Liverpool vill Barcola - Sane kominn til Tyrklands - Villa, Newcastle og Tottenham hafa áhuga á Sancho
Breiðablik
5
1
HK
Birta Georgsdóttir '12 1-0
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '22 2-0
Birta Georgsdóttir '23 3-0
3-1 Loma McNeese '24
Agla María Albertsdóttir '58 4-1
Edith Kristín Kristjánsdóttir '67 5-1
12.06.2025  -  20:00
Kópavogsvöllur
Mjólkurbikar kvenna
Aðstæður: 11° - mjög flottar aðstæður
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Birta Georgsdóttir
Byrjunarlið:
25. Telma Ívarsdóttir (m)
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f) ('62)
11. Andrea Rut Bjarnadóttir ('46)
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
24. Helga Rut Einarsdóttir
26. Líf Joostdóttir van Bemmel ('62)
28. Birta Georgsdóttir ('46)
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir ('82)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
5. Samantha Rose Smith ('62)
8. Heiða Ragney Viðarsdóttir ('46)
12. Katherine Devine
16. Írena Héðinsdóttir Gonzalez ('62)
21. Guðrún Þórarinsdóttir
22. Heiðdís Lillýardóttir
23. Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('46)
27. Barbára Sól Gísladóttir
40. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('82)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Kristrún Lilja Daðadóttir
Edda Garðarsdóttir
Sævar Örn Ingólfsson
Valdimar Valdimarsson
Herdís Halla Guðbjartsdóttir
Erna Katrín Óladóttir
Valgeir Viðarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þá er þessum fjöruga markaleik lokið. Sannfærandi sigur Breiðabliks niðurstaðan á Kópavogsvelli.

Viðtöl og skýrsla væntanleg. Takk fyrir samfylgdina.
91. mín
Kópavogsbær fær lófaklapp frá stuðningsmönnum fyrir að hafa frítt inn á leikinn. Flott framtak.
90. mín
Uppbótartíminn er ein mínúta
88. mín
Edith Kristín er valin maður leiksins hér á Kópavogsvelli.
85. mín
Inn:Hildur Eva Hinriksdóttir (HK) Út:Natalie Sarah Wilson (HK)
85. mín
Elísa Birta þeytist upp völlinn og kemst vel inn á völlinn en skotið frá henni vel framhjá.
82. mín
Inn:Lilja Þórdís Guðjónsdóttir (Breiðablik) Út:Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik)
Edith ógnaði marki HK stöðugt í dag og hefði auðveldlega geta skorað fleiri mörk.
78. mín
Karitas og Berglind Björg eiga flott samspil sem endar með skoti frá Berglindi inn á markteig en það fer yfir markið.
77. mín
Blikar eru að leitast við að bæta við marki. Þær eru ekkert að taka fótinn af bensíngjöfinni.
74. mín
Inn:Sigrún Ísfold Valsdóttir (HK) Út:Ísabel Rós Ragnarsdóttir (HK)
Tvöföld skipting.
73. mín
Inn:Katrín Rósa Egilsdóttir (HK) Út:Hildur Lilja Ágústsdóttir (HK)
72. mín
Fyrsta skot HK á markið í seinni hálfleik Loma McNeese kemur boltanum í gegn á Natalie Wilson en æfingabolti fyrir Telmu.
71. mín
Hrafnhildur Ása á fínt skot fyrir utan teig en það fer framhjá markinu.
69. mín
Samantha Smith með geggjaða fyrirgjöf á Írenu sem stendur á fjærstönginni. Hún setur boltann rétt framhjá. Blikar ætla sér að bæta við.
67. mín MARK!
Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik)
Það kom að því!! Hrafnhildur Ása á góðan bolta inn á teiginn en Kaylie lendir í bölvuðu basli með hann. Boltinn fellur svo fyrir Edith sem rennur honum í opið mark. Hún er komin á blað og á það fyllilega skilið!
66. mín
Markið hlýtur að koma! Edith fær enn eitt færið, þar sem hún stendur galopin á markteig beint fyrir framan Kaylie en nú neglir hún í slánna!
65. mín
Blikar fá aukaspyrnu á álitlegum stað en ekkert varð úr henni.
63. mín
Inn:Anja Ísis Brown (HK) Út:Kristjana Ása Þórðardóttir (HK)
62. mín
Edith María er enn og aftur að komast í gott færi en Kaylie er með númerið hennar.
62. mín
Inn:Samantha Rose Smith (Breiðablik) Út:Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Markaskorarinn fær hvíld.
62. mín
Inn:Írena Héðinsdóttir Gonzalez (Breiðablik) Út:Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
60. mín
Nú er nokkuð ljóst að það er bara formsatriði fyrir Blika að klára þennan leik.
58. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Edith Kristín Kristjánsdóttir
Hver önnur? Agla María fær boltann í góðri stöðu út á vinstri kanti. Hún 'köttar' svo inn á markteiginn og neglir boltanum fjærhornið. Ansi snyrtilegt.
53. mín
Loma sækir á hægri og fær hornspyrnu. Væri gaman að fá annað mark frá gestunum.
49. mín
Sláarskot Berglind Björg kemur inn á með látum og á gott skot rétt fyrir utan teig en það hafnar í slánni.
46. mín
Inn:Hugrún Helgadóttir (HK) Út:Ragnhildur Sóley Jónasdóttir (HK)
46. mín
Inn:Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik) Út:Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)
Ekki amalegt að vera með Berglindi á bekknum.
46. mín
Inn:Heiða Ragney Viðarsdóttir (Breiðablik) Út:Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Birta átt frábæran leik.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Ansi skemmtilegur fyrri hálfleikur! Þessi fyrri hálfleikur hefur verið ansi viðburðaríkur. Það komu þrjú mörk á þremur mínútum sem er ótrúlegt. Blikar leiða í hálfleik og bara spurning hvort seinni hálfleikurinn geti verið jafnskemmtilegir og sá fyrri.
45. mín
Edith Kristín kemst inn á markteig en skotið frá henni fer rétt framhjá.
45. mín
Uppbótartíminn er ein mínúta!
43. mín
Stöngin! Darraðardans inn á teig HK sem endar með skoti hjá Edith Kristínu í stöngina. Enn og aftur er hún að ógna marki HK!
35. mín
Færi! Edith Kristín kemst í gott færi inn í teig út á vinstri en Kaylie ver vel frá henni.
33. mín
Það hefur færst aðeins meiri ró í leikinn eðli máls samkvæmt.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Það er óhætt að segja að þetta mark frá Lomu McNeese hafi kveikt neista í HK. Þær sækja og sækja þessa stundina.
29. mín
Elísa Birta á fínt skot inn í teig sem Telma ver. HK á hornspyrnu.
24. mín MARK!
Loma McNeese (HK)
Stoðsending: Ísabel Rós Ragnarsdóttir
Hvað er að frétta?! Blikar missa boltann á miðjunni og Ísabel nær til hans. Hún gefur svo boltann á Lomu sem skorar. Þarna hefði maður vilja sjá Telmu gera betur í markinu.
23. mín MARK!
Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Maður má ekki líta við! Agla María sendir Birtu í gegn sem er alveg ein og klárar snyrtilega framhjá Kaylie!
22. mín MARK!
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Birta Georgsdóttir
Frábært mark! Geggjað þríhyrningsspil á milli Hrafnhildar og Birtu sem endar með marki Birtu! Frábær afgreiðsla hjá Birtu í slánna og inn!
21. mín
Ísabel Rós finnur Lomu McNeese inn á markteig í skallafæri en hún skallar framhjá.
19. mín
Blikarnir eru sem stendur að þjarma vel að marki HK og liggur mark í loftinu.
14. mín Gult spjald: Kristjana Ása Þórðardóttir (HK)
12. mín MARK!
Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Fyrsta markið komið! Hræðileg sending til baka af miðjunni hjá HK sem Birta kemst inn í. Hún sólar svo markmanninn og klárar snyrtilega í netið! Verð bara að viðurkenna það að ég var enn með fókusinn á sláarskot Andreu, þegar þetta gerðist.
11. mín
Þvílíkt skot! Agla María á fyrirgjöf inn á teiginn sem vörn HK skallar frá en boltinn endar hjá Andreu Rut, sem neglir boltanum á markið fyrir utan teig og hafnar boltinn í slánni!
9. mín
Það er frábær mæting á Kópavogsvöll í kvöld. Það eru gleðitíðindi.
7. mín
Andrea er staðin á lappir.
5. mín
Andrea Rut liggur eftir við miðjubogann og þarf aðhlynningu.
3. mín
Fyrsta færi leiksins Birta Georgsdóttir á sendingu yfir vörn HK sem endar hjá Edith Kristínu en hún gerir alls ekki nógu vel inn á teignum og Kaylin nær til boltans.
1. mín
Það var glöggur maður að benda mér á að Kristín Dís er inn á vellinum en ekki á bekknum, eins og stendur á leikskýrslunni. Barbára Sól sýnist mér ekki vera inn á.
1. mín
Leikur hafinn
Twana flautar þetta af stað! Það eru gestirnir sem hefja leik og sparka í átt að Fífunni.
Fyrir leik
Nágrannaslagur af bestu gerð. Lið sem berjast á toppnum í efstu tveimur deildunum og er fyrirfram búist við öruggum sigri Blika. Breiðablik -3.5 á Epic er á stuðlinum 1.91
Fyrir leik
Nágrannaslagur Liðin munu skrifa söguna í kvöld í tilefni 70 ára afmæli Kópavogsbæjar en þessi lið eru að mætast í fyrsta skiptið í sögu meistaraflokks kvenna. Það verður fróðlegt að sjá.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Dómarateymið Aðaldómari leiksins er Twana Khalid Ahmed. Með honum til aðstoðar eru Jovan Subic og Rögnvaldur Þ Höskuldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi HK HK hefur fagnað góðu gengi í Lengjudeildinni og sitja þær í 1. sætinu. Þær hafa unnið síðustu þrjá leiki í deild og eru þannig að koma á góðu skriði inn í þennan leik. Þær eru ólíklegri til sigurs en töfrar bikarsins munu ekki svíkja okkur.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Gengi Breiðabliks Breiðablik situr í 2. sæti Bestu deildar kvenna á eftir Þrótti frá Reykjavík. Þær fóru auðveldlega með FHL í síðustu umferð í deildinni og fóru með 6-0 sigur af hólmi. Á undan því lutu þær í lægra haldi gegn sterku liði FH. Það verður gaman að sjá hvernig þær mæta til leiks í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Heil og sæl! Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Kópavogsvelli frá nágrannaslag Breiðabliks og HK í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Kaylie Erin Bierman (m)
9. Elísa Birta Káradóttir
10. Isabella Eva Aradóttir (f)
14. Ísabel Rós Ragnarsdóttir ('74)
16. Mónika Hlíf Sigurhjartardóttir
19. Ragnhildur Sóley Jónasdóttir ('46)
20. Loma McNeese
22. Kristjana Ása Þórðardóttir ('63)
23. Rakel Eva Bjarnadóttir
32. Natalie Sarah Wilson ('85)
77. Hildur Lilja Ágústsdóttir ('73)
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
12. Sóley Lárusdóttir (m)
3. Anja Ísis Brown ('63)
5. Sigrún Anna Viggósdóttir
17. Hildur Eva Hinriksdóttir ('85)
21. Katrín Rósa Egilsdóttir ('73)
24. Hugrún Helgadóttir ('46)
26. Melkorka Mirra Aradóttir
28. Hólmfríður Þrastardóttir
37. Sigrún Ísfold Valsdóttir ('74)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Pétur Rögnvaldsson (Þ)
Birkir Örn Arnarsson
Emma Sól Aradóttir
Karlotta Björk Andradóttir
Emilía Lind Atladóttir
Andri Hjörvar Albertsson
Magnús Haukur Harðarson
Valgerður Tryggvadóttir

Gul spjöld:
Kristjana Ása Þórðardóttir ('14)

Rauð spjöld: