Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
Leiknir R.
0
0
Grindavík
30.05.2025  -  19:15
Domusnovavöllurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Sæll 'friday night' undir Æsufellinu Sævar Atli Magnússon, nýr leikmaður Brann í Noregi, er spámaður umferðarinnar. Sævar Atli Magnússon þekkir vel til Leiknis en hann lék með liðinu áður en hann fór út í atvinnumennsku.

Þetta hafði Sævar Atli að segja um leik kvöldsins í Breiðholti.

Leiknir 4 - 1 Grindavík (19:15 í kvöld)
Sæll 'friday night' undir Æsufellinu. Daði Bærings setur hann en vonandi bara í rétt mark. Duracell Aron Einars klukkar 15 km og Sindri brýtur 6 sinnum af sér því hann er 14% fita en hann skorar líka með gullfallega skallanum sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar Brynjar Þór Elvarsson sér um að allt fari vel fram í Breiðholtinu í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Ronnarong Wongmahadthai og Rögnvaldur Þ Höskuldsson.

Halldór Breiðfjörð Jóhansson er svo eftirlitsmaður KSÍ.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Grindavík Grindavík skortir ekki markaskorun en liðið hefur skorað flest mörk í deildinni í sumar en liðið er á sama tíma að fá alltof mörg mörk á sig. Liðið hefur skorað 11 mörk í sumar og fengið á sig 11.

Grindavík situr fyrir leik dagsins í 9.sæti deildarinnar og er liðið með fjögur stig. Einn sigur, eitt jafntefli og tvö töp. Grindaavík fékk Þórsara í heimsókn í síðustu umferð og töpuðu 4-3.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Leiknir þarf að fara vinna fótboltaleiki Leiknir Reykjavík hefur byrjað tímabilið hræðilega og er liðið án sigurs á botni deildarinnar en liðið er aðeins búið að ná í eitt stig úr fyrstu fjórum umferðunum.

Leiknir fékk alvöru skell þegar liðið heimsótti Reykjanesbæinn í síðustu umferð en liðið tapaði 6-0 gegn Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Daði Bærings er fyrirliði Leiknis og mikill leiðtogi í liðinu.
Fyrir leik
Friday night football under the Æsufell Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur á Domusnovavöllinn í efra Breiðaholti þar sem Leiknir Reykjavík mætir Grindavík í Lengjudeild karla.

Við flautum til leiks klukkan 19:15

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Leikir dagsins í Lengjudeildinni.

18:00 Þór-Fylkir (Boginn)
18:30 Fjölnir-ÍR (Fjölnisvöllur)
19:15 Leiknir R.-Grindavík (Domusnovavöllurinn)
19:15 Keflavík-HK (HS Orku völlurinn)
19:15 Selfoss-Njarðvík (JÁVERK-völlurinn)
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: