Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetFannar Bjarki Pétursson
FHL
FHL
Besta-deild kvenna
Fjarðabyggðarhöllin
0 - 4
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 127' Katherine Amanda Cousins0 - 245' Unnur Dóra Bergsdóttir0 - 347' Unnur Dóra Bergsdóttir0 - 477' Sóley María Steinarsdóttir
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai

SKÝRSLAN: FHL ennþá stigalausar á botni deildarinnar

Hvað réði úrslitum?

Same old story, Gæði Þróttara var einfaldlega bara miklu meiri en hjá FHL konum sem eru í þvílíku brasi í þessari deild.

Bestu leikmenn

1. Kate Cousins

Mjög góð í þessum leik, Stjórnaði umferðinni á miðjunni eins og drottning auk þess að skora og leggja upp.

2. Unnur Dóra Bergsdóttir

Skorar 2 mörk í dag og var einnig mjög dugleg í pressunni og lét varnarmenn FHL heldur betur hafa fyrir sér. Flottur leikur hjá henni.

Atvikið

Markið hjá Kate á 27 mínútu sem braut ísinn og eftir það var þetta aldrei spurning.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur er á toppnum núna með 19 stig eftir 7 leiki, FHL stigalausar ennþá eftir 7 leiki.. Þetta gæti orðið mjööög erfitt og langt sumar fyrir FHL.

Vondur dagur

FHL liðið í heild sinni, Áttu aldrei séns í dag, Voru sundurspilaðar oft á tíðum og tölurnar hefðu geta orðið stærri. Þær fá sín færi í leikjum en það vantar bara gæðin til að klára það.

Dómarinn - 8

Ronnarong solid í þessum leik, Mjög fínn í dag, Ekkert út á hann að klaga.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.