Man Utd leitar að arftaka Fernandes - Eze ofarlega á lista hjá Bayern - Gakpo og Díaz á förum frá Liverpool?
Besta-deild karla
Breiðablik
19:15 0
0
Víkingur R.
Besta-deild karla
ÍA
30' 0
0
ÍBV
Besta-deild karla
FH
29' 0
0
Afturelding
Besta-deild karla
KA
75' 0
1
Stjarnan
Besta-deild karla
KR
LL 2
1
Vestri
Keflavík
0
3
HK
0-1 Jóhann Þór Arnarsson '15 , víti
0-2 Jóhann Þór Arnarsson '19
0-3 Tumi Þorvarsson '89
30.05.2025  -  19:15
HS Orku völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól og sumar!
Dómari: Hreinn Magnússon
Maður leiksins: Jóhann Þór Arnarsson
Byrjunarlið:
21. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras
6. Sindri Snær Magnússon (f)
7. Gabríel Aron Sævarsson ('46)
11. Muhamed Alghoul
18. Ernir Bjarnason ('46)
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson ('65)
92. Kári Sigfússon
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Rúnar Gissurarson (m)
5. Stefán Jón Friðriksson
8. Ari Steinn Guðmundsson
10. Stefan Ljubicic ('46)
14. Marin Mudrazija ('65)
24. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
25. Frans Elvarsson ('46)
- Meðalaldur 30 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Ómar Jóhannsson
Hólmar Örn Rúnarsson
Luka Jagacic
Ásgeir Orri Magnússon
Guðmundur Árni Þórðarson
Óskar Ingi Víglundsson

Gul spjöld:
Sindri Kristinn Ólafsson ('14)
Marin Brigic ('72)
Kári Sigfússon ('92)
Sindri Snær Magnússon ('94)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Keflvíkingum ekki ætlað að skora hér í kvöld.

Hreinn Magnússon flautar af eftir fínasta færi hjá Keflavík og það eru HK sem taka öll stigin hér í kvöld.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.
94. mín Gult spjald: Karl Ágúst Karlsson (HK)
94. mín Gult spjald: Sindri Snær Magnússon (Keflavík)
92. mín Gult spjald: Kári Sigfússon (Keflavík)
91. mín
Keflavík með aukaspyrnu fyrir markið á fjær þar sem Arnar Freyr nær að blaka boltanum frá.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
89. mín MARK!
Tumi Þorvarsson (HK)
Rýtingur! Keflavík verið betri síðustu mínúturnar en það er ekki það sem telur.

HK refsar og Tumi kemst einn á móti Sindra í markinu og skorar þriðja mark HK!
87. mín Gult spjald: Ívar Orri Gissurarson (HK)
Sparkar boltanum burt eftir flaut. Ódýrt og heimskulegt.
85. mín
Það er hugur í Keflvíkingum sem eru að flýta sér.

HK gerir í því að reyna hægja á enda vinnur tíminn með þeim.
81. mín
Skyndisókn! HK keyrir í skyndisókn strax á eftir og þung snerting frá Karli Ágústi bjargar Sindra Kristinn sem var kominn út úr markinu á móti og Keflvíkingar bjarga!
81. mín
Þverláin! Þversláin í tvígang að bjarga HK-ingum!

Frans Elvarsson á þrumuskot í slánna! Boltinn fellur svo fyrir Stefán Ljubicic sem hleður upp í hörku skot sem Arnar Freyr ver aftur í slánna!

Boltinn vill ekki inn hjá Keflavík!
80. mín
Inn:Hákon Ingi Jónsson (HK) Út:Aron Kristófer Lárusson (HK)
80. mín
Inn:Brynjar Snær Pálsson (HK) Út:Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Fær ekki tækifærið að klára þrennuna.
78. mín
Varsla! Karl Ágúst fær boltann í skyndisókn og keyrir á Keflvíkingana. Snýr af sér varnarmann og ætlar að leggja hann í fjær en Sindri Kristinn ver þetta frábærlega!
77. mín Gult spjald: Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Tafir.
76. mín
Keflvíkingar með skot að marki sem fer af varnarmanni og svo í hælinn á Kára Sigfússyni sem ætlaði að stíga yfir boltan og láta fara í horn.

Þetta súmmerar svolítið upp Keflvíkingana í kvöld.
72. mín
Inn:Kristján Snær Frostason (HK) Út:Dagur Ingi Axelsson (HK)
72. mín Gult spjald: Marin Brigic (Keflavík)
Fer full hraustlega í tæklinguna og uppsker spjald.
69. mín
HK hættulegir í skyndisóknum. Jóhann Þór æðir fram og tekur ekki eftir því hvað Sindri Kristinn er langt úti að spretta tilbaka.
Kemur sér þó inn á teig en Keflvíkingar bjarga þessu nokkuð þægilega.
67. mín
Varsla Hörku spyrna sem Arnar Freyr ver.
67. mín
Keflavík fær aukaspyrnu á flottum stað. Ásgeir Páll stendur yfir boltanum.
65. mín
Inn:Marin Mudrazija (Keflavík) Út:Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
64. mín Gult spjald: Aron Kristófer Lárusson (HK)
Aðeins of seinn í baráttunni við Eið Orra.
62. mín
Axel Ingi með góðan bolta inn á teiginn en Keflvíkingar ná ekki að koma þessu á markið.
59. mín
Keflavík fengið nóg af hornum í þessum leik.
56. mín
Varsla! HK í hörku færi og sýndist það vera Ívar Orri sem átti þennan fleyg sem Sindri Kristinn varði stórkostlega!
54. mín
Inn:Karl Ágúst Karlsson (HK) Út:Ívar Örn Jónsson (HK)
54. mín
Inn:Haukur Leifur Eiríksson (HK) Út:Birnir Breki Burknason (HK)
54. mín Gult spjald: Dagur Ingi Axelsson (HK)
52. mín
Aðeins meira 'presence' í sóknarlínu Keflavíkur með innkomu Stefáns Ljubicic.
51. mín
Keflvíkingar eru stórhættulegir þessar upphafsmínútur í seinni.
46. mín
Stefan Ljubicic að komast í færi en HK nær að henda sér fyrir.
46. mín
Þá erum við farin af stað aftur! HK sem sparkar þessu af stað.
46. mín
Inn:Frans Elvarsson (Keflavík) Út:Ernir Bjarnason (Keflavík)
46. mín
Inn:Stefan Ljubicic (Keflavík) Út:Gabríel Aron Sævarsson (Keflavík)
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir frá efri byggðum Kópavogs leiða með tveimur mörkum í hlé.

Fyrir utan þessi tvö mörk hefur þetta ekki verið tíðindarmikill leikur.

Fáum vonandi aðeins meiri spennu í þetta í seinni.
45. mín
Sindri Kristinn verið í smá brasi með spyrnurnar í dag.
44. mín
Keflavík með aukaspyrnu sem Kári tekur og lyftir inn á teig. HK í smá vandræðum að koma boltanum burt og Kári fær hann aftur en Arnar Freyr rís svo upp í markinu og grípur boltann.
41. mín
Ásgeir Páll með flottan bolta fyrir markið en Gabríel Aron rétt missir af honum.
39. mín
Axel Ingi með bolta fyrir markið en skallinn frá Kára ekki góður og langt frá marki.
36. mín Gult spjald: Tumi Þorvarsson (HK)
Bannað að sparka í boltann eftir flaut.
35. mín
Keflvíkingar farnir að pirrast á vellinum, eðlilega kannski miðað við stöðuna.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Keflvíkingar vilja fá vítaspyrnu þegar Kári fellur í teignum en Hreinn gefur lítið fyrir það.
26. mín
Jóhann Þór í liði HK lítur út eins og 'man on a mission' gegn gömlu félögunum í Keflavík.
22. mín
Þessi tvö mörk hjá gestunum hafa svolítið slegið heimamenn sem hafa átt í stökustu vandræðum.
19. mín MARK!
Jóhann Þór Arnarsson (HK)
HK tvöfaldar! Jóhann Þór tvöfaldar fyrir HK!

Fær stungusendingu innfyrir og stingur Keflvíkingana af og rennir honum framhjá Sindra Kristni í marki Keflavíkur.
16. mín
Keflvíkingar að koma sér í allskyns vandræði áður en Sindri Kristinn neglir honum svo bara fram.
15. mín Mark úr víti!
Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Öruggur! Alveg út við stöng og sendir Sindra Kristinn í hitt hornið!

HK LEIÐIR!!
14. mín Gult spjald: Sindri Kristinn Ólafsson (Keflavík)
Tekur Jóhann Þór niður og vítaspyrna dæmd!

Hræðileg sending tilbaka og Sindra Kristinn engir greiðar gerðir þarna. Jóhann Þór pikkar boltanum framhjá honum og Sindri fer í hann og hann fellur við og vítaspyrna dæmd!

Klaufalegt en hárrétt.
14. mín
Víti HK FÆR VÍTI!
10. mín
Keflavík að komast í fín skotfæri en HK-ingar duglegir að henda sér fyrir allar tilraunir.
8. mín
Kári Sigfússon með flotta hornspyrnu á fjærstöngna þar sem Keflvíkingar ná skalla að marki en Arnar Freyr ver þetta vel.

Keflavík fær annað horn sem þeir taka stutt en ná ekki að ógna að viti.
5. mín
Kraftur í báðum liðum hérna í upphafi.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka okkur af stað. Gabríel Aron á upphafssparkið.
Fyrir leik
Leikurinn í beinni útsendingu hér - minnum á kóðann "Fotbolti.net"


Mate Dalmay
Fyrir leik
Kristalkúlan Sævar Atli Magnússon, nýr leikmaður Brann í Noregi, er spámaður umferðarinnar.

Keflavík 2 - 0 HK
Barátta, böðlast, vinnsla, orka, tæklingar, talandi. Svona verður leikurinn. Ernir Bjarnason skoraði i seinasta leik þannig hann er á eldi og setur 2 núna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
Keflavík Keflavík hafa farið vel af stað og sátu fyrir umferðina í toppsæti deildarinnar með níu stig. Heimamenn hafa litið vel út í sumar og eru til alls líklegir.

HK eru fyrirfram taldir eitt líklegasta liðið í deildinni til þess að berjast um að komast upp svo það væri virkilega sterkt fyrir Keflavík að taka öll stigin hér í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
HK Gestirnir frá efri byggðum Kópavogs hafa farið hökktandi af stað í Lengjudeildinni og sitja í 8.sætinu með fimm stig. HK tapaði í síðustu umferð fyrir nágrönnum Keflavíkur í Njarðvík 1-3 í leik sem þeim fannst þeir eiga meira skilið.

HK vonast til þess að dragast ekki mikið lengra aftur úr lestinni og vonast eftir því að komast aftur á sigurbraut í kvöld.

HK eru að bæta við sig í sumarglugganum.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Hreinn Magnússon heldur utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Guðmundur Ingi Bjarnason og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage.
Eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á HS Orku völlinn Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Keflavíkur og HK í fimmtu umferð Lengjudeild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson
4. Aron Kristófer Lárusson ('80)
5. Þorsteinn Aron Antonsson
7. Dagur Ingi Axelsson ('72)
8. Arnþór Ari Atlason (f)
9. Jóhann Þór Arnarsson ('80)
10. Birnir Breki Burknason ('54)
16. Eiður Atli Rúnarsson
21. Ívar Örn Jónsson ('54)
28. Tumi Þorvarsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
2. Kristján Snær Frostason ('72)
14. Brynjar Snær Pálsson ('80)
15. Haukur Leifur Eiríksson ('54)
23. Rúrik Gunnarsson
29. Karl Ágúst Karlsson ('54)
33. Hákon Ingi Jónsson ('80)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Halldór Geir Heiðarsson
Guðbjartur Halldór Ólafsson

Gul spjöld:
Tumi Þorvarsson ('36)
Dagur Ingi Axelsson ('54)
Aron Kristófer Lárusson ('64)
Arnar Freyr Ólafsson ('77)
Ívar Orri Gissurarson ('87)
Karl Ágúst Karlsson ('94)

Rauð spjöld: