Besta-deild karla
Breiðablik

19:15
0
0
0

Besta-deild karla
ÍA

5'
0
0
0

Besta-deild karla
FH

6'
0
0
0

Besta-deild karla
KA

47'
0
1
1

Besta-deild karla
KR

LL
2
1
1


Noregur
1
1
Ísland

0-1
Sveindís Jane Jónsdóttir
'15
1-1
Glódís Perla Viggósdóttir
'83
, sjálfsmark
30.05.2025 - 18:00
Lerkendal Stadion - A
Þjóðadeild kvenna
Aðstæður: Rigning og mjög kalt
Dómari: Olatz Rivera Olmedo (Spánn)
Áhorfendur: 7158
Maður leiksins: Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Lerkendal Stadion - A
Þjóðadeild kvenna
Aðstæður: Rigning og mjög kalt
Dómari: Olatz Rivera Olmedo (Spánn)
Áhorfendur: 7158
Maður leiksins: Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Byrjunarlið:
1. Cecilie Fiskerstrand (m)
4. Tuva Hansen
('76)

5. Guro Bergsvand
('36)

7. Ingrid Engen
8. Vilde Bøe Risa
10. Caroline Graham Hansen
('76)


13. Thea Bjelde
('89)

14. Ade Hegerberg
16. Mathilde Harviken
17. Celin Bizet Ildhusøy
('76)

18. Frida Maanum
Varamenn:
12. Selma Panengstuen (m)
23. Aurora Mikalsen (m)
2. Marit B. Lund
3. Emilie Woldvik
('89)

6. Marthine Østenstad
('36)

9. Karina Sævik
11. Guro Reiten
('76)

15. Justine Kielland
19. Elisabeth Terland
('76)

20. Signe Gaupset
('76)

21. Lisa Naalsund
22. Synne Jensen
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Caroline Graham Hansen ('42)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leikurinn endar hér 1-1 á Lerkendal Stadion
Verulega svekkjandi að missa þetta niður í jafntefli á síðustu 10 mínútum leiksins
Verulega svekkjandi að missa þetta niður í jafntefli á síðustu 10 mínútum leiksins
92. mín
Risa tekur hornspyrnuna en Cecilía vel á verði og handsamar þennan. Terland brýtur síðan á henni og aukspyrna dæmd
91. mín
Aukaspyrna á álitlegum stað
Norðmenn spyrna inn í fer af Dagnýju og útaf, hornspyrna dæmd
83. mín
SJÁLFSMARK!

Glódís Perla Viggósdóttir (Ísland)
úfffff
Gaupset með frábæra sendingu upp völlinn, Terland sendir hann svo fyrir þar sem Hegerberg lúrir ein inn í, sendingin fer hins vegar í Glódísi Perlu og inn
75. mín
Sveindís Jane nnálægt því að bæta við, með hælspyrnu eftir góða fyrirgjöf frá Öglu Maríu
75. mín
Norðmenn að komast í annað gott færi hér í röð, en varnarmenn og Cecelía vel á verði og ná honum
74. mín
Þarna komust norðmenn í gott færi, fyrirgjöf sem Cecilía ver en missir frá sér en nær svo haldi á honum aftur
71. mín
Færiiii
Karólína Lea tekur spyrnuna inn í, boltinn út í teig og Agla María með gott skot en Cecilie í markinu ver vel
66. mín

Inn:Guðný Árnadóttir (Ísland)
Út:Sandra María Jessen (Ísland)
Þreföld skipting hjá íslenska liðinu
64. mín
Natasha liggur hér aftur og fær aðhlynningu, spurning hvort við séum að fara sjá fyrstu skiptingu íslenska liðsins?
63. mín
Norðmenn biðja hér um hendi, en ekkert dæmt, sóknin heldur áfram en endar svo útaf
54. mín
Darraðadans í teig Norðmanna, Hlín og Karólína Lea með boltann, endar útaf og Ísland fær horn. Ekkert verður þó úr því.
51. mín
Graham Hansen fær fyrirgjöf og skallar að marki en Cecilía örugg í markinu og grípur hann.
48. mín
Fæææææri
Graham Hansen í dauðafæri en framhjá fer boltinn, eiginlega erfiðar að setja hann framhjá en á markið, stelpurnar ljónheppnar þarna.
45. mín
Hálfleikur
Ingibjörg skallar frá og það er flautað til hálfleiks um leið. Flottur hálfleikur hjá íslenska liðinu en Noregur komst aðeins of mikið inn í leikinn fyrir minn smekk undir lok hálfleiks.
Komum aftur eftir korter! Áfram Ísland!
Komum aftur eftir korter! Áfram Ísland!

45. mín
Færin verða ekki mikið betra en þetta sem Karólína fékk áðan. En áfram gakk! Norðmenn bara að reyna að gefa okkur mark en við þiggjum ekki gjöfina.
45. mín
DAUÐAFÆRI!
Noegur tapar boltanum í öftustu línu og Karólína er í algjöru dauðafæri en Fiskerstrand ver. Grátlegt að ná ekki að skora þarna. Maður lifanndi!

45. mín
Sandra María tekur boltann á lofti og á skot lengst yfir. Aðeins meiri yfirvegun, takk fyrir.
44. mín
ÚFFFFFFFF
Caroline Graham Hansen með hörkuskot sem Cecilía ver. Þær ná skotinu en það fer yfir markið. Voru hættulega nálægt því að jafna þarna.
43. mín
Við þurfum að ná aðeins meiri ró á boltann núna. Heimakonur að auka pressuna. Graham Hansen núna með fína skottilraun sem fer fram hjá.
42. mín
Gult spjald: Caroline Graham Hansen (Noregur)

Stoppar hættulega sókn Noregs með pirringsbroti. Á þetta gula spjal fyllilega skilið. Ýtti bara Alexöndru.

39. mín
Graham Hansen komin í fína stöðu en Glódís gerir vel í að trufla hana og sendingin hennar ekki nógu góð. Allur sóknarleikur norska liðsins fer í gegnum Graham Hansen.
38. mín
Heimakonur með fyrirgjöf sem Ingibjörg skallar í burtu og svo grípur Cecilía. Stuttu áður fékk Sandra María fínt færi en skotið ekki alveg nógu gott.
36. mín

Inn:Marthine Østenstad (Noregur)
Út:Guro Bergsvand (Noregur)
Jæja, kannski var hún meidd.
34. mín
Hvernig er ekki búið að taka hátalarann af þessu liði þarna í stúkunni? Ég hef aldrei séð svona á fótboltaleik.
34. mín
Langt innkast frá Sveindísi og Glódís inn á teignum. Virkaði ekki í þetta skiptið.
31. mín
Noregur þarf leikhlé
Leikmaður liðsins leggst í grasið og allar aðrar hlaupa til fundar með þjálfaranum, Gemmu Grainger. Íslenska liðið spilað frábærlega og eru óheppnar að vera ekki tveimur mörkum yfir.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
HILDUR!
Frábært spil hjá íslenska liðinu! Eftir að hafa spilað sig út úr pressunni þá fær Hlín boltann úti hægra megin og keyrir upp. Hún köttar inn og leggur hann á Hildi sem á skot rétt fram hjá markinu. Ég hélt að þessi væri á leið inn!
Hildur kallaði hátt á Hlín og fékk boltann í góðri stöðu. Vel gert!
Hildur kallaði hátt á Hlín og fékk boltann í góðri stöðu. Vel gert!
29. mín
FÆRI!
Hlín með stórhættulega fyrirgjöf en Sandra María hittir ekki boltann. Þarna hefðum við hæglega getað tvöfaldað forystuna!
25. mín
CECILÍA!
Þær norsku við það að komast í dauðafæri og ég hélt persónulega að þær væru að fara að jafna en Cecilía notar sína löngu faðma til að ná boltanum.
Ansi auðvelt hvernig þær spiluðu sig í gegnum okkur í þessu tilfelli.
Ansi auðvelt hvernig þær spiluðu sig í gegnum okkur í þessu tilfelli.

24. mín
Aftur kveikja þau á hátalaranum
Framhaldsskólakrakkarnir í rauðu búningunum hafa aftur kveikt á hátalara sínum og eru núna að spila einhverja teknó tónlist. Er enginn að vinna hérna?
23. mín
Klobbi!
Sveindís hefnir sín og klobbar núna varnarmann Norðmanna. Á svo fyrirgjöf sem Fiskerstrand kemst í. Sveindís er í stuði!
21. mín
Alexandra með ömurlega sendingu og Frida Maanum er komin í góða stöðu. Reynir skot sem leit ágætlega út fyrst en það fer yfir markið.
20. mín
Karólína reynir hér skot fyrir utan teig en það fer í varnarmann. Það var alvöru kraftur í þessu skoti.
18. mín
Sveindís kom Íslandi yfir!
Maður hefur oft hugsað að það vanti upp á hjá Sveindísi á síðasta þriðjungi en þetta var algjörlega í hæsta klassa.

17. mín
Það eru nokkrir íslenskir stuðningsmenn í stúkunni sem fögnuðu þessu marki mjög vel.
16. mín
Voru byrjuð að spila Sweet Caroline í stúkunni áður en Sveindís skoraði. Það er núna búið að slökkva á því. Jess!
15. mín
MARK!

Sveindís Jane Jónsdóttir (Ísland)
Stoðsending: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Stoðsending: Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
SLÖKKVIÐI Í TÓNLISTINNI!
Ísland hefur tekið forystuna.
Sveindís Jane fær boltann frá Karólínu úti vinstra megin og er ákveðin, keyrir á vörnina og skorar með hægri fæti. Þetta var laglegt!
Þetta var fyrsta tækifæri Íslands og við nýttum það.
Sveindís Jane fær boltann frá Karólínu úti vinstra megin og er ákveðin, keyrir á vörnina og skorar með hægri fæti. Þetta var laglegt!
Þetta var fyrsta tækifæri Íslands og við nýttum það.
Sveindís Jane kom Íslandi yfir gegn Noregi! Karólína með alvöru sendingu inn fyrir, Sveindís keyrði á Norðmenn og skotið fór í stöngina og inn. Þarna erum við! ???????? pic.twitter.com/xxmjwwzVYv
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) May 30, 2025
11. mín
Þetta er ógeðslega skrítið. Ætlar enginn að taka hátalarann af þessu liði í stúkunni? Eru núna að spila 'Walking on sunshine'. Það er eins og þau séu í dimmiteringu.
Líður pínu eins og ég sé á handboltaleik.
Líður pínu eins og ég sé á handboltaleik.

8. mín
Það eru einhverjir norskir jólasveinir í stúkunni með hátalara. Mjög furðulegt. Eru bara að spila tónlist á meðan leikurinn er í gangi.
8. mín
Þær liggja tvær eftir hjá Noregi, þar á meðal Fiskerstand í markinu, en þær standa svo báðar upp.
7. mín
Ísland komið í fína stöðu hinum megin! En Sandra María sendir boltann á Hlín sem var svona tveimur metrum fyrir innan. Þarna átti Sandra að lesa boltann betur.
6. mín
Þær norsku með enn eina fyrirgjöfina og Natasha skallar boltann... í átt að marki Ísland. Fer sem betur fer yfir. Þetta var klaufalegt. Noregur fær hornspyrnu.
6. mín
Dómari!!
Sveindís með fína sendingu upp í hornið og Sandra María er einfaldlega sterkari, en hún er dæmd brotleg. Þarna verð ég bara að óska eftir meiri gæðum frá dómara leiksins, sem kemur frá Spáni.
5. mín
Frida Maanum komin í ágætis stöðu og lætur vaða en skotið er hörmulegt og aldrei líklegt.
4. mín
Það eru einhverjir norskir krakkar búnir að raula sama lagið stanslaust í fjórar mínútur. Mega endilega fara að lækka í sér.
3. mín
Graham Hansen fær boltann fyrir og á hættulega fyrirgjöf sem fer þó í gegnum allan pakkann. Svo kemur annar bolti inn á teig sem Glódís skallar í burtu.
1. mín
Sandra María er að spila fremst sem er áhugavert. Eins og við höfum farið vel yfir í Uppbótartímanum, nýju hlaðvarpi um kvennaboltann, þá líður henni nú yfirleitt best á kantinum. Verður örugglega eitthvað flæði í þessu.

1. mín
Leikur hafinn
Þá rúllum við af stað! Ísland spilar í gráum varabúningum. Nýi EM-búningurinn hjá Íslandi verður ekki notaður fyrr en á EM, en á meðan er Noregur að frumsýna EM-búninginn sinn í dag.
Fyrir leik
Liðin komin út og þjóðsöngvar að baki. Þjóðadeildarstefið er alltaf gæshúð. Við förum að byrja þetta. Áfram Ísland!
Fyrir leik
Það er svolítið furðulegt að það er bara enginn mín megin í stúkunni. Allir áhorfendurnir eru hinum megin og það er afar fámennt í fjölmiðlastúkunni.
Fyrir leik
Félagslið leikmanna Noregs
Þetta eru virkilega öflugir leikmenn sem spila í sterkum liðum.
1. Cecilie Fiskerstrand (Fiorentina)
4. Tuva Hansen (Bayern München)
5. Guro Bergsvand (Brighton)
7. Ingrid Engen (Barcelona)
8. Vilde Bøe Risa (Atletico Madrid)
10. Caroline Graham Hansen (Barcelona)
13. Thea Bjelde (Vålerenga)
14. Ade Hegerberg (Lyon)
16. Mathilde Harviken (Juventus)
17. Celin Bizet Ildhusøy (Manchester United)
18. Frida Maanum (Arsenal)
1. Cecilie Fiskerstrand (Fiorentina)
4. Tuva Hansen (Bayern München)
5. Guro Bergsvand (Brighton)
7. Ingrid Engen (Barcelona)
8. Vilde Bøe Risa (Atletico Madrid)
10. Caroline Graham Hansen (Barcelona)
13. Thea Bjelde (Vålerenga)
14. Ade Hegerberg (Lyon)
16. Mathilde Harviken (Juventus)
17. Celin Bizet Ildhusøy (Manchester United)
18. Frida Maanum (Arsenal)
Fyrir leik
Tæpt ár síðan Ísland vann síðast leik
Við unnum síðast leik í Póllandi þann 16. júlí á síðasta ári. Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði markið í þeim leik í 0-1 sigri. Síðan þá hafa úrslitin verið svona:
Bandaríkin 3 - 1 Ísland
Bandaríkin 3 - 1 Ísland
Kanada 0 - 0 Ísland
Danmörk 2 - 0 Ísland
Sviss 0 - 0 Ísland
Frakkland 3 - 2 Ísland
Ísland 0 - 0 Noregur
Ísland 3 - 3 Sviss
Bandaríkin 3 - 1 Ísland
Bandaríkin 3 - 1 Ísland
Kanada 0 - 0 Ísland
Danmörk 2 - 0 Ísland
Sviss 0 - 0 Ísland
Frakkland 3 - 2 Ísland
Ísland 0 - 0 Noregur
Ísland 3 - 3 Sviss

Fyrir leik
Markalaust þegar liðin mættust á Þróttaravelli
Niðurstaðan var markalaust jafntefli þegar þessi tvö lið mættust á Þróttaravelli á dögunum. Íslenska liðið var að mínu mati sterkara í þeim leik og þær voru bara klaufar að vinna ekki. Nokkrum dögum síðar spiluðu stelpurnar okkar við Sviss og gerðu 3-3 jafntefli, en leikurinn við Noreg var talsvert betri. Við þurfum að byggja ofan á þeirri frammistöðu í dag og skora eins og eitt mark.

Fyrir leik
Það er mjög drungalegt og kalt. Búið að rigna mikið í allan dag. Er ekki örugglega betra veður heima á Íslandi?
Fyrir leik
Íslenska liðið er mætt á undan því norska í upphitun. Það er rosa fámennt á vellinum þegar 45 mínútur eru í leik. Það er pláss hérna fyrir um 20 þúsund manns en samkvæmt mínum upplýsingum hefur miðasala gengið illa.
Fyrir leik
Stærstu stjörnurnar byrja hjá Noregi
Það var nú eitthvað talað um það í norskum miðlum í dag að það ætti að henda stórstjörnunni Ödu Hegerberg á bekkinn, en hún byrjar hér í dag og er með fyrirliðabandið. Caroline Graham Hansen, ein allra besta fótboltakona í heimi, byrjar líka í dag. Þessar tvær voru ekki með á Íslandi.

Það var nú eitthvað talað um það í norskum miðlum í dag að það ætti að henda stórstjörnunni Ödu Hegerberg á bekkinn, en hún byrjar hér í dag og er með fyrirliðabandið. Caroline Graham Hansen, ein allra besta fótboltakona í heimi, byrjar líka í dag. Þessar tvær voru ekki með á Íslandi.
Fyrir leik
Fjórir miðverðir í öftustu línu hjá Íslandi
Glódís Perla Viggósdóttir snýr aftur í byrjunarlið Íslands og er auðvitað með fyrirliðabandið. Hún var meidd í síðasta landsleikjaglugga.
Það er athyglisvert að það eru í raun fjórir miðverðir í vörninni. Ingibjörg og Glódís eru í hjartanu og svo eru Guðrún Arnardóttir og Natasha Anasi í bakvörðunum.
Sandra María Jessen fær þá tækifæri í byrjunarliðinu en hún hefur leikið frábærlega með Þór/KA að undanförnu og skorað sex mörk í síðustu þremur leikjum.
Það er athyglisvert að það eru í raun fjórir miðverðir í vörninni. Ingibjörg og Glódís eru í hjartanu og svo eru Guðrún Arnardóttir og Natasha Anasi í bakvörðunum.
Sandra María Jessen fær þá tækifæri í byrjunarliðinu en hún hefur leikið frábærlega með Þór/KA að undanförnu og skorað sex mörk í síðustu þremur leikjum.

Fyrir leik
Grenjandi rigning
Það er um einn og hálfur tími í leik og það er grenjandi rigning hér í Þrándheimi. Völlurinn lítur frábærlega út og við ættum að geta fengið mjög skemmtilegan fótboltaleik við þessar aðstæður.
Fyrir leik
Undirbúningur hafinn á vellinum
Það er rúmir sjö klukkutímar í leik en það er undirbúningur hafinn á vellinum, það er verið að slá hann og svo er búið að kveikja á skjánum. Gott útsýni út um hótelgluggann hjá mér.

Fyrir leik
Áslaug Munda ekki með
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var að útskrifast frá Harvard háskólanum í Bandaríkjunum og er því ekki með í dag. Áslaug Munda verður 24 ára í næstu viku og á að baki 20 A-landsleiki. Hún hefur verið mikið frá síðustu ár vegna höfuðmeiðsla. Hún mun koma til móts við landsliðið á Íslandi og verður til taks fyrir leikinn gegn Frakklandi næsta þriðjudag.

Fyrir leik
Staðan í riðlinum
1. Frakkland, 12 stig
2. Noregur, 4 stig
3. Ísland, 3 stig
4. Sviss, 2 stig
Ef við endum í neðsta sæti, þá föllum við beint niður í B-deild en ef við endum í þriðja sæti þá förum við í umspil um að halda sæti okkar. Ef við endum í öðru sæti, þá höldum við sæti okkar í A-deild.
2. Noregur, 4 stig
3. Ísland, 3 stig
4. Sviss, 2 stig
Ef við endum í neðsta sæti, þá föllum við beint niður í B-deild en ef við endum í þriðja sæti þá förum við í umspil um að halda sæti okkar. Ef við endum í öðru sæti, þá höldum við sæti okkar í A-deild.

Fyrir leik
Fanndís snýr aftur eftir fimm ára fjarveru
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, hefur þurft að gera tvær breytingar á hópnum eftir að hann valdi upprunalega hópinn. Emilía Kiær Ásgeirsdóttir og Amanda Andradóttir meiddust en inn í hópinn komu Arna Eiríksdóttir og Fanndís Friðriksdóttir.
Fanndís spilaði síðast með landsliðinu árið 2020 en hún gæti spilað sinn 110. landsleik í þessu verkefni. Hún hefur verið að spila vel með Val.
Fanndís spilaði síðast með landsliðinu árið 2020 en hún gæti spilað sinn 110. landsleik í þessu verkefni. Hún hefur verið að spila vel með Val.

Fyrir leik
Noregur endurheimtir einn besta leikmann í heimi
Noregur hefur endurheimt sína stærstu stjörnu fyrir leikinn gegn Íslandi í dag. Caroline Graham Hansen, leikmaður Barcelona, snýr aftur í hópinn eftir meiðsli.
Við þurfum að hafa góðar gætur á henni.
Við þurfum að hafa góðar gætur á henni.
Fyrir leik
Völlurinn þar sem Óli Jó gerði penngamerki upp í stúku
Útsýnið á efri hæðum Scandic Lerkendal hótelsins er skemmtilegt. Hér getur undirritaður bara horft beint út á hinn sögufræga Lerkendal leikvang sem hýst hefur marga stóra fótboltaleiki í gegnum tíðina og á morgun spilar íslenska kvennalandsliðið hér við Noreg í Þjóðadeildinni.
En fyrsti leikurinn sem kemur upp í hugann þegar maður horfir hér úta, það er án efa leikur Rosenborg og Vals í forkeppni Meistaradeildarinnar þann 18. júlí 2018.
En fyrsti leikurinn sem kemur upp í hugann þegar maður horfir hér úta, það er án efa leikur Rosenborg og Vals í forkeppni Meistaradeildarinnar þann 18. júlí 2018.
Fyrir leik
Staðan á stelpunum okkar
Hvernig er staðan á leikmannahópnum fyrir þetta áhugaverða verkefni? Hægt er að rúlla yfir það með því að skoða þessa frétt.
Fyrir leik
Sveindís fór yfir ákvörðun sína
Landsliðskonan vinsæla Sveindís Jane Jónsdóttir gekk á dögunum í raðir Angel City í Bandaríkjunum. Þetta voru skipti sem komu nokkuð mikið á óvart.
Hún hefur síðustu ár verið á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en hefur nú nýjan kafla í borg englanna í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er áhugaverð.
Sveindís settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Þrándheimi í Noregi í dag og ræddi þar betur um þessi áhugaverðu skipti. Sveindís gerði einnig upp tímann hjá Wolfsburg og ræddi auðvitað um landsliðið líka.
Hún hefur síðustu ár verið á mála hjá Wolfsburg í Þýskalandi en hefur nú nýjan kafla í borg englanna í Bandaríkjunum í sumar. Þetta er áhugaverð.
Sveindís settist niður með fréttamanni Fótbolta.net í Þrándheimi í Noregi í dag og ræddi þar betur um þessi áhugaverðu skipti. Sveindís gerði einnig upp tímann hjá Wolfsburg og ræddi auðvitað um landsliðið líka.
Fyrir leik
Viðtöl fyrir leikinn
Fréttamaður Fótbolta.net kom hér til Noregs á miðvikudag og hefur rætt við leikmenn og þjálfara íslenska liðsins síðustu daga. Hér fyrir tenglar á öll viðtölin sem hægt er að skoða fyrir þennan áhugaverða leik.
Fyrir leik
Af hverju skiptir þessi leikur máli?
Það spyrja sig líklega einhverjir að því. Í stuttu máli þá skiptir það máli að ná í góð úrslit því Þjóðadeildin tengist inn í undankeppni HM. Ef við höldum okkar í A-deild þá verða möguleikarnir okkar meiri á að komast á HM í Brasilíu. Ég skrifaði frétt um þetta í gær sem má skoða með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.
Fyrir leik
Búnar að dvelja í Þrándheimi síðustu daga
Stelpurnar komu saman í Þrándheimi síðasta mánudag og hafa verið að æfa hér í borginni síðustu daga. Í gær æfðu þær á keppnisvellinum, Lerkendal, sem er heimavöllur Rosenborg.

Byrjunarlið:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
3. Sandra María Jessen
('66)

4. Glódís Perla Viggósdóttir (f)

6. Ingibjörg Sigurðardóttir
7. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
('79)

8. Alexandra Jóhannsdóttir
11. Natasha Anasi
('66)


14. Hlín Eiríksdóttir
16. Hildur Antonsdóttir
('66)

18. Guðrún Arnardóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
2. Berglind Rós Ágústsdóttir
5. Fanndís Friðriksdóttir
9. Sædís Rún Heiðarsdóttir
10. Dagný Brynjarsdóttir
('66)

15. Katla Tryggvadóttir
('79)

17. Agla María Albertsdóttir
('66)

20. Guðný Árnadóttir
('66)

21. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
22. Arna Eiríksdóttir
- Meðalaldur 26 ár
Liðsstjórn:
Þorsteinn Halldórsson (Þ)
Þorsteinn H Halldórsson (Þ)
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Ólafur Pétursson
Ásmundur Guðni Haraldsson
Kristbjörg Helga Ingadóttir
Ásta Árnadóttir
Svala Sigurðardóttir
Tinna Mark Antonsdóttir
Hafsteinn Steinsson
Gul spjöld:
Natasha Anasi ('57)
Rauð spjöld: