0 - 125' Gunnar Jónas HaukssonTobias Thomsen 52'1 - 11 - 255' Daði Berg Jónsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Leik lokið!
ÞETTA ER BÚIÐ!
Þvílíkur leikur sem við fengum hér á Kópavogsvelli. Vestramenn verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á morgun. Viðtöl og skýrsla innan skamms.
????Breiðablik 1 - Vestri 2 Mörkin og helstu atvik í leik liðanna 16-liða úrslitum bikarkeppni í fótbolta
Vestri ??Daði Berg Jónsson ??Gunnar Jónas Hauksson
Sleppur einn í gegn en einhvernveginn ver Brynjar Atli, ótrúlegt!
95. mín
Þvílík spenna
Blikar sækja og sækja.
94. mín
Breiðablik fær hornspyrnu, Vestramenn koma boltanum frá.
94. mín
Schubert liggur nú niðri og þarfnast aðhlynningar, Vestramenn nýta alla möguleika til að tefja. Stuðningsmanna Blika til lítillar hrifningar.
93. mín
STÓRBROTIN VARSLA!
Ásgeir Helgi með frábæran skalla af stuttu færi en Schubert ver í stöngina, þarna munaði engu!
91. mín
Gult spjald
Benjamin Schubert
Benjamin lengi að taka útspark og fær gult spjald.
90. mín
6 Mínútum bætt við!
Fáum við dramatík?
90. mín
Gult spjald
Gustav Kjeldsen
Gustav tekur niður Kristófer Inga í skyndisókn og fær verðskuldað gult spjald að launum.
87. mín
Gult spjald
Anton Kralj
Kralj lengi að koma sér út af vellinum vegna meiðsla og er því spjaldaður.
86. mín
Rangstöðumark Blika
Kristófer Ingi skorar en flaggaður rangstæður, við fyrstu sýn réttur dómur.
82. mín
Gult spjald
Diego Montiel
81. mín
InnKristófer Ingi Kristinsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
81. mín
Mikil orka í Vestramönnum, berjast eins og ljón. Maðurinn sem er þó mest á hreyfingu er Davíð Smári, þjálfari liðsins sem heldur sínum mönnum á tánum.
80. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu mitt á milli vítateigslínu og hliðarlínu en Vestramenn skalla frá.
77. mín
Breiðablik fær hornspyrnu en þeir ná ekki að gera sér mat úr henni.
74. mín
InnSilas Dylan Songani
ÚtDaði Berg Jónsson
Daði búinn að vera frábær í dag, Silas kemur inn með mikinn hraða.
72. mín
Gult spjald
Vladimir Tufegdzic
Fer í Valgeir í skallabaráttu og fær að líta gula spjaldið.
70. mín
InnÁsgeir Helgi Orrason
ÚtArnór Gauti Jónsson
70. mín
InnViktor Elmar Gautason
ÚtDaniel Obbekjær
69. mín
Blikar hættulegri þessa stundina
Óli Valur með ágætis tilraun úr teignum en Schubert ver vel.
66. mín
Gult spjald
Kristinn Steindórsson
64. mín
Gult spjald
Valgeir Valgeirsson
Valgeir dæmdur brotlegur og tryllist, lemur í jörðina með miklum tilburðum. Sigurður Hjörtur rífur því næst upp gula spjaldið til að kæta hann enn fremur.
59. mín
InnSergine Modou Fall
ÚtJeppe Pedersen
59. mín
InnVladimir Tufegdzic
ÚtArnór Borg Guðjohnsen
59. mín
InnDiego Montiel
ÚtThibang Sindile Theophilius
55. mín
ÞVÍLÍKT SVAR OG ENN BETRA FAGN!
Daði Berg Jónsson (stoðsending: Arnór Borg Guðjohnsen)
Arnór Borg æðir upp kantinn gefur frábæra fyrirgjöf á Daða Berg sem klárar vel af stuttu færi!
Liðið hendir svo í Cool Runnings fagnið, þar sem þeir fóru í röð líkt og í bobbsleða. Eða hvað eru þeir að róa? Jafnvel að þetta sé VÆB fagnið, róandi hér og þar.
52. mín
TOBIAS JAFNAR!
Tobias Thomsen (stoðsending: Aron Bjarnason )
Aron Bjarna sker boltann út í teiginn, Óli Valur lætur boltann fara og Tobias setur hann snyrtilega í netið.
50. mín
InnÓli Valur Ómarsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Gestirnir byrja með boltann.
45. mín
Hálfleiksviðtal við markaskorarann
Gunnar Jónas mætti í viðtal til RÚV rétt eftir hálfleiksflautið og hafði þetta að segja.
,,Þetta er góð staða í hálfleik, við verðum að halda áfram og gefa í. Við þurfum að vera í fókus og standa saman." ,,Davíð Smári öskrar allan helvítis leikinn og heldur okkur á tánum."
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Hálfleikur
Vestri leiðir í hálfleik!
+2
Stórskemmtilegur fyrri hálfleikur að baki. Blikar byrjuðu betur en Vestramenn hafa unnið sig vel inn í leikinn þrátt fyrir að vera minna með boltann.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við
43. mín
Daði Berg í frábæru færi
Daði sleppur í gegn og er einn gegn Brynjari Atla sem ver tilraun Daða vel. Vestramenn sjóðheitir þessa stundina.
42. mín
Vestramenn með rangstöðumark!
Vestramenn með vel útfærða skyndisókn sem endar með marki frá Fatai en Pedersen er flaggaður rangstæður í aðdraganda marksins. Tæpt en sýnist þetta nú vera réttur dómur.
