Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
FH
FH
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Léttur úði og 8 gráður, toppaðstæður
2 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Björn Daníel Sverrisson 45'1 - 0Sigurður Bjartur Hallsson 67'2 - 0
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Íslandsmeistararnir hata Kaplakrika

Hvað réði úrslitum?

Mun meiri stemning og barátta í FH-ingum í dag. Hugmyndasnauðir Blikar gátu ekki opnað þéttu vörn FH. Breiðablik meira með boltann en sköpuðu voða lítið. Bæði mörk FH komu úr fyrirgjöfum þar sem ódekkaður FH-ingur skorar í bæði skiptin. En fyrst og fremst stemningin í FH liðinu í dag sem silgdi sigrinum heim. Pjúristar landsins slefa yfir FH, þar er ekki verið að flækja þetta. Þéttir, harðir, og reiða á fyrirgjafir, allt sem þarf í þessum blessaða bolta.

Bestu leikmenn

1. Kjartan Kári Halldórsson

Lagði upp tvö og var allt í öllu í sóknarleik FH í dag, frábær.

2. Sigurður Bjartur Hallsson

Væri til að sjá hlaupatölur frá Sigurði í dag, fannst hann vera alls staðar. Skoraði gott mark og reyndist Blikum erfiður.

Atvikið

Segir allt sem segja um stemninguna í FH liðinu þegar að Ahmad Faqa fagnaði markspyrnu í andlitið á Kristni Steindórssyni og fékk að líta gula spjaldið. Höskuldi var ekki skemmt og baunaði aðeins til baka á fálkann, Höskuldur fékk því einnig þann heiður að fara í bókina góðu.

Hvað þýða úrslitin?

Blikum mistókst að komast á toppinn og eru nú í þriðja sæti með 16 stig, einu stigi frá toppliði Víkings. FH heif sig upp úr fallsæti og eru nú í sjöunda sæti. Þvílíka byrjunin á þessari deild, allir vinna alla. Breiðablik hefur aðeins unnið einn leik á síðustu 6 árum í Kaplakrika.

Vondur dagur

Ég verð að setja þetta á besta leikmann Bestu-deildarinnar í fyrra. Í svona baráttuleikjum á Höskuldur Gunnlaugsson að stíga upp, sem mér fannst hann ekki gera. Einnig er hægt að setja þetta á alla sóknarþenkjandi menn Breiðabliks, sköpuðu lítið þrátt fyrir að vera mun meira með boltann.

Dómarinn - 9

Ánægður með kvartettinn í dag, nokkur brot sem hefði mátt sleppa en ekkert sem ætti að trufla svefninn í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.