Keflavík
0
1
HK

0-1
Valgerður Lilja Arnarsdóttir
'83
28.05.2025 - 19:15
HS Orku völlurinn
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Sólin skín á grænt grasið. Hiti um 11 gráður
Dómari: Ásgeir Sigurðsson
Maður leiksins: Anna Arnarsdóttir
HS Orku völlurinn
Lengjudeild kvenna
Aðstæður: Sólin skín á grænt grasið. Hiti um 11 gráður
Dómari: Ásgeir Sigurðsson
Maður leiksins: Anna Arnarsdóttir
Byrjunarlið:
1. Anna Arnarsdóttir (m)
7. Emma Kelsey Starr
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir
('64)

9. Marín Rún Guðmundsdóttir
('84)

11. Kristrún Ýr Holm (f)

15. Olivia Madeline Simmons
('71)

18. Hilda Rún Hafsteinsdóttir
('84)

20. Brynja Arnarsdóttir

22. Salóme Kristín Róbertsdóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir
34. Ariela Lewis
- Meðalaldur 23 ár
Varamenn:
31. Vala Björk Jónsdóttir (m)
2. Thelma Sif Róbertsdóttir
6. Kamilla Huld Jónsdóttir
('84)

10. Mia Angelique Ramirez
('64)

21. María Rán Ágústsdóttir
('84)

30. Ragnheiður Júlía Rafnsdóttir
77. Elfa Karen Magnúsdóttir
('71)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir (Þ)
Luka Jagacic
Aron Elís Árnason
Gul spjöld:
Brynja Arnarsdóttir ('41)
Kristrún Ýr Holm ('74)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Flautað af hér í Keflavík og það eru gestirnir úr HK sem taka með sér stigin þrjú.
Viðtöl og skýrsla væntanleg.
83. mín
MARK!

Valgerður Lilja Arnarsdóttir (HK)
HK tekur hér forystu!
Boltinn inn á teig Keflavíkur þar sem Valgerður er sterkust og kemur boltanum í netið.
Boltinn inn á teig Keflavíkur þar sem Valgerður er sterkust og kemur boltanum í netið.
82. mín
Leikurinn stopp
Verið að huga að leikmanni HK sem liggur á vellinum. Sjúkraþjálfarar beggja liða á vettvangi að huga að henni er hún er borin af velli.
Verið að huga að leikmanni HK sem liggur á vellinum. Sjúkraþjálfarar beggja liða á vettvangi að huga að henni er hún er borin af velli.
81. mín
Ísabel Rós ekki lengi að koma sér inn í leikinn. Leikur inn völlinn frá hægri og reynir að krulla boltann í hornið fjær en boltinn rétt yfir markið.
78. mín
Anna er í ham í marki Keflavíkur
Loma í dauðafæri í miðjum teig Keflavíkur. Nær föstu skoti en enn og aftur ver Anna glæsilega.
Loma í dauðafæri í miðjum teig Keflavíkur. Nær föstu skoti en enn og aftur ver Anna glæsilega.
74. mín
Gult spjald: Kristrún Ýr Holm (Keflavík)

HK fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað.
73. mín
Hvernig var þessi ekki inni?
Keflvíkingar tapa boltanum við eigin vítateig fyrir fætur Emilíu Lindar. Hún leikur á Önnu sem er mætt vel út úr markinu og setur boltann fyrir markið. Loma mætir á endann á sendingunni fyrir tómu marki innan við hálfum metra frá marklínunni en setur boltann í slánna og út!
72. mín
Aníta Lind reynir skot af löngu færi. Hittir markið en Kaylie ekki í nokkrum vandræðum með að handsama boltann.
63. mín
Keflavík sækir hratt
Ariela finnur Emmu í teignum eftir snarpa sókn. Emma í fínu færi en er örlítið of lengi að fóta sig og varnarmaður kemst á milli.
Ariela finnur Emmu í teignum eftir snarpa sókn. Emma í fínu færi en er örlítið of lengi að fóta sig og varnarmaður kemst á milli.
59. mín
Anna með stórkostlega vörslu!
Vond sending úr vörn Keflavíkur beint á Lomu. Hún þræðir Elísu í gegn sem aftur er ein gegn Önnu hægra megin í teignum. Hún reynir að setja boltann vel út í fjærhornið en Anna með frábæra vörslu og slær boltann frá.

55. mín
Olivia Simmons með skot af talsverðu færi fyrir Keflavík. Kaylie ekki í vandræðum með það.
52. mín
Elísa Birta í dauðafæri fyrir HK!
Fær boltann inn á teignum hægra megin ein gegn Önnu. Hefur nægan tíma til að leggja boltann fyrir sig og horfa á markið en setur boltann framhjá.
Átti að gera miklu betur þarna.
Fær boltann inn á teignum hægra megin ein gegn Önnu. Hefur nægan tíma til að leggja boltann fyrir sig og horfa á markið en setur boltann framhjá.
Átti að gera miklu betur þarna.
50. mín
Fer nokkuð rólega af stað þessi síðari hálfleikur. Gestirnir aðeins með yfirhöndina og skarpari í sínum leik.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
Bæði lið óbreytt að mér sýnist og heimakonur sparka okkur af sstað á ný.
Bæði lið óbreytt að mér sýnist og heimakonur sparka okkur af sstað á ný.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks hér í Keflavík
Kaflaskipt mætti segja, bæði lið átt sín áhlaup og fengið álitleg færi sem ekki hafa nýst.
Tökum okkur smá pásu og snúum aftur að vörmu spori.
Kaflaskipt mætti segja, bæði lið átt sín áhlaup og fengið álitleg færi sem ekki hafa nýst.
Tökum okkur smá pásu og snúum aftur að vörmu spori.
41. mín
Gult spjald: Brynja Arnarsdóttir (Keflavík)

Eins augljóst peysutog og það verður. Missir andstæðing framhjá sér og reynir að toga hana niður.
38. mín
Aníta Lind með aukaspyrnu af um 22-25 metrum en neglir boltanum talsvert framhjá markinu.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Illa farið með góða stöðu hjá HK
Loma fær boltann í teig Keflavíkur með bakið að marki. Sendingarmöguleikar til beggja átta en hún ákveður að reyna að snúa sjálf og skjóta. Með varnarmann í bakinu verður ekkert úr og Keflavík hreinsar.

27. mín
Boltinn inn á teiginn úr aukaspyrnunni en gestirnir skalla í horn.
Lið Keflavíkur dæmt brotlegt eftir hornið.
Lið Keflavíkur dæmt brotlegt eftir hornið.
26. mín
Kristrún sækir aukaspyrnu fyrir Keflavík á ágætum stað eftir góða sóknarlotu Keflavíkur
19. mín
Dauðafæri HK
Elísa Birta stingur Hildu Rún af í skyndisókn og kemst ein gegn Önnu í markinu. Anna mætir vel út á móti og nær með góðu viðbragði að verja frá Elísu úr dauðafæri.
Elísa Birta stingur Hildu Rún af í skyndisókn og kemst ein gegn Önnu í markinu. Anna mætir vel út á móti og nær með góðu viðbragði að verja frá Elísu úr dauðafæri.
18. mín
Keflavík sækir hornspyrnu.
Hættulegur bolti frá Arielu frá vinstri yfir á fjærsvæðið en gestirnir skalla í annað horn.
Hættulegur bolti frá Arielu frá vinstri yfir á fjærsvæðið en gestirnir skalla í annað horn.
16. mín
HK í fínum séns.
Emilía Lind fer illa með Salóme Kristínu á vængnum og stingur hana af. Nær góðum bolta inn á teiginn frá endalínu en Anna nær að trufla Lomu nægjanlega til þess að hún nái ekki valdi á boltanum í markteignum og Keflavík hreinsar.
14. mín
Aftur Emma Starr í færi
Keflavík sækir hratt. Boltinn út til vinstri á Emmu sem keyrir inn á teignn og reynir að snúa boltann í hornið fjær en setur boltann framhjá úr fínu færi.
Keflavík sækir hratt. Boltinn út til vinstri á Emmu sem keyrir inn á teignn og reynir að snúa boltann í hornið fjær en setur boltann framhjá úr fínu færi.
12. mín
Heimakonur stálheppnar
Boltanum lyft inn á teig Keflavíkur fyrir aftan varnarlínuna. Anna í markinu mætt út og rennir sér á boltann en heldur honum ekki í baráttu við Loma McNesse. Loma setur boltann í netið en Ásgeir dæmir brot

