hafði orð á því eftir leik að mögulega yrði hann ánægður með markið eftir viku, en fannst afar súrt að það skyldi ekkert telja þegar uppi er staðið.

Hvað þýða úrslitin?

KA menn verja ekki bikarmeistaratitilinn í ár. Þeir hafa átt frábæru gengi að fagna í þessari keppni undanfarin tvö ár, en allir góðir hlutir taka enda. Framarar fara verðskuldað áfram í 8-liða úrslitin og geta beðið spenntir eftir drættinum.

Vondur dagur

Vörn KA. Kómísk. Það er eiginlega ekkert hægt að segja annað.

Dómarinn - 7

Leyfði mikið og hélt þeirri línu að mestu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.