SKÝRSLAN: Geiramenn syngja og tralla inn í undanúrslitin
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var í jafnvægi í fyrri hálfleik en eftir að flautað til seinni hálfleiks sveiflaðist leikurinn til Framara og Jökull þurfti að vera vel á verði. Eftir að markið kom svo var engin leið til baka fyrir Aftureldingu sem ógnaði ekkert.
Bestu leikmenn
1. Simon Tibbling
Þessi leikmaður er algjörlega frábær og virkilega vel gert hjá Fram að krækja í hann núna fyrir tímabilið. Hann er að sýna afhverju hann á þann feril að baki sem hann á.
2. Haraldur Einar Ásgrímsson
Vörn Framara var til fyrirmyndar í dag og ég vel Halla sem fulltrúa hennar. Stóð sína plikt vinstra meginn í vörninni með prýði.
Atvikið
Eina mark leiksins tók allan dug úr liði Aftureldingar.
Hvað þýða úrslitin?
Fram verður í undanúrslitum og mætir Vestra á Ísafirði.
Vondur dagur
Sóknarleikur Aftureldingar var ekki upp á marga fiska í dag og þá sér í lagi eftir að Fram skoraði. Bersýnilegt að Elmars Kára var sárt saknað en hann tók út leikbann.
Dómarinn - 7
Ívar flottur í leik sem var ekki mjög krefjandi.