9. mín
Keflavík öflugra þessar fyrstu mínútur.
Marin Rún í fínu skotfæri á vítateigslínu en boltinn rétt framhjá markinu.
Marin Rún í fínu skotfæri á vítateigslínu en boltinn rétt framhjá markinu.
6. mín
Emma Starr í hörkufæri
Góð fyrirgjöf frá Hildu Rún frá hægri dettur niður á kollinn á Emmu sem skallar framhjá úr góðu færi.
Góð fyrirgjöf frá Hildu Rún frá hægri dettur niður á kollinn á Emmu sem skallar framhjá úr góðu færi.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað hér í Keflavík. Það eru gestirnir sem hefja hér leik.
Fyrir leik
Dómarinn
Ásgeir Sigurðsson verður með flautuna á HS Orkuvellinum í kvöld.
Honum til aðstoðar eru þeir Ásmundur Hrafn Magnússon og Patryk Emanuel Jurczak.
Honum til aðstoðar eru þeir Ásmundur Hrafn Magnússon og Patryk Emanuel Jurczak.
Fyrir leik
Keflavík
Það má alveg segja að Keflavík hafi komið hikstandi inn í mótið. Liðið sem spáð var toppsæti deildarinnar situr í dag í sjöunda sæti deildarinnar með 5 stig og hefur ekki verið sannfærandi það sem af er móti.
Mikið á þó eftir að gerast og finni lið Keflavíkur taktinn gætu þær orðið illviðráðanlegar og þá sérstaklega á heimavelli.

Gestirnir úr efri byggðum Kópavogs hafa farið vel af stað í fyrstu umferðum mótsins. þrír sigrar í fjórum leikjum og níu stig er uppskeran og situr lið HK í öðru sæti deildarinnar fyrir leiki kvöldsins.
Liðið getur jafnað topplið ÍBV að stigum með sigri í kvöld en ólíklegt er að toppsætið verði í höndum HK þó þar sem markatala ÍBV er heilum 18 mörkum meira í plús.

1. Kaylie Erin Bierman (m)
5. Valgerður Lilja Arnarsdóttir

7. Emilía Lind Atladóttir
('84)

9. Elísa Birta Káradóttir
10. Isabella Eva Aradóttir (f)
16. Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir
('79)

19. Ragnhildur Sóley Jónasdóttir

20. Loma McNeese
('89)

23. Rakel Eva Bjarnadóttir
32. Natalie Sarah Wilson
('79)

77. Hildur Lilja Ágústsdóttir
- Meðalaldur 22 ár
Varamenn:
25. Guðbjörg Guðmundsdóttir (m)
14. Ísabel Rós Ragnarsdóttir
('79)

17. Hugrún Helgadóttir
22. Kristjana Ása Þórðardóttir
('79)

24. María Lena Ásgeirsdóttir
('89)

26. Melkorka Mirra Aradóttir
37. Sigrún Ísfold Valsdóttir
('84)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Pétur Rögnvaldsson (Þ)
Birkir Örn Arnarsson
Emma Sól Aradóttir
Sara Mjöll Jóhannsdóttir
Anja Ísis Brown
Karlotta Björk Andradóttir
Andri Hjörvar Albertsson
Gul spjöld:
Natalie Sarah Wilson ('38)
Ragnhildur Sóley Jónasdóttir ('56)
Rauð spjöld: