Al-Nassr vill fá Luis Díaz - Bayern ekki búið að gefast upp á Wirtz - Chelsea gæti keypt Sancho
Noregur
0
0
Ísland
30.05.2025  -  18:00
Lerkendal Stadion - A
Landslið kvenna - Þjóðadeildin
Dómari: Olatz Rivera Olmedo (Spánn)
Byrjunarlið:

Varamenn:
1. Cecilie Fiskerstrand (m)
12. Selma Panengstuen (m)
23. Aurora Mikalsen (m)
2. Marit B. Lund
3. Emilie Woldvik
4. Tuva Hansen
5. Guro Bergsvand
6. Marthine Østenstad
7. Ingrid Engen
8. Vilde Bøe Risa
9. Karina Sævik
10. Caroline Graham Hansen
11. Guro Reiten
13. Thea Bjelde
14. Ade Hegerberg
15. Justine Kielland
16. Mathilde Harviken
17. Celin Bizet Ildhusøy
18. Frida Maanum
19. Elisabeth Terland
20. Signe Gaupset
21. Lisa Naalsund
22. Synne Jensen

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komdu þér í leikdagsgírinn! Þetta er lagið til þess.

Fyrir leik
Undirbúningur hafinn á vellinum Það er rúmir sjö klukkutímar í leik en það er undirbúningur hafinn á vellinum, það er verið að slá hann og svo er búið að kveikja á skjánum. Gott útsýni út um hótelgluggann hjá mér.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Áslaug Munda ekki með Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var að útskrifast frá Harvard háskólanum í Bandaríkjunum og er því ekki með í dag. Áslaug Munda verður 24 ára í næstu viku og á að baki 20 A-landsleiki. Hún hefur verið mikið frá síðustu ár vegna höfuðmeiðsla. Hún mun koma til móts við landsliðið á Íslandi og verður til taks fyrir leikinn gegn Frakklandi næsta þriðjudag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Staðan í riðlinum 1. Frakkland, 12 stig
2. Noregur, 4 stig
3. Ísland, 3 stig
4. Sviss, 2 stig

Ef við endum í neðsta sæti, þá föllum við beint niður í B-deild en ef við endum í þriðja sæti þá förum við í umspil um að halda sæti okkar. Ef við endum í öðru sæti, þá höldum við sæti okkar í A-deild.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fanndís snýr aftur eftir fimm ára fjarveru Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, hefur þurft að gera tvær breytingar á hópnum eftir að hann valdi upprunalega hópinn. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir og Amanda Andradóttir meiddust en inn í hópinn komu Arna Eiríksdóttir og Fanndís Friðriksdóttir.

Fanndís spilaði síðast með landsliðinu árið 2020 en hún gæti spilað sinn 110. landsleik í þessu verkefni. Hún hefur verið að spila vel með Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Noregur endurheimtir einn besta leikmann í heimi Noregur hefur endurheimt sína stærstu stjörnu fyrir leikinn gegn Íslandi í dag. Caroline Graham Hansen, leikmaður Barcelona, snýr aftur í hópinn eftir meiðsli.

Við þurfum að hafa góðar gætur á henni.
Fyrir leik
Völlurinn þar sem Óli Jó gerði penngamerki upp í stúku Útsýnið á efri hæðum Scandic Lerkendal hótelsins er skemmtilegt. Hér getur undirritaður bara horft beint út á hinn sögufræga Lerkendal leikvang sem hýst hefur marga stóra fótboltaleiki í gegnum tíðina og á morgun spilar íslenska kvennalandsliðið hér við Noreg í Þjóðadeildinni.

En fyrsti leikurinn sem kemur upp í hugann þegar maður horfir hér úta, það er án efa leikur Rosenborg og Vals í forkeppni Meistaradeildarinnar þann 18. júlí 2018.
Fyrir leik
Staðan á stelpunum okkar Hvernig er staðan á leikmannahópnum fyrir þetta áhugaverða verkefni? Hægt er að rúlla yfir það með því að skoða þessa frétt.
Fyrir leik
Sveindís fór yfir ákvörðun sína Landsliðskonan vinsæla Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum. Þetta voru skipti sem komu nokkuð mikið á óvart.

Hún hefur síðustu ár verið á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en hefur nú nýjan kafla í borg englanna í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er áhugaverð.

Sveindís settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Þrándheimi í Noregi í dag og ræddi þar betur um þessi áhugaverðu skipti. Sveindís gerði einnig upp tímann hjá Wolfsburg og ræddi auðvitað um landsliðið líka.
Fyrir leik
Af hverju skiptir þessi leikur máli? Það spyrja sig líklega einhverjir að því. Í stuttu máli þá skiptir það máli að ná í góð úrslit því Þjóðadeildin tengist inn í undankeppni HM. Ef við höldum okkar í A-deild þá verða möguleikarnir okkar meiri á að komast á HM í Brasilíu. Ég skrifaði frétt um þetta í gær sem má skoða með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.

Fyrir leik
Búnar að dvelja í Þrándheimi síðustu daga Stelpurnar komu saman í Þrándheimi síðasta mánudag og hafa verið að æfa hér í borginni síðustu daga. Í gær æfðu þær á keppnisvellinum, Lerkendal, sem er heimavöllur Rosenborg.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrir leik
Góðan daginn! Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá Lerkendal í Þrándheimi þar sem Ísland spilar við Noreg í Þjóðadeild kvenna. Hér verður fylgst með öllu sem gerist í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:

Varamenn:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Berglind Rós Ágústsdóttir
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir
5. Fanndís Friðriksdóttir
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
7. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
9. Sædís Rún Heiðarsdóttir
10. Dagný Brynjarsdóttir
11. Natasha Anasi
15. Katla Tryggvadóttir
16. Hildur Antonsdóttir
17. Agla María Albertsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
20. Guðný Árnadóttir
21. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
22. Arna Eiríksdóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Þorsteinn Halldórsson (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: