Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Seinkun á gúmmísendingu og ÍBV spilar lengur á Þórsvelli - „Þetta er að setja félagið í mikinn vanda"
Mynd af Hásteinsvelli síðasta sumar.
Mynd af Hásteinsvelli síðasta sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framkvæmdir á Hásteinsvelli í lok mars á þessu ári.
Framkvæmdir á Hásteinsvelli í lok mars á þessu ári.
Mynd: ÍBV
Þórsvöllur er í grennd við Hásteinsvöll. Þar hefur ÍBV spilað til þessa í sumar.
Þórsvöllur er í grennd við Hásteinsvöll. Þar hefur ÍBV spilað til þessa í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að leggja gervigras á Hásteinsvöll en til þessa hefur ekki verið hægt að spila á vellinum. Næstu tveir heimaleikir karlaliðs ÍBV eru skráðir á Þórsvöll; deildarleikur gegn Breiðabliki og bikarleikur gegn Val.

Ástæðan fyrir því að ekki er spilað á nýja gervigrasinu er sú að gúmmíkurl, sem nota á sem fyllingarefni í völlinn, er ekki komið til landsins.

Fótbolti.net ræddi við Magnús Sigurðsson, formann fótboltadeildar ÍBV, í dag.

„Ég get ekki svarað því að hvort að næst leikur eftir það fari fram á Hásteinsvelli. Vestmannaeyjabær verður eiginlega að svara því, við erum að bíða eftir svörum frá þeim. Það vantar gúmmíkurlið í völlinn. Það var fyrirskrifað ljósgrátt gúmmíkurl, mér skilst að það vanti hráefni í það, svo var ákveðið að breyta um kurl og núna er verið að bíða eftir því, það er ekki komið til landsins. Þetta veltur bara á því hvenær það kemur."

„Þetta er bara grátlegt, grasið er komið á völlinn og það er búið að setja sandinn sem kemur undir kurlið."

„Við erum að halda Pæjumót sem hefst í dag og þetta er að setja félagið í mikinn vanda."


Það er oft stutt í samsæriskenningar, einhverjir hafa horft í að þetta séu leikir gegn Breiðabliki og Val, tveimur af toppliðunum...

„Ég er heiðarlegur með að það hefur ekkert með þetta að gera, upphaflega planið var að völlurinn átti að vera klár í maí. Ég ætla líka að vera heiðarlegur með að ég hafði efasemdir með það og það var í raun ekki raunhæft miðað við hvernig verkið hefur unnist. En miðað við hvernig verkið vannst vorum við að búa okkur undir að fyrsti leikurinn á Hásteinsvelli yrði gegn FH (29. maí). Við vorum byrjaðir að plana í kringum það. Þetta er að setja félagið í mikinn vanda, við erum með tvö stór mót í sumar og annað þeirra byrjar í dag. Það er búið að endurraða mótinu og breyta."

Spilað verður á Þórsvelli á Pæjumótinu. Er það eitthvað sem þið hafið áhyggjur af upp á ástandið á vellinum?

„Já, en miðað við hvernig spáin er þá hef ég minni áhyggjur af því í dag heldur en ég hafði í síðustu viku. Við höfðum sannarlega áhyggjur, en það er flottur dagur í dag og verður á morgun líka. Við erum að reyna spila sem minnst á Þórsvelli."

„Ef kurlið hefði verið komið á mánudaginn, þá hefði verið hægt að dúndra því á Hásteinsvöll og spila á honum. Við erum að reyna passa upp á Þórsvöll, það er varla búið að æfa á honum í tvær vikur til að reyna halda honum í eins góðu ástandi og hægt er. Við lágmörkuðum allar æfingar á vellinum þegar við sáum fram á að þetta væri að gerast."


Stefnan er að gúmmíið verði komið til Vestmannaeyja og á Hásteinsvöll 19. júní, fimmtudaginn í næstu viku. Næsti heimaleikur karlaliðsins eftir leikinn gegn Val í næstu viku verður gegn Aftureldingu annan mánudag.

Hann segir að gúmmíið sé sambærilegt því sem upphaflega átti að koma, en verði aðeins dekkra en það ljósgráa sem var lagt upp með.

ÍBV mætir Breiðabliki í 11. umferð Bestu deildarinnar á Þórsvelli á sunnudag klukkan 16:00 og Val svo eftir viku, klukkan 17:30 á fimmtudag í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Athugasemdir
banner
banner