Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta-deild karla
Þórsvöllur Vey
ÍBV
ÍBV
0 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 120' Sigurður Arnar Magnússon (sjm)0 - 276' Tobias Thomsen
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Leik lokið!
Breiðblik vinnur sanngjarnan 0-2 sigur.
96. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Rétt fyrir utan teig hægra megin. Vicente tók spyrnuna, reyndi skot en það var hátt yfir.
Breiðablik
94. mín
InnBirkir Þorsteinsson
ÚtTobias Thomsen
91. mín
Arnór Gauti liggur eftir að hafa fengið boltann í andlitið virðist vera. Leikurinn stop á meðan.
90. mín
4 mínútum bætt við.
87. mín
Stuðningsmenn Blika eru búnir að skapa frábæra stemningu allan leikinn. Það verður að hrósa þeim fyrir mætinguna og stuðninginn við sitt lið.
85. mín
Kristófer Ingi kemur með sendingu í gegn á Óla Val en skotið frá honum er ekki gott.
Breiðablik
82. mín
InnKristófer Ingi Kristinsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
ÍBV
79. mín
InnMattias Edeland
ÚtJovan Mitrovic
ÍBV
79. mín
InnVíðir Þorvarðarson
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
ÍBV
79. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtArnór Ingi Kristinsson
Breiðablik
79. mín
InnÓli Valur Ómarsson
ÚtKristinn Steindórsson
77. mín
Eyjamenn fá horn. Ná ekki að skapa hættu.
Breiðablik
76. mín
0-2!!!

Tobias Thomsen (stoðsending: Valgeir Valgeirsson)

Frábærlega gert hjá Valgeiri, laumar boltanun á Tobias sem klárar snyrtilega framhjá Marcel. Tobias að skora sitt 8. mark í sumar.
ÍBV
75. mín
Gult spjald

Nökkvi Már Nökkvason

Fyrir að taka Ágúst Orra niður.
73. mín
Breiðablik fær aukaspyrnu. Tobias Thomsen tekinn niður. Þeir ná svo að vinna horn upp úr aukaspyrnunni.
70. mín
Höskuldur kom með góðan bolta úr hornspyrnunni. Á endanum dettur boltinn fyrir Kristinn Steindórs sem nær fínu skoti á markið en Marcel ver.
68. mín
Valgeir kemur með fyrirgjöf en Sigurður Arnar setur boltann aftur fyrir og Blikar fá horn.
ÍBV
67. mín
InnHermann Þór Ragnarsson
ÚtArnar Breki Gunnarsson
66. mín
Kristinn Steindórs kemur með fyrirgjöf frá vinstri en Marcel á ekki í vandræðum með hana og grípur boltann örugglega.
65. mín
Breiðablik fær horn
Ágúst Orri reynir skot fyrir utan teig en Eyjamenn hreinsa boltann aftur fyrir.
61. mín
Eyjamenn fá horn. Ná ekki að skapa neina hættu.
60. mín
Eyjamenn eru að pressa Blikana þessa stundina. Sóknin endar með skoti frá Sigurði Arnari en Anton Ari nær að verja.
56. mín
Geggjuð sókn!!
Mjög vel spilað hjá Eyjamönnum sem endar á Þorlákur Breki fær boltann úti vinstra megin. Hann kemur með góða fyrirgjöf inn á teiginn og Arnór Ingi tekur boltann í fyrsta en hann fer rétt fyrir.
54. mín
Felix með góða fyrirgjöf en Anton Ari er rétt á undan Sverri í boltann.
51. mín
Blika hreinsa burt en boltinn dettur fyrir Felix sem kemur boltanun út á Arnar Breka. Hann kemur með fyrirgjöf meðfram jörðinni en enginn Eyjamaður nær að setja boltann á markið.
49. mín
Eyjamenn fá aukaspyrnu. Alex Freyr tekinn niður við miðjulínuna. ÍBV fær svo horn upp úr spyrnunni.
45. mín
Leikurinn er farinn af stað aftur.
45. mín
Blika leiða hér sanngjarnt með einu marki. Þeir hafa heilt yfir verið betri aðilinn en Eyjamenn hafa þó náð að ógna aðeins að marki Blika þegar líða tók á leikinn.
44. mín
Eyjamenn fá hornspyrnu. Vicente tók spyrnuna en Blika náðu að hreinsa boltann en beint aftur á Vicente sem kemur með frábæran bolta á fjærstöngina. Þar er Arnar Brekir en það var eins og hann hefði ekki búist við boltanum þannig að hann rétt náði að skalla boltann en framhjá. Hann var bara aðeins of seinn þarna.
42. mín
Þorlákur Breki gerir vel og nær að vinna horn fyrir Eyjamenn.
38. mín
Gott spil hjá Blikum. Boltinn endar svo hjá Ágústi Orri sem gerir vel kemst fram hjá tveimur Eyjamönnum og reynir fyrirgjöf en Sigurður Arnar kemur boltanum í horn.
Breiðablik
36. mín
Gult spjald

Valgeir Valgeirsson

Tekur Sverri Pál niður.
35. mín
Viktor Karl vinnur aukaspyrnu fyrir Breiðablik. Höskuldur tók spyrnuna en Eyjamenn ná að hreinsa.
33. mín
Eyjamenn í ágætis séns. Vicente nær að taka boltann með sér inn í teig en nær almennilegu skoti. Blika hreinsa beint á Motrovic sem nær í aukaspyrnu. Hann tekur hana stutt á Þorlák Breka sem nær skotinu en það er hátt yfir. Ágætis hugmynd þarna.
28. mín
Sverrir Páll gerir vel, vinnur boltann hátt á vellinum og kemur með fyrirgjöf en það er frekar fámennt af Eyjamönnum inn í teig Blika og þeir eiga ekki í vandræðum með að koma boltanum burt.
27. mín
Blika fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Ná ekki að gera sér mat úr henni og Eyjamenn hreinsa burt og fá aukaspyrnu í kjölfarið.
Breiðablik
26. mín
Gult spjald

Arnór Gauti Jónsson

Fyrir brotið á Sverri.
25. mín
Sverrir Páll vinnur aukaspyrnu fyrir Eyjamenn.
23. mín
Breiðablik eru töluvert sterkari aðilinn þessa stundina.
Breiðablik
20. mín
Blikar komnir í 0-1!!

Sigurður Arnar Magnússon (sjm)

Þetta var rugl vel gert hjá Ágústi Orra. Hann vann boltann af Arnóri Inga og keyrir svo bara sjálfur upp völlinn. Hann reynir svo fyrirgjöf og boltinn virðist fara í Sigurð Arnar og breytir aðeins um stefnu en inn fór boltinn.
Blikar leiða 0-1.
19. mín
Viktor Karl og Arnór Gauti með gott samspil. Arnór Gauti fær hann í gegn, kemst upp að endalínu en Sigurður Arnar nær að bokka fyrirgjöfina og hreinsa burt.
16. mín
VIKTOR KARL
Blika bruna upp í sókn og Viktor Karl er sloppinn einn í gegn og reynir að vippa yfir Marcel en boltann í slánna. Þetta hefði verið geggjað mark!!!!
16. mín
Sigurður Arnar með frábæran sprett fram hjá nokkrum Blikum og nær á endanum að koma boltanum á Felix sem nær fyrirgjöfinni á Sverri Pál en hann sneiðir hann framhjá.
15. mín
Höskuldur tók spyrnuna og Viktor Örn nær skallanum. Spyrnan var svolítið há þannig hann þurfti að teygja sig í boltann og skallinn var eftir því.
14. mín
Blikar fá aukaspyrnu á hættulegum stað. Viktor Karl tekinn niður.
13. mín
Vicente með ágætt skot á markið eftir sendingu frá Arnóri Inga en Anton Ari á ekki í vandræðum með það.
12. mín
Sverrir næstum sloppinn í gegn eftir flotta sendingu frá Arnóri Inga en Blikar hreinsa í innkast.
10. mín
Breiðablik fékk annað horn en Eyjamenn ná að skalla boltann í burtu.
9. mín
Horn
Motrovic kiksar boltann ill rétt við vítateiginn og Blika vinna sér horn.
7. mín
Valgeir með góða pressu, nær að komast inn í sendingu ætlaða Þorláki Breka. Hann tekur svo þríhyrning með Viktori en fyrirgjöfin er svo ömurleg beint aftur fyrir markið.
3. mín
Eyjamenn ná upp ágætis spili. Þorlákur Breki og Vicente spila vel á milli sín en Þorlákur nær ekki að koma boltanum inn í teig.
1. mín
Leikurinn er farinn af stað. Heimamenn hefja leikinn.
Fyrir leik
Byrjunarlið Eyjamanna
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Tobias Thomsen setti 2 fyrir pásuna gegn Víkingum og hefur verið mjög iðinn við kolann, 2.30 á Epic á að Tobias skori er flottur stuðull, varnarmenn ÍBV ættu ekki að ráða við hann á venjulegum degi. Þeir bjóða einnig upp á að Valgeir Valgeirsson fái spjald á 3.50 sem er líklegt í barningnum á Þórsvelli.
Fyrir leik
Byrjunarlið Blika
Mynd: Elvar Geir Magnússon

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðeins ein breyting er á liði gestanna. Arnór Gauti Jónsson kemur aftur inn eftir að hafa tekið út leikbann en Aron Bjarnason er ekki í hópnum.

Þorlákur Már Árnason, þjálfari Eyjamanna, gerir tvær breytingar en Milan Tomic tekur út leikbann og þá er Mattias Edeland á bekknum, en þeir Jovan Mitrovic og Nökkvi Már Nökkvason koma inn í stað þeirra.

Blikar eru í öðru sæti með 19 stig og geta komist á toppinn með sigri en ÍBV í 6. sæti með 14 stig.
Fyrir leik
Af hverju er ekki enn byrjað að spila á Hásteinsvelli?
Búið er að leggja gervigras á Hásteinsvöll en til þessa hefur ekki verið hægt að spila á vellinum. Næstu tveir heimaleikir karlaliðs ÍBV eru skráðir á Þórsvöll; leikurinn gegn Breiðabliki og bikarleikur gegn Val.

Ástæðan fyrir því að ekki er spilað á nýja gervigrasinu er sú að gúmmíkurl, sem nota á sem fyllingarefni í völlinn, er ekki komið til landsins.

   12.06.2025 16:00
Seinkun á gúmmísendingu og ÍBV spilar lengur á Þórsvelli - „Þetta er að setja félagið í mikinn vanda"
Fyrir leik
Hinrik Harðarson spáir í leikinn:
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eru Blikarnir nægilega harðir til þess að rölta á Þórsvöllinn og taka þrjá punkta? Ég veit það ekki. Ég held að Tobias Thomsen sé ekkert að halda gleðileg jól yfir því að þurfa taka Herjólfinn og síðan fá þurran Þórsvöllinn í fangið. Oliver Heiðars eða hinn íslenski Adama Traore setur hann ef hann er heill. Láki hefur notað fríið í að eyðileggja nýja gervigrasið á Hásteinsvelli, eðlilega. 1-1.
Fyrir leik
Kallar eftir beinskeyttari Blikum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við vorum ekki nægilega öflugir sóknarlega í síðasta grasleik, gegn FH, við þurfum að vera beinskeyttari; koma boltanum fyrr nálægt vítateig andstæðinganna," segir Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks.

„Baráttan verður að vera til staðar frá fyrstu mínútu, það eru fleiri návígi og fleiri seinni boltar í grasleikjum og við þurfum að vera klárir."

Tobias Thomsen var frábær gegn Víkingi í síðasta leik, hvernig viltu nýta hann gegn ÍBV?

„Ég vil hafa hann sem næst vítateignum, hann er hættulegastur þar. Við erum það lið sem hefur átt flestar snertingar inn á vítateig andstæðinganna í sumar, við þurfum að vera beinskeyttari þar og koma boltanum oftar á okkar bestu menn, koma honum á Tobias."

Breiðablik endurheimtir Arnór Gauta Jónsson úr leikbanni og Óli Valur Ómarsson er mættur aftur eftir meiðsli. Aron Bjarnason hefur spilað í gegnum meiðsli í upphafi móts og er staðan á honum metin dag frá degi. Ásgeir Helgi Orrason er ekki klár eftir að hafa tognað fyrir landsleikjahlé, Davíð Ingvarsson verður lengi frá og Dóri vonar að Kristinn Jónsson geti komið inn á næstu vikum. Þá er óvíst hvenær Þorleifur Úlfarsson getur komið inn í hópinn en hann hefur glímt við erfið meiðsli síðustu misseri.
Fyrir leik
Toppsætið er í boði fyrir Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eftir tvo tapleiki í röð þá sýndu Íslandsmeistarar Breiðabliks alvöru Íslandsmeistaraframmistöðu í 3-1 sigrinum gegn Víkingi í síðustu umferð. Sigur hjá Blikum í dag og þeir eru á toppnum þegar þeir fara á koddann í kvöld.
Fyrir leik
Láki að gera frábæra hluti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Árnason, þjálfari ÍBV, fer vel af stað með Eyjaliðið. Liðið vann 3-0 útisigur gegn ÍA í síðustu umferð og vann FH umferðina þar á undan. Það eftir að helstu vopn Eyjamanna í sóknarleiknum, Omar Sowe og Oliver Heiðarsson meiddust. Láki er búinn að finna nýjar leiðir og sýnt kænsku. Sverrir Páll Hjaltested hefur stigið upp í sóknarleiknum og skoraði geggjað mark frá miðju á Skipaskaga.

   03.06.2025 08:10
Sjáðu öll mörk 10. umferðar: Mark frá miðju og Valur nálgast toppinn
Fyrir leik
Staðan

Fyrir leik
Tomic í banni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV verður þá án Milan Tomic í leiknum í dag en serbneski miðjumaðurinn tekur út leikbann.
Fyrir leik
Dómari ársins með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leikinn í dag. Hann var valinn besti dómari ársins á síðasta ári hér á Fótbolta.net.Gylfi Már Sigurðsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage eru með flöggin. Enginn annar ern Þórður Georg Lárusson er eftirlitsmaður og þá er Gunnar Freyr Róbertsson varadómari.
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan dag!
Velkomin með okkur til Vestmannaeyja! ÍBV og Breiðablik mætast klukkan 16:00 á Þórsvellinum í Vestmannaeyjum og hér fylgjumst við með öllu því sem máli skiptir. 11. umferð Bestu deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Umferðin:

Stjarnan 3 - 2 Valur
1-0 Jóhann Árni Gunnarsson ('17 )
1-1 Patrick Pedersen ('26 )
2-1 Emil Atlason ('62 )
3-1 Guðmundur Baldvin Nökkvason ('68 )
3-2 Patrick Pedersen ('77 )
Rautt spjald: Bjarni Mark Antonsson, Valur ('78) Lestu um leikinn

sunnudagur 15. júní
14:00 Vestri-KA (Kerecisvöllurinn)
16:00 ÍBV-Breiðablik (Þórsvöllur Vey)
19:15 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)
19:15 Afturelding-ÍA (Malbikstöðin að Varmá)

mánudagur 16. júní
19:15 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.