38. mín
Skólaus Eiður Aron
Eiður Aron dottinn úr öðrum skónum eftir baráttu við Tobias Thomsen. Sigurður Hjörtur flautar brot og Eiður fær þá tíma til að komast í skóinn góða.
32. mín
Daði Berg með tilraun frá miðju sem fer langt framhjá.
28. mín
Ágúst Orri með frábæra takta og tekur þrumuskot af löngu færi en Schubert ver í horn.
25. mín
Óvænt var það!
Gunnar Jónas Hauksson (stoðsending: Fatai Adebowale Gbadamosi)
Bras í öftustu línu Blika, Vestramenn vinna boltann hátt uppi. Daði berg gefur fyrir á Fatai sem skallar á markið en Brynjar ver. Því næst kemur Gunnar Jónas og skorar af stuttu færi!
Blikar hafa stýrt leiknum hingað til en Vestri refsar!
23. mín
Gamla góða tuðið
Halldór Árnason
18. mín
Tobias Thomsen í færi!
Skot úr teignum sem fer rétt framhjá marki gestanna.
15. mín
SLÁIN!
Aron Bjarna sker inn á hægri og krullar boltanum í slánna. Þetta hefði verið svakalegt mark!
13. mín
Breiðablik fær hornspyrnu, boltinn dettur fyrir Kristinn Steindórsson sem tekur skot á lofti en boltinn hátt yfir mark gestanna.
8. mín
Uppstilling liðanna
Schubert (M) Gunnar - Hansen - Eiður - Kjeldsen - Kralj Fatai - Phete Daði Berg - Arnór Borg - Pedersen
Aron - Tobias - Ágúst Kristinn Steindórs Arnór - Viktor Anton - Viktor - Obbekjær - Valgeir Brynjar (M)
5. mín
Fyrsta marktilraunin
Thibang Phete með skemmtilega tilraun á lofti sem fer vel framhjá marki Breiðabliks.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Tobias Thomsen sparkar leiknum í gang. Breiðablik sækir í átt að Sporthúsinu.
Fyrir leik
Uppstilling liðanna
Schubert (M) Gunnar - Hansen - Eiður - Kjeldsen - Fatai - Phete - Pedersen Daði Berg - Arnór Borg
Aron - Tobias - Ágúst Kristinn Steindórs Arnór - Viktor Anton - Viktor - Obbekjær - Valgeir Brynjar
Fyrir leik
Styttist...
Liðin trítla til vallar, Hnetusmjörið í græjunum, allt eins og það á að vera.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Halldór Árnason gerir fimm breytingar frá 0-1 sigri gegn KA í síðustu umferð Bestu-deildarinnar. Höskuldur Gunnlaugsson þurfti þar að víkja af velli í hálfleik en hann er utan hóps í dag.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Daniel Obbekjær, Kristinn Steindórsson, Ágúst Orri Þorsteinsson, Valgeir Valgeirsson og sömuleiðis er markvarðarbreyting Brynjar Atli Bragason stígur inn í búrið í stað Antons Ara.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Davíð Smári, þjálfari Vestra, gerir fjórar breytingar á liði sínu eftir 2-0 sigur gegn Aftureldingu. Hann gerir sömuleiðis markvarðarbreytingu, inn kemur Benjamin Schubert í stað Guy Smit.
Þeir Thibang Phete, Gunnar Jónas Hauksson og Arnór Borg Guðjohnsen koma allir inn í byrjunarliðið. Verður þetta fyrsti byrjunarliðsleikur Arnórs fyrir Vestra en hann skoraði í sínum fyrsta leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Bikar Baddi spáir í spilin
Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar umbreyttist þessa vikuna í Bikar Badda og spáir í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins fyrir Fótbolti.net.
Breiðablik 1 - 1 Vestri - Vestri vinnur í vítaspyrnukeppni
Vestramenn vilja hefna fyrir tapið í deildinni, Blikar líklegast án Höskuldar er mínus og keppnisskapið og geðveikin í Davíð Smára er plús. Blikar halda mikið í boltann en skapa lítið af alvöru færum, Arnór Borg skorar annan leikinn í röð og svo klára Vestramenn þetta í vító.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Blikar völtuðu yfir Fjölni
????Breiðablik 5 - Fjölnir 0 ??1-0 Tobias Thomsen 24' ??2-0 Valgeir Valgeirsson 61' ??3-0 Viktor Elmar Gautason 77' ??4-0 Tumi Fannar Gunnarsson 87' ??5-0 Ágúst Orri Þorsteinsson 89' pic.twitter.com/DXJPJ7WXeZ
Í samtali við Fótbolta.net í dag sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, að ekki væri hægt að segja nákvæmlega til um meiðslin á þessum tímapunkti, það kæmi betur í ljós á næstu dögum, en það væri ólíklegt að hann myndi spila gegn Vestra
Tveir leikir eru á dagskrá í dag. KA fær Fram í heimsókn á Greifavellinum, leikurinn hefst 18:00. Síðasti leikurinn í 16-liða úrslitum er hér á Kópavogsvelli.
Miðvikudagur 14. maí ÍA 0-1 Afturelding KR 2-4 ÍBV Keflavík 5-2 Víkingur Ó. Valur 2-1 Þróttur R. Kári 2-2 Stjarnan (Áfram eftir vítaspyrnukeppni)
Fimmtudagur 15. maí 18:00 KA-Fram 19:30 Breiðablik-Vestri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Bikardagur!
Heilir og sælir lesendur góðir. Verið velkomin í lokaleik 16 liða úrslita Mjólkurbikarsins. Ríkjandi Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti sjóðheitum Vestramönnum.