Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
Selfoss
0
4
Njarðvík
0-1 Oumar Diouck '5
0-2 Amin Cosic '42
0-3 Oumar Diouck '52
0-4 Dominik Radic '77
30.05.2025  -  19:15
JÁVERK-völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Heitt og logn, aðstæður gætu ekki verið betri
Dómari: Guðni Páll Kristjánsson
Áhorfendur: 356
Maður leiksins: Oumar Diouck (Njarðvík)
Byrjunarlið:
1. Robert Blakala (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson ('81)
5. Jón Vignir Pétursson (f)
10. Nacho Gil ('63)
11. Alfredo Ivan Sanabria ('81)
15. Alexander Clive Vokes
18. Dagur Jósefsson
20. Elvar Orri Sigurbjörnsson ('63)
21. Frosti Brynjólfsson
28. Eysteinn Ernir Sverrisson ('87)
32. Aron Lucas Vokes
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
3. Reynir Freyr Sveinsson ('81)
6. Daði Kolviður Einarsson
7. Harley Willard ('63)
16. David Adam Dabrowski ('87)
25. Sesar Örn Harðarson ('63)
77. Einar Bjarki Einarsson ('81)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Bjarni Jóhannsson (Þ)
Þorkell Ingi Sigurðsson
Aron Fannar Birgisson
Sigríður Elma Svanbjargardóttir
Heiðar Helguson

Gul spjöld:
Alexander Clive Vokes ('51)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Njarðvík vinna öruggann sigur á Selfossi Verðskuldaður sigur

Skýrsla væntanleg
90. mín
+3

Aron með skot framhjá
90. mín
+2

Frosti með skot yfir markið
88. mín
Njarðvík hreinsar
88. mín
Selfoss að fá aukaspyrnu á álitlegum stað fyrir fyrigjöf
87. mín
Inn:David Adam Dabrowski (Selfoss) Út:Eysteinn Ernir Sverrisson (Selfoss)
86. mín
Rétt framhjá Sesar einn inná teig Selfoss og fær boltann og á skot í fyrsta í varnarmann og rétt framhjá markinu
82. mín
Einar með skot sem fer í varnarmann og burt
81. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík) Út:Dominik Radic (Njarðvík)
81. mín
Inn:Einar Bjarki Einarsson (Selfoss) Út:Alfredo Ivan Sanabria (Selfoss)
81. mín
Inn:Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss) Út:Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss)
79. mín
Robert að bjarga Selfossi Enn er vandræðagangur í vörn Selfoss og Amin sleppur í gegn og leggur boltann fyrir á Radic sem nær skoti en Robert nær að slæma tá í boltann
77. mín MARK!
Dominik Radic (Njarðvík)
Radic að klára þetta fyrir Njarðvík! Leið númer eitt notuð í þetta skiptið

Langur bolti á Radic sem tekur boltann niður inni í teig Selfoss og nær hnitmiðuðu skoti í fjær hornið úr nánast vonlausri stöðu
74. mín
Aron aftur að verja! Alferdo með frábæra skiptingu á Frosta sem kemst framhjá Birni og á skot en Aron ver meistaralega
72. mín
Inn:Viggó Valgeirsson (Njarðvík) Út:Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík)
72. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík) Út:Joao Ananias (Njarðvík)
71. mín
Sesar á skall yfir markið
69. mín
Færi Oumar í svipaðri stöðu og áðan en nú tekur hann auka snertingu en fellur um sjálfan sig og fer illa með færi til að ná þrennunni
68. mín
Boltinn á fjær en enginn mættur að skalla boltann
68. mín
Selfoss fær annað horn
67. mín
Alexander með fyrirgjöf sem ratar á markið en Aron slær boltann í burtu
67. mín
Selfoss fær horn
65. mín
Björn með fyrirgjöf á Radic sem er aleinn en hann hlýtur að hafa lokað augunum því hann hittir ekki boltann úr skallanum
63. mín
Inn:Sesar Örn Harðarson (Selfoss) Út:Elvar Orri Sigurbjörnsson (Selfoss)
63. mín
Inn:Harley Willard (Selfoss) Út:Nacho Gil (Selfoss)
62. mín
Boltinn dettur fyrir Radic sem á hjólhestaspyrnu en hún fer í markspyrnu
61. mín
Nacho skallar í horn
59. mín
Jón að sleppa með skrekkinn! Jón kærulaus í vörninni og missir boltann inni í sínum eigin teig og Radic í dauðafæri sem Robert ver en aftur dettur boltinn fyrir Radic sem klikkar aftur úr dauðafæri
57. mín
Frábært færi! Selfyssingar ná að tengja nokkrar sendingar inni í teig Njarðvíkur en Elvar nær ekki krafti í skotið
56. mín
Oumar! Oumar í frábæru færi að tryggja sér þrennuna en gleymir að halla sér yfir boltann og skot hans hátt yfir markið
54. mín
Elvar með lúmskt skot Elvar Orri nær lúmsku skoti fyrir utan teig en Aron enn og aftur öruggur og ver í horn sem Njarðvík hreinsar
52. mín MARK!
Oumar Diouck (Njarðvík)
Njarðvík að sigla þessu heim? Oumar Diouck að skora sitt annað mark!

Oumar tekur boltann niður fyrir utan teig Selfoss og á gott skot í vinstra hornið sem Robert nær ekki til og lítil von fyrir Selfyssinga að koma sér inn í leikinn aftur
51. mín Gult spjald: Alexander Clive Vokes (Selfoss)
Mikið pingpong inná teig Njarðvíkur en Selfyssingar ná aldrei að koma almennilegu skoti á markið
50. mín
Frosti að vinna horn
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Inn:Björn Aron Björnsson (Njarðvík) Út:Svavar Örn Þórðarson (Njarðvík)
Skipting í hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Njarðvík leiðir í hálfleik Njarðvík hefur ekki skapað sér mikið en þeir eru búnir að nýta sér þau færi sem þeir hafa fengið, annað en Selfyssingar
42. mín MARK!
Amin Cosic (Njarðvík)
Stoðsending: Oumar Diouck
Njarðvík að tvöfalda forystu sína! Nacho með sendingu til baka sem Oumar Diouck hirðir og rennir boltanum á félaga sinn Cosic sem er einn gegn Robert og klára í fjær hornið
38. mín
Njarðvík í kjör stöðu! Freysteinn fer illa með Dag og kemst einn gegn Robert í þröngri stöðu og Robert gerir sig stórann og ver skotið. Boltinn skoppar einu sinni inná teig Selfoss áður en að Alfredo sparkar honum í burtu
37. mín
Frosti kemst í góða stöðu en tekur sér of langan tíma í sínum aðgerðum og missir boltann
36. mín
Elvar að sleppa í gegn! Frábær sending í gegn á Elvar sem er í vænlegri stöðu en varnarmenn Njarðvíkur fljótir að skila sér til baka og trufla Elvar í skotinu sem fer yfir markið
31. mín
Frosti með góða fyrirgjöf en Aron Snær mjög öruggur og grípur boltann og fær Ívan á sig í leiðinni
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Njarðvík heldur í boltann og Selfoss liggur til baka og ætlar að beita skyndisóknum. Hvorugt lið að ógna mikið síðustu mínútur
25. mín
Aron að verja aftur Aron Lucas kemur boltanum á Alexander sem er í mjög góðu færi inni í teig Njarðvíkur en Aron ver vel
22. mín
Inn:Kenneth Hogg (Njarðvík) Út:Tómas Bjarki Jónsson (Njarðvík)
21. mín
Njarðvík 10 inná eins og er. Tómas Bjarki líklega að fá skiptingu hér snemma
19. mín
Dauðafæri! Ívan fær flugbraut á hægri kanntinum og keyrir inná teiginn og sér Alexander einan rétt hjá vítapunktinum en skot hans í varnarmann

Njarðvík sleppur vel í þetta skiptið, Selfoss aðeins verið að sækja í sig veðrið eftir að hafa lent undir
16. mín
Lítið að gerast eftir mark Njarðvíkur
12. mín
Mikið flæði á milli varnar og sóknar uppstillingu hjá Njarðvík
12. mín
Uppstilling Njarðvíkur Cosic - Diouck - Radic - Freysteinn

Joao - Tómas

Arnleifur - Davíð - Sigurjón - Svavar

Aron
9. mín
Njarðvík hreinsar
9. mín
Selfoss fær horn
6. mín
Selfoss ógna strax ívan fær boltann á kanntinum og á fyrirgjöf en enginn mættur að koma boltanum yfir línunna
5. mín MARK!
Oumar Diouck (Njarðvík)
Njarðvík kemst yfir snemma! Þetta tók ekki langan tíma

Klaufalegur varnarleikur hjá Selfossi og Oumar klárar af stuttu færi
4. mín
Uppstilling Selfoss Frosti - Elvar - Ívan

Alexander - Aron - Nacho

Eysteinn - Dagur - Jón - Alfredo

Robert
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað Njarðvík byrjar með boltann og sækir í norður
Fyrir leik
Þetta er að hefjast Liðin ganga inná völlinn
Fyrir leik
Bæði lið að hita upp
Fyrir leik
Leikurinn í beinni útsendingu hér - minnum á kóðann
Mate Dalmay
Fyrir leik
Spáin Sævar Atli, sem er nýgengin til liðs við Brann, spáði fyrir 5. umferð Lengjudeildarinnar.

Selfoss 1 - 2 Njarðvík

Svokallaður seinni bolta leikurinn. Oumar Diouck og ég tókum 2-3 skotæfingar saman þegar hann æfði með Leikni í smá tíma. Hann er góður að slumma þannig hann setur hann.

Þetta hafði Sævar Atli að segja fyrir leik dagsins og því má búast við hörkuleik

Mynd: Brann

Fyrir leik
Njarðvík Njarðvík hefur byrjað mótið afar vel og sitja í 3. sæti og geta komist á toppinn með sigri í dag og ef önnur úrslit fara vel. Þeir eru einnig taplausir eftir fyrstu 4 leikina og vonast til þess að halda sama róli í dag.

Njarðvík fór í Kórinn í síðustu umferð og áttu góðan leik þar en þeir unnu HK 1-3 í sannfærandi sigri. Tómas Bjarki, Domink Radic og Amin Cosic skoruðu mörk Njarðvíkur.

Amin Cosisc 19 ára leikmaður Njarðvíkur hefur samið við KR og mun fara þangað í byrjun Júlí þegar að glugginn opnar á ný

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Selfoss Selfoss situr í 10. sæti í deildinni einu stigi fyrir ofan fallsæti. Selfyssingar byrjuðu mótið vel með sigri gegn Grindavík í fyrstu umferð en hafa síðan tapað þremur leikjum í röð.

Selfoss heimsótti ÍR í síðustu umferð á útivelli og eftir markalausann fyrri hálfleik voru það Kristján og Bergvin sem að kláruðu leikinn fyrir ÍR. Selfyssingar láta vonandi síðasta heimaleik ekki trufla sig í dag en þeir töpuðu gegn Völsungi 1-2 eftir að hafa leitt 1-0 fram á 90. mínútu þegar Völsungur skoraði 2 mörk í uppbótartíma.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
5. umferð Lengjudeild karla Komið þið sæl og verið velkomin á Jáverk-völlinn þar sem Sefloss tekur á móti Njarðvík í hörku leik á Selfossi

Mynd: Árni Þór Grétarsson

Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson
2. Davíð Helgi Aronsson
3. Sigurjón Már Markússon
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Joao Ananias ('72)
9. Oumar Diouck
11. Freysteinn Ingi Guðnason ('72)
13. Dominik Radic ('81)
14. Amin Cosic
16. Svavar Örn Þórðarson ('45)
19. Tómas Bjarki Jónsson (f) ('22)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Bartosz Matoga (m)
5. Arnar Helgi Magnússon
8. Kenneth Hogg ('22)
10. Valdimar Jóhannsson ('72)
17. Símon Logi Thasaphong ('81)
18. Björn Aron Björnsson ('45)
21. Viggó Valgeirsson ('72)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Arnar Freyr Smárason
Sigurður Már Birnisson
Jaizkibel Roa Argote
Bergur Darri Hauksson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: