Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
Besta-deild karla
Afturelding
LL 4
1
ÍA
Besta-deild karla
Fram
LL 2
0
FH
Afturelding
4
1
ÍA
0-1 Viktor Jónsson '17
Elmar Kári Enesson Cogic '33 1-1
Elmar Kári Enesson Cogic '71 2-1
Benjamin Stokke '85 , víti 3-1
Hrannar Snær Magnússon '90 4-1
15.06.2025  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Besta-deild karla
Aðstæður: Kjöraðstæður til knattspyrnuiðkunar, sól og blíða.
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Áhorfendur: 635
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Gunnar Bergmann Sigmarsson
3. Axel Óskar Andrésson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
7. Aron Jóhannsson ('63)
10. Elmar Kári Enesson Cogic ('80)
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
20. Benjamin Stokke
23. Sigurpáll Melberg Pálsson ('46)
30. Oliver Sigurjónsson ('77)
77. Hrannar Snær Magnússon
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Arnar Daði Jóhannesson (m)
4. Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('46)
8. Aron Jónsson
9. Andri Freyr Jónasson ('80)
11. Arnór Gauti Ragnarsson
19. Sævar Atli Hugason ('63)
21. Þórður Gunnar Hafþórsson ('77)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Heiðar Númi Hrafnsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Þórður Ingason

Gul spjöld:
Axel Óskar Andrésson ('35)
Sigurpáll Melberg Pálsson ('44)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
AFTURELDING SIGRAR Frábær sigur hjá Aftureldingu, eftir að hafa lent undir koma þeir til baka og gjörsamlega ganga frá Skagamönnum hér í seinni hálfleik og lyfta sér upp í 7. sætið.

Viðtöl og skýrsla væntanleg hér síðar í kvöld.
95. mín
Þórður Gunnar næstum því búinn að skora fimmta markið hér, fer framhjá Árna en Skaginn bjargar.
90. mín MARK!
Hrannar Snær Magnússon (Afturelding)
Stoðsending: Benjamin Stokke
GAME OVER Stokke með frábæra sendingu í gegn á Hrannar sem er sloppinn einn í gegn á móti Árna.

Gerir frábærlega og rífur næstum því netið af markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

86. mín
Inn:Hlynur Sævar Jónsson (ÍA) Út:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
85. mín Mark úr víti!
Benjamin Stokke (Afturelding)
Stoðsending: Hrannar Snær Magnússon
Stokke skorar úr vítinu! Hrannar Snær fer niður eftir ansi slappa tilraun Johannesar Vall til að ná til boltans.

Benjamin Stokke öruggur á punktinum og tryggir sigur heimamanna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

84. mín
VÍTI AFTURELDING
83. mín
Jökull hér með mjög áhugavert úthlaup, átti aldrei möguleika á því að ná boltanum. Sem betur fer fyrir hann fara Skagamenn illa að ráði sínu.
82. mín
Jón Gísli hér með hættulega fyrirgjöf sem fer rétt framhjá pakkanum.
80. mín
Inn:Andri Freyr Jónasson (Afturelding) Út:Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
Markaskorarinn farinn af velli.
77. mín
Inn:Ísak Máni Guðjónsson (ÍA) Út:Ómar Björn Stefánsson (ÍA)
Breytingar
77. mín
Inn:Guðfinnur Þór Leósson (ÍA) Út:Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Breytingar
77. mín
Inn:Þórður Gunnar Hafþórsson (Afturelding) Út:Oliver Sigurjónsson (Afturelding)
Breytingar
74. mín
Benjamin Stokke hér með skot rétt yfir.
71. mín MARK!
Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
Stoðsending: Benjamin Stokke
Tvenna! Bjartur Bjarmi með frábæran sprett og kemur svo með fyrirgjöf þar sem Benjamin Stokke á skot í fyrsta, boltinn fer af Elmari og breytir af stefnu og endar í netinu.

Afturelding 2-1!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

69. mín
Skalli í átt að marki hér sem að Árni Marinó ver eftir smá vandræði.
66. mín
Gísli Laxdal með fyrirgjöfinni á teiginn þar sem Johannes Vall mætir og hamrar boltann yfir úr góðu færi.
63. mín
Inn:Sævar Atli Hugason (Afturelding) Út:Aron Jóhannsson (Afturelding)
62. mín
Rúnar Már með þrumuskot yfir.
62. mín
Johannnes Vall með fyrirgjöf sem Jökull er næstum því búinn að missa hér í markteignum en hann bjargar sér.
61. mín
Boltinn rétt yfir allann pakkann, Aron Jó tók spyrnuna.
60. mín Gult spjald: Oliver Stefánsson (ÍA)
Afturelding fær auapsyrnu á fullkomnum stað fyrir fyrirgjöf
59. mín
Dauðafæri Boltinn dettur skyndilega fyrir Ómar Björn í teignum sem á skot í Axel og aftur fyrir.
55. mín
Jafnræði með liðunum hér í upphafi seinni hálfleiks.
47. mín
Bjartur Bjarmi með hörkuskot hér rétt yfir.
46. mín
Seinni hálfleikur hafin
46. mín
Inn:Bjarni Páll Linnet Runólfsson (Afturelding) Út:Sigurpáll Melberg Pálsson (Afturelding)
Bjarni kemur inn fyrir Sigurpál sem kveinkaði sér fyrr í leiknum.
45. mín
Hálfleikur
Sigurður flautar til hálfleiks. Bæði lið búin að skora, heilt yfir sanngjarnt. Það eru þó nóg af mörkum í þessum seinni hálfleik til viðbótar held ég.
45. mín Gult spjald: Viktor Jónsson (ÍA)
+3

Fer harkalega í Jökul, skagamenn ekki sáttir.
45. mín
Fjórum bættt við
44. mín Gult spjald: Sigurpáll Melberg Pálsson (Afturelding)
Hættuleg staða fyrir Skagamenn en Jökull kýlir þetta frá.
42. mín
Ekkert varð úr horninu.
42. mín
Horn fyrir heimamenn.
41. mín
Sigurpáll Melberg að kveinka sér hér. Vonum hann haldi leik áfram.
35. mín Gult spjald: Axel Óskar Andrésson (Afturelding)
Fer kannski fullharkalega í Marko
33. mín MARK!
Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
Stoðsending: Oliver Sigurjónsson
Þvílík negla! Elmar Kári fær hér boltann fyrir utan teig og lætur bara vaða. Algjör þrumufleygur hér út við stöng.

Oliver vann boltann hér framarlega á vellinum í aðdragandum og Skagamenn vildu brot. Ekkert að þessu.

Óverjandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

31. mín
Jökull er nú reyndar kominn á fætur, sjáum hvað setur.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Jökull Andrésson virðist hafa meiðst í úthlaupi hér. Held að hans þátttöku sé lokið.
27. mín
Dauðafæri! Viktor setur boltann í gegn á Gísla á hægri kantinum sem er aleinn, gerir þetta hinsvegar svolítið erfitt fyrir sig og þrengir færið og setur boltann rétt framhjá.
21. mín
Skagamenn ógna! Haukur hér í flottu færi sem Jökull ver, Marko fær svo boltann í kjölfarið og skýtur rétt framhjá.
20. mín
Gísli Laxdal liggur hér eftir, vonandi nær hann að halda leik áfram.
17. mín MARK!
Viktor Jónsson (ÍA)
Stoðsending: Jón Gísli Eyland Gíslason
1-0 Skaginn Viktor Jónsson að koma Skagamönnum yfir hér!

Sending út úr vörn Aftureldingar sem Jón Gísli kemst í. Jón Gísli finnur Viktor sem er bara einn á auðum sjó við vítateigslínuna og á skot með jörðinni sem Jökull nær ekki að komast fyrir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

13. mín
Aron Elí sendir hér boltann í gegn á Hrannar Snæ sem er sneggstur á vellinum og við það að sleppa í gegn en Skagamenn koma þessu í horn. Ekkert varð úr henni.
10. mín
Nálægt því! Gísli Laxdal hér með flotta fyrirgjöf á Viktor sem er bara í dauðafæri en skotið rétt framhjá.
8. mín
Elmar Kári hér með fyrsta færi leiksins, kemst á vinstri fótinn og á skot sem Árni ver vel.
5. mín
Ekkert varð úr horninu í þetta sinn
4. mín
Afturelding fær fyrsta horn leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn hefja leik.
Fyrir leik
Styttist í flautið Liðin labba nú inn til leiks, styttist í upphafsflautið.
Fyrir leik
Breytingar hjá ÍA - Jón Þór fer í fjögurra manna varnarlínu Jón Þór Hauksson er að breyta til eftir dapurt gengi. Hann leggur þriggja miðvarða kerfið á hilluna og fer í fjögurra manna varnarlínu í kvöld.

Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið Aftureldingar
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Markaleikur! Baráttan um Kjalarnesið. Það verður stuð í Mosó í kvöld, yfir 3 mörk á Epic á 1.83 er skemmtilegt,
Mate Dalmay
Fyrir leik
Byrjunarliðin Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, gerir enga breytingu á sínu liði frá 0-0 jafnteflinu við FH fyrir tveimur vikum síðar.

Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, gerir tvær breytingar á liði sínu frá 3-0 tapi gegn ÍBV. Hlynur Sævar Jónsson og Baldvin Þór Berndsen setjast á bekkinn og inn koma Johannes Vall og Gísli Laxdal Unnarsson.
Fyrir leik
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Liðin Tímabilið hefur til þess litast af vonbrigðum hjá Skagamönnum, eins og reifað er hér að neðan er liðið úr leik í Mjólkurbikarnum og auk þess situr liðið í 12. og neðsta sæti deildarinnar. Með sigri fer liðið þó upp fyrir heimamenn í Mosfellsbænum.

Afturelding er einmitt einu sæti ofar en gestirnir og eru því einnig í fallsæti, þetta er því mikilvægur leikur fyrir bæði lið sem geta komið sér í töluvert sterkari stöðu með sigri.

Er ekki jafnteflið ansi líklegt bara?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Ekkert bikarævintýri á Skipaskaga Þetta er í annað sinn sem að liðin mætast í sumar. Liðin mættust í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrir um mánuði síðan og þá fóru Mosfellingar með sigur af hólmi, 1-0. Eina mark leiksins skoraði Aron Jóhannsson.

Afturelding mætir svo liði Fram nú á fimmtudaginn næstkomandi hér í Mosfellsbænum í 8-liða úrslitum.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Fríið að baki Þetta er fyrsti leikur beggja liða að loknu landsleikjahlé, bæði lið léku síðast leik fyrir tveimur vikum síðan eða þann 1. júní.

Liðin og stuðningsmenn þeirra klæjar því eflaust í fingurnar eftir því að leikur hefjist nú í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fyrir leik
Gleðilegan sunnudag! Verið velkominn í beina textalýsingu frá leik Aftureldingar og Skagamanna héðan úr Mosfellsbænum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
6. Oliver Stefánsson
7. Haukur Andri Haraldsson ('77)
9. Viktor Jónsson
13. Erik Tobias Sandberg
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f)
17. Gísli Laxdal Unnarsson ('86)
19. Marko Vardic
22. Ómar Björn Stefánsson ('77)
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Jón Sölvi Símonarson (m)
4. Hlynur Sævar Jónsson ('86)
5. Baldvin Þór Berndsen
15. Gabríel Snær Gunnarsson
18. Guðfinnur Þór Leósson ('77)
20. Ísak Máni Guðjónsson ('77)
23. Robert Elli Vífilsson
33. Arnór Valur Ágústsson
77. Jón Viktor Hauksson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Teitur Pétursson
Dean Martin
Dino Hodzic
Logi Mar Hjaltested
Leifur Auðunsson

Gul spjöld:
Viktor Jónsson ('45)
Oliver Stefánsson ('60)

Rauð spjöld: