Fotbolti.net
Tryggvi Guðmundsson
Mjólkurbikar karla
Þórsvöllur Vey
ÍBV
ÍBV
0 - 1
Valur
Valur
0 - 116' Hólmar Örn Eyjólfsson
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Valur siglir í undanúrslitin

Hvað réði úrslitum?

Það var í raun þetta eina mark úr föstu leikatriði hjá Valsmönnum sem réði úrslitum. Leikurinn var frekar jafn í fyrri hálfleik, en á köflum í seinni hálfleik voru Eyjamenn betri, áttu hættulegri færi og hefðu átt að fá tvær vítaspyrnur.

Bestu leikmenn

1. Hólmar Örn Eyjólfsson

Hann skoraði markið sem skildi liðin að í kvöld og kom sínu liði í undanúrslit Mjólkurbikarsins.

2. Sigurður Arnar Magnússon

Stóð fyrir sínu í vörninni hjá ÍBV. Hann stoppaði margar fyrirgjafir og sóknir Valsmanna. Hann var svo kominn fram undir lok leiks til að reyna að jafna leikinn.

Atvikið

Það voru tvö atvik sem áttu sér stað sem höfðu áhrif á leikinn. Fyrra atvikið var á 65. mínútu þegar Sverrir Páll átti skot að marki og varnarmaður Vals varði boltann með hendinni en dómarinn dæmdi ekkert. Annað atvikið var á 70. mínútu þegar Víðir Þorvarðarson varamaður ÍBV átti fyrirgjöf sem fór í gegnum allan teiginn og á endanum í hendina á varnarmanni Vals. Í Annað skipti í leiknum vildu Eyjamenn fá víti en dómari leiksins dæmdi ekkert.

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða einfaldlega að Valur er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins en Eyjamenn sitja eftir með sárt ennið eftir leik sem hefði getað dottið hvoru megin.

Vondur dagur

Ekki oft sem að dómari er í vondum degi en ég verð bara að nefna Twana Khalid Ahmed hérna. Það var bara eins og hann væri að fylgjast með öðrum leik en allir aðrir. Eyjamenn áttu að fá tvær vítaspyrnur og sumar ákvarðanir hans voru mjög skrýtnar.

Dómarinn - 3

Ekki góður leikur hjá dómaranum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